Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 54
heilsa Helgin 29.-31. ágúst 201454
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Fr estyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
S námsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.i eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
eestyle
Brúðarvals
Barnadansar
amkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ý is starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dan skoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
25ára
Opið hús laugardaginn
30. gúst kl. 13-15
D ansskóli Jóns Péturs og Köru er 25 ára um þessar mundir. Skólinn var stofn-
aður 28. ágúst af þeim Jóni Pétri
Úlfljótssyni og Köru Arngríms-
dóttur. Þau reka skólann enn þann
dag í dag ásamt Stefáni Guðleifs-
syni, eiginmanni Köru.
„Við Jón Pétur vorum danskenn-
aranemar á sama stað og byrj-
uðum að dansa saman. Við sigr-
uðum á fyrsta Íslandsmótinu sem
haldið var 1986 og vorum fulltrúar
Íslands á Evrópumeistaramóti at-
vinnumanna í Berlín 1987. Það var
ekkert á planinu að opna dansskóla
en það þróaðist einhvern veginn
þannig. Við vorum náttúrlega
alveg blaut á bak við eyrun og
vissum ekkert hvað við vorum að
fara út í,“ segir Kara þegar hún
rifjar upp upphaf dansskólans.
Kara segir að miklar breytingar
hafi orðið á rekstrinum á þessum
aldarfjórðungi. Nemendur hafi ver-
ið allt frá 300 og upp í 900 á hverj-
um vetri. Framboð á námskeiðum
hefur sömuleiðis breyst eftir því
hvernig vindar blása hverju sinni.
„Í upphafi vorum við bara með
samkvæmisdansana en núna erum
við með mjög fjölbreytt nám-
skeið. Við erum með barnadansa,
keppnisdansa, fullorðinshópa fyrir
fólk á öllum aldri, freestyle, hip
hop, break, street, salsa og zumba.
Við reynum að koma til móts við
þörfina í samfélaginu.“
Er alltaf jafn gaman að kenna
dans?
„Mér finnst þetta alltaf jafn gaman
og það verður jafnvel skemmti-
legra með hverju árinu, að fá inn
manneskju sem kann ekki neitt
og sjá hana breytast í dansara.
Maður lærir að meta þetta meira
og meira, að sjá breytinguna sem
verður á fólki. Fólk kemur kannski
inn dauðstressað en labbar út upp-
rétt og ánægt með árangurinn. Svo
er alltaf einstakt að fá litlu börnin
inn og sjá þau fá útrás fyrir gleðina
og hreyfiþörfina.“
Innritun í Dansskóla Jóns Péturs
og Köru stendur nú yfir og kennsla
hefst 8. september. Dansskólinn
er í Valsheimilinu við Hlíðarenda.
Á heimasíðunni Dansskoli.is má
finna nánari upplýsingar um nám-
skeiðin og skráningu á þau.
Í tilefni 25 ára afmælisins verður
opið hús í Dansskóla Jóns Péturs
og Köru á laugardaginn, 30. ágúst,
milli klukkan 13-15. Kara segir að
allir áhugasamir séu velkomnir en
á dagskránni eru danssýningar og
léttar veitingar. „Við bjóðum fólki
að koma og kynna sér skólann
og við viljum endilega fá gamla
nemendur í heimsókn. Það verður
gaman að hitta þá sem voru hjá
okkur fyrir 25 árum.“
Unnið í samstarfi við Dansskóla
Jóns Péturs og Köru.
Fagna 25 ára afmæli
um helgina
Jón Pétur og Kara hafa kennt mörg þúsund Íslendingum dans á síðustu 25 árum.
Opið hús verður í dansskólanum á laugardag í tilefni afmælisins.
Get ekki hugsað mér
lífið án hreyfingar
Berglind Rós
Guðmunds-
dóttir hefur
verið með
vefjagigt í
mörg ár en sá
sig tilneydda
til að koma sér
í form þegar
langveikur
sonur hennar
var á leið í
stóra aðgerð.
