Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 67
heilsaHelgin 29.-31. ágúst 2014 67
F erðafélag Íslands var stofnað 1927 og hefur það markmið að byggja upp aðstöðu fyrir
ferðamenn á hálendinu og í óbyggð-
um og greiða fyrir götu ferðamanna á
landinu. Þá gefur FÍ út bækur og kort
og stendur fyrir fjölbreyttum ferðum
um landið. Félagið á 40 skála og undir
merkjum félagsins starfa 15 deildir
um allt land.
Ferðafélagið er í eðli sínu íhalds-
samt og rótgróið og heldur fast í
gömul og góð gildi. Um leið hefur það
þó þróast í takt við tímann. Til dæmis
var Ferðafélag barnanna stofnað fyrir
nokkrum árum en það sérhæfir sig í
ferðum fyrir börn og fjölskyldur og
hefur fengið afar góðar móttökur.
Þá hefur félagið verið í fararbroddi
í ferðamennsku og byggt upp skála,
gönguleiðir, göngubrýr og staðið fyrir
fræðslu.
Markmið félagsins eru í dag enn
þau sömu og í upphafi, að greiða götu
ferðamanna, byggja upp aðstöðu
sem og standa fyrir ferðum, útgáfu
og fræðslu. Stór þáttur í útgáfustarfi
félagsins er útgáfa Árbókar Ferða-
félagsins sem hefur komið út óslitið í
85 ár og er einstök ritröð um náttúru
landsins. Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri FÍ, hefur undanfarin ár
innleitt lýðheislu- og forvarnarverk-
efni inn í starf félagsins.
52 fjalla verkefnið, Biggest win-
ner og Bakskóli Ferðafélagsins
Segja má að Ferðafélag Íslands hafi
verið í fararbroddi hvað varðar lýð-
heilsu landsmanna. Félagið er ekki
einungis fyrir fullfríska klettaklifrara
heldur hefur félagið verið í samstarfi
við Reykjalund og Háskóla Íslands
með gönguferðir fyrir þá sem eiga erf-
itt um gang af einhverjum orsökum.
Það getur verið vegna líkamlegra ann-
Ferðafélag Íslands – lýðheilsu- og forvarnarverkefni
marka eins og offitu eða andlegra annmarka
eins og þunglyndis og svo framvegis. Rann-
sóknir sem voru gerðar meðal þátttakenda í
þessum ferðum segir Páll að hafi komið mjög
ánægjulega út. Rannsóknir hafa margsýnt að
gönguferðir eru mjög hollar fyrir bæði líkama
og sál og sumir segja allra meina bót.
„Við erum nú að auka samstarfið við heil-
brigðisyfirvöld og efnum til gönguferða fyrir
ákveðna hópa innan heilbrigðisgeirans. Nú er
Ferðafélagið búið að stofna Bakskólann þar
sem verið er að reyna að koma fólki af stað í
léttum gönguferðum með styrkjandi og liðk-
andi æfingum þannig að þeir sem hafa gefið
eftir heilsufarslega komist á beinu brautina
aftur. Síðan eru hópar með geðraskanir og
rannsóknir hafa sýnt að gönguferðir hjálpa
þeim geysilega mikið. Gönguferðir, hvort
sem er um skóglendi eða við hafið, hafa mjög
róandi áhrif. Að komast upp á fjall hefur t.d.
mjög jákvæð áhrif á andlega líðan fólks. Allt
eru þetta afrek og hjallar til að sigrast á og
Bakskóli Ferðafélagsins er liður í hjálpinni.
Þá fórum við af stað með 52 verkefni FÍ fyr-
ir fimm árum sem sló í gegn og hefur fest sig í
sessi og auk þess orðið til ýmis hliðarverkefni
eins og 12 og 24 fjöll, framhaldslíf og eilíft líf.
Á síðastliðnum fimm árum hafa fleiri þúsund
manns tekið þátt í þessum verkefnum og nú
er Bakskólinn að fara af stað og boðið verður
upp á öll þessi verkefni að nýju um áramótin,“
segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri
FÍ.
