Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 54
heilsa Helgin 29.-31. ágúst 201454 Dansfélag Reykjavíkur Salsa Break Zumba Hip Hop Freestyle Brúðarvals Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámsskeið fyrir hópa Börn - Unglingar - Fullorðnir Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög veita styrki vegna dansnámskeiða. Innritun og upplýsingar á dansskoli.is eða í síma 553 6645 Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar Dansfélag Reykjavíkur Salsa Break Zumba Hip Hop Freestyle Brúðarvals Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámsskeið fyrir hópa Börn - Unglingar - Fullorðnir Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög veita styrki vegna dansnámskeiða. Innritun og upplýsingar á dansskoli.is eða í síma 553 6645 Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar Dansfélag Reykjavíkur Salsa Break Zumba Hip Hop Fr estyle Brúðarvals Barnadansar Samkvæmisdansar S námsskeið fyrir hópa Börn - Unglingar - Fullorðnir Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög veita styrki vegna dansnámskeiða. Innritun og upplýsingar á dansskoli.is eða í síma 553 6645 Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar Dansfélag Reykjavíkur Salsa Break Zumba Hip Hop Freestyle Brúðarvals Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámsskeið fyrir hópa Börn - Unglingar - Fullorðnir Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög veita styrki vegna dansnámskeiða. Innritun og upplýsingar á dansskoli.i eða í síma 553 6645 Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar Dansfélag Reykjavíkur Salsa Break Zumba Hip Hop eestyle Brúðarvals Barnadansar amkvæmisdansar Sérnámsskeið fyrir hópa Börn - Unglingar - Fullorðnir Ý is starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög veita styrki vegna dansnámskeiða. Innritun og upplýsingar á dan skoli.is eða í síma 553 6645 Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar 25ára Opið hús laugardaginn 30. gúst kl. 13-15 D ansskóli Jóns Péturs og Köru er 25 ára um þessar mundir. Skólinn var stofn- aður 28. ágúst af þeim Jóni Pétri Úlfljótssyni og Köru Arngríms- dóttur. Þau reka skólann enn þann dag í dag ásamt Stefáni Guðleifs- syni, eiginmanni Köru. „Við Jón Pétur vorum danskenn- aranemar á sama stað og byrj- uðum að dansa saman. Við sigr- uðum á fyrsta Íslandsmótinu sem haldið var 1986 og vorum fulltrúar Íslands á Evrópumeistaramóti at- vinnumanna í Berlín 1987. Það var ekkert á planinu að opna dansskóla en það þróaðist einhvern veginn þannig. Við vorum náttúrlega alveg blaut á bak við eyrun og vissum ekkert hvað við vorum að fara út í,“ segir Kara þegar hún rifjar upp upphaf dansskólans. Kara segir að miklar breytingar hafi orðið á rekstrinum á þessum aldarfjórðungi. Nemendur hafi ver- ið allt frá 300 og upp í 900 á hverj- um vetri. Framboð á námskeiðum hefur sömuleiðis breyst eftir því hvernig vindar blása hverju sinni. „Í upphafi vorum við bara með samkvæmisdansana en núna erum við með mjög fjölbreytt nám- skeið. Við erum með barnadansa, keppnisdansa, fullorðinshópa fyrir fólk á öllum aldri, freestyle, hip hop, break, street, salsa og zumba. Við reynum að koma til móts við þörfina í samfélaginu.“ Er alltaf jafn gaman að kenna dans? „Mér finnst þetta alltaf jafn gaman og það verður jafnvel skemmti- legra með hverju árinu, að fá inn manneskju sem kann ekki neitt og sjá hana breytast í dansara. Maður lærir að meta þetta meira og meira, að sjá breytinguna sem verður á fólki. Fólk kemur kannski inn dauðstressað en labbar út upp- rétt og ánægt með árangurinn. Svo er alltaf einstakt að fá litlu börnin inn og sjá þau fá útrás fyrir gleðina og hreyfiþörfina.