Hún hefur
nú stundað
Crossfit í
fjögur ár og
segir reglulega
hreyfingu hafa
umbreytt lífi
sínu til hins
betra. Í dag
stundar öll
fjölskyldan
Crossfit.
B erglind Rós Guðmundsdóttir er með vefja-og liðagigt og hafði ekki hreyft sig síðan hún var unglingur
þegar hún ákvað að byrja að stunda Cross-
fit. „Það var eiginlega langveikur sonur
minn sem ýtti mér út í hreyfingu. Hann
var á leið í stóra aðgerð svo ég vissi að
ég mundi þurfa að hugsa um hann eftir
aðgerðina.“ Aðgerðin sem um ræðir var
nýrnaígræðsla en nýrað fékk sonurinn frá
pabba sínum svo það þýddi að þeir feðgar
yrðu báðir rúmfastir í þó nokkurn tíma. „Á
þessum tíma var ég svo slæm af gigtinni
að ég gat ekki haldið á syni mínum sem
var þá fimm ára. Starfsfólk spítalanna get-
ur auðvitað ekki stöðugt verið við svo ég
vissi að ég þyrfti að gera eitthvað, ég varð
að geta hjálpað syni mínum á klósettið,
bara svo eitthvað sé nefnt. Ég bara varð
að koma mér í form til að geta tekist á við
þetta. En þetta var mjög stórt skref út fyrir
þægindarammann minn því ég hafði aldrei
æft neitt áður og þekkti engan sem æfði.“
Árangurinn lét ekki á sér standa. Berg-
lind hefur ekki hætt að æfa síðan og nú
eru feðgarnir líka farnir að stunda Cross-
fit. Og vefjagigtin er svo til horfin. „Ég er
auðvitað engin læknir og get ekki talað
fyrir aðra, en í mínu tilfelli hjálpaði hreyf-
ingin og lífið varð bara miklu auðveldara
að öllu leyti.“
Crossfit blanda af því besta
Berglind Rós segir Crossfit-ið henta sér
mjög vel en fyrst og fremst sé það svo
skemmtileg hreyfing. „Crossfit er eigin-
lega blanda af öllu því besta. Það inniheld-
ur allt frá hlaupum, teygjum og lyftingum
upp í að ganga á höndum. Maður er stöð-
ugt að ögra sjálfum sér og í rauninni ekki
að keppa við neinn nema sjálfan sig. Ég
byrjaði á því að æfa þrisvar í viku og gerði
það fyrstu tvö árin en svo fór ég að mæta
oftar og þá fór ég að sjá miklu meiri ár-
angur. Í dag æfi ég daglega. Maður verður
bara svo háður því að hreyfa sig þegar
maður byrjar. Við erum nokkur sem mæt-
um alltaf klukkan 05.50 alla daga og höfum
gert það núna í tvö ár. Við þekktumst ekk-
ert í byrjun en nú erum við auðvitað orðin
miklir félagar og maður fær svo sannarlega
að heyra það ef maður mætir ekki.“
Stöðug sjálfsstyrking
Í dag get ég bara ekki hugsað mér lífið án
þess að hreyfa mig, þetta styrkir mann
svo svakalega, bæði andlega og líkamlega.
Maður verður svo orkumikill og tilbúin
til að takast á við daginn, þetta bara eyðir
stressi og álagi. Það er algjörlega æðis-
legt að mæta í vinnuna á morgnana eftir að
hafa fengið svona útrás. Sumir fara á nám-
skeið til að öðlast sjálfstraust og fá bætta
sjálfsmynd en mér liður eins og ég sé á
sjálfsstyrkingarnámskeiði á hverjum degi
í Crossfit-inu. Maður gengur út svo sáttur
við sjálfan sig.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Berglind Rós hefur æft Crossfit í Crossfit Hafnarfirði í fjögur ár og segir reglulega
hreyfingu hafa umbreytt lífi sínu til hins betra. Ljósmynd/Hari