Unnið í samstarfi við
Ferðafélag Íslands.
S ífellt fleiri nýta sér reiðhjólið sem farartæki til að komast til og frá vinnu. Sú þróun á sér ekki aðeins
stað á hér á Íslandi, heldur í flestum
borgum heimsins. „Oft kemur til okkar
fólk sem ekki hefur hjólað í mörg ár og
ætlar að leggja bílnum og byrja að hjóla í
vinnuna og slá þrjár flugur í einu höggi;
hugsa um heilsuna, spara peninga og
minnka mengun,“ segir Valur Rafn, mark-
aðsstjóri TRI verslunar. Hann segir það
koma fólki á óvart hversu stuttan tíma það
taki að hjóla í vinnuna, miðað við að aka
bíl á mestu álagstímum. Hjá TRI verslun
er hægt að fá reiðhjól fyrir allar helstu að-
stæður, aukahluti fyrir allar helstu gerðir
reiðhjóla og reiðhjólafatnað.
Réttur fatnaður gerir gæfumuninn
Hjólreiðaferðin verður þægilegri í rétta
fatnaðinum og er að verða sífellt algeng-
ara að fólk fjárfesti í vönduðum reið-
hjólafatnaði. Sérstakur hjólreiðafatnaður
er hannaður þannig að hann hleypi lofti
hæfilega mikið inn og haldi kulda úti. Hjá
TRI er gott úrval hjólreiðafatnaðar. Þar
á meðal eru föt frá kanadíska merkinu
Louis Garneau. Að sögn Vals Rafns
hefur merkið verið mjög vinsælt undan-
farin misseri. „Jakkarnir, buxurnar,
hjálmarnir og skórnir frá Louis Garneau
hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi
enda henta vörurnar loftslaginu hér vel.
Fötin koma frá Kanada þar sem lofts-
lagið er svipað og á Íslandi. Til að mynda
Frábær hjólaföt frá Louis
Garneau hjá TRI verslun
Hjá TRI verslun við Suðurlandsbraut 32 er gott úrval reiðhjóla, hjólafatnaðar og
hjálma. Viðskiptavinirnir eru bæði þaulvanir hjólreiðamenn og fólk sem er að
byrja að hjóla.
fást jakkarnir og buxurnar
með efni sem stöðvar vind að
framan. Það hjálpar okkur Ís-
lendingum mikið þegar kemur
að því að njóta ferðarinnar.
Að aftan hleypa þeir svo lofti
inn í sig sem hentar einnig vel
við íslenskar aðstæður,“ segir
hann. Vettlingar og skóhlífar
frá Louis Garneau fást einnig
í TRI verslun en skóhlífarnar
eru orðnar mjög algengar hjá
þeim sem hjóla til vinnu og
keppa í hjólreiðum.
Verðlaunahjálmar
Valur Rafn segir hjálmana frá
Louis Garneau hafa notið mik-
illa vinsælda síðan þeir komu á
markað. Tímaritið BikeRadar
kaus Course hjálminn frá Louis
Garneau einn af þeim bestu
árið 2014 og gaf honum fimm
stjörnur af fimm mögulegum.
Hjálmurinn fékk verðlaun bæði
fyrir loftflæði og hönnun. Valur
Rafn segir skipta máli hve
mikla loftmótstöðu hjálmurinn
myndar. „Course hjálmurinn
er þannig hannaður að hann
veitir litla loftmótstöðu, veitir
mikið öryggi og er mjög flottur.
Einnig er hægt að festa ljós á
hjálminn með mjög einföldum
hætti sem er frábært.“
TRI verslun er við Suður-
landsbraut 32 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar má nálgast
á vefnum www.tri.is og á Fa-
cebook-síðunni Tri verslun.
Unnið í samstarfi við
TRI verslun.
Elvar Örn Reynisson, starfs-
maður TRI verslunar og Valur
Rafn markaðsstjóri.
Hjá TRI verslun við
Suðurlandsbraut
fæst hjólreiðafatn-
aður og skór frá
kanadíska merkinu
Louis Garneau.