“ Innritun í Dansskóla Jóns Péturs og Köru stendur nú yfir og kennsla hefst 8. september. Dansskólinn er í Valsheimilinu við Hlíðarenda. Á heimasíðunni Dansskoli.is má finna nánari upplýsingar um nám- skeiðin og skráningu á þau. Í tilefni 25 ára afmælisins verður opið hús í Dansskóla Jóns Péturs og Köru á laugardaginn, 30. ágúst, milli klukkan 13-15. Kara segir að allir áhugasamir séu velkomnir en á dagskránni eru danssýningar og léttar veitingar. „Við bjóðum fólki að koma og kynna sér skólann og við viljum endilega fá gamla nemendur í heimsókn. Það verður gaman að hitta þá sem voru hjá okkur fyrir 25 árum.“ Unnið í samstarfi við Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Fagna 25 ára afmæli um helgina Jón Pétur og Kara hafa kennt mörg þúsund Íslendingum dans á síðustu 25 árum. Opið hús verður í dansskólanum á laugardag í tilefni afmælisins. Get ekki hugsað mér lífið án hreyfingar Berglind Rós Guðmunds- dóttir hefur verið með vefjagigt í mörg ár en sá sig tilneydda til að koma sér í form þegar langveikur sonur hennar var á leið í stóra aðgerð. Hún hefur nú stundað Crossfit í fjögur ár og segir reglulega hreyfingu hafa umbreytt lífi sínu til hins betra. Í dag stundar öll fjölskyldan Crossfit. B erglind Rós Guðmundsdóttir er með vefja-og liðagigt og hafði ekki hreyft sig síðan hún var unglingur þegar hún ákvað að byrja að stunda Cross- fit. „Það var eiginlega langveikur sonur minn sem ýtti mér út í hreyfingu. Hann var á leið í stóra aðgerð svo ég vissi að ég mundi þurfa að hugsa um hann eftir aðgerðina.“ Aðgerðin sem um ræðir var nýrnaígræðsla en nýrað fékk sonurinn frá pabba sínum svo það þýddi að þeir feðgar yrðu báðir rúmfastir í þó nokkurn tíma. „Á þessum tíma var ég svo slæm af gigtinni að ég gat ekki haldið á syni mínum sem var þá fimm ára. Starfsfólk spítalanna get- ur auðvitað ekki stöðugt verið við svo ég vissi að ég þyrfti að gera eitthvað, ég varð að geta hjálpað syni mínum á klósettið, bara svo eitthvað sé nefnt. Ég bara varð að koma mér í form til að geta tekist á við þetta. En þetta var mjög stórt skref út fyrir þægindarammann minn því ég hafði aldrei æft neitt áður og þekkti engan sem æfði.“ Árangurinn lét ekki á sér standa. Berg- lind hefur ekki hætt að æfa síðan og nú eru feðgarnir líka farnir að stunda Cross- fit. Og vefjagigtin er svo til horfin. „Ég er auðvitað engin læknir og get ekki talað fyrir aðra, en í mínu tilfelli hjálpaði hreyf- ingin og lífið varð bara miklu auðveldara að öllu leyti.“ Crossfit blanda af því besta Berglind Rós segir Crossfit-ið henta sér mjög vel en fyrst og fremst sé það svo skemmtileg hreyfing. „Crossfit er eigin- lega blanda af öllu því besta. Það inniheld- ur allt frá hlaupum, teygjum og lyftingum upp í að ganga á höndum. Maður er stöð- ugt að ögra sjálfum sér og í rauninni ekki að keppa við neinn nema sjálfan sig. Ég byrjaði á því að æfa þrisvar í viku og gerði það fyrstu tvö árin en svo fór ég að mæta oftar og þá fór ég að sjá miklu meiri ár- angur. Í dag æfi ég daglega. Maður verður bara svo háður því að hreyfa sig þegar maður byrjar. Við erum nokkur sem mæt- um alltaf klukkan 05.50 alla daga og höfum gert það núna í tvö ár. Við þekktumst ekk- ert í byrjun en nú erum við auðvitað orðin miklir félagar og maður fær svo sannarlega að heyra það ef maður mætir ekki.“ Stöðug sjálfsstyrking Í dag get ég bara ekki hugsað mér lífið án þess að hreyfa mig, þetta styrkir mann svo svakalega, bæði andlega og líkamlega. Maður verður svo orkumikill og tilbúin til að takast á við daginn, þetta bara eyðir stressi og álagi. Það er algjörlega æðis- legt að mæta í vinnuna á morgnana eftir að hafa fengið svona útrás. Sumir fara á nám- skeið til að öðlast sjálfstraust og fá bætta sjálfsmynd en mér liður eins og ég sé á sjálfsstyrkingarnámskeiði á hverjum degi í Crossfit-inu. Maður gengur út svo sáttur við sjálfan sig.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Berglind Rós hefur æft Crossfit í Crossfit Hafnarfirði í fjögur ár og segir reglulega hreyfingu hafa umbreytt lífi sínu til hins betra. Ljósmynd/Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.