Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 26
Kringlunni - Skeifunni - Spönginni
Kringlunni
Skeifunni
Spönginni
Sími 5 700 900
Umgjörð og gler í þínum styrkleika +/- 4
Fullt verð 44.590 kr.
þegar maður syngur fyrir Garðar, hann er
ennþá skólastjórinn í mínum huga og mér
finnst ég ekkert minni nemandi í dag en þá,“
segir Þóra.
„Er maður ekki alltaf að læra? Ég er alltaf
nemandi, ég sé það ekki öðruvísi.“
Hver er munurinn á tónleikauppfærslunni og
óperuuppfærslunni? Er einhver munur á undir-
búningnum?
„Við gerðum þetta með Ragnheiði, óper-
unni hans Gunnars Þórðarsonar, þá byrjuðum
við á því að flytja hana sem tónleika og það er
rosalega gott. Þá hefur maður ekkert, maður
stendur bara einn. Engir búningar, engir leik-
munir. Bara innra líf persónunnar. Maður fer
bara inn í textann og ég held að túlkunin sé
bara sterkari og dýpri. Að flytja óperu á leik-
sviði er svo annað, aðrar víddir sem bætast
við.
Víóletta er þekkt stærð í óperuheiminum.“
Finnst þér þú þekkja karakterinn þrátt fyrir
að hafa ekki túlkað hana?
„Ég hélt ég gerði það,“ segir Þóra. „Það sem
maður þekkir eru þó bara klisjurnar en þegar
maður fer sjálfur að syngja þá þarf maður að
horfa fram hjá þeim og uppgötva karakterinn
út frá sjálfum sér og það er mjög spennandi.“
Upptökur og sýningar á Ragnheiði
Hvert er draumahlutverkið? Ertu búin að
syngja það?
„Nei, það væri ekki nógu gott ef ég væri
búin að því, hvað er þá eftir,“ segir Þóra. Það
verður alltaf að vera eitthvert hlutverk sem
mann dreymir um. Það er alltaf auðvelt að
segja að næsta hlutverk sé draumahlutverkið
en það er eitt hlutverk sem mig hefur lengi
langað að syngja, en það er hlutverk Marg-
aretu í Faust eftir Gounoud. Ég veit ekki af
hverju, en ég hef lengi verið með það í kollin-
um. Leikritið eftir Göthe er auðvitað frábært,
og þó að útfærslan í óperunni sé aðeins önnur
þá er tónlistin stórkostleg og ég er mjög hrifin
af franskri óperutónlist. Það eru mörg hlut-
verk sem ég á eftir að syngja, alltaf nóg sem
má bæta við.
Ég er á þeim aldri sem margir eru nánast
Þóra segir Hörpu vera frábært hús og gott að syngja þar, yfirleitt sé ekki svona
góður hljómburður í óperuhúsum úti í heimi.
nýbúnir með sitt nám, svo að því leytinu er
mjög gott að hafa byrjað svona snemma að
læra. Ég hef verið mjög lánsöm að hafa haft
mikið að gera og haldið raddheilsu og komist
óskemmd út úr þessu svo það ég á nóg eftir,
nóg af hlutverkum sem ég á eftir að takast
við.“
Hvernig blasir íslenskt óperulíf við söngkonu
sem hefur starfað meira og minna erlendis
undanfarin 20 ár?
„Mér finnst ég ekki vera nógu dómbær á
það því ég hef verið það lengi í burtu. Mér
finnst samt einhver hreyfing vera í gangi
núna, vaxandi áhugi. Það kom ákveðið fylgi
með Ragnheiði, þá held ég að margir hafi upp-
götvað þetta listform sem höfðu ekki kynnt
sér það áður. Þá fannst mér koma einhver
áður ókunn ástríða fyrir óperu. Þegar fólk
tengir við söguna og slíkt. Harpa hjálpar líka
til. Þetta er frábært hús og gott að syngja þar,
yfirleitt er ekki svona góður hljómburður í
óperuhúsum úti í heimi og fólki finnst gaman
að fara í Hörpu.“
Það er margt fram undan hjá Þóru á næstu
misserum, fyrir utan hlutverk Víólettu og nýtt
starf hjá Listaháskólanum.
„Ég er að ljúka meistaranámi í kennslu-
fræðum og í haust er ég að fara að syngja Sálu-
messu Mozarts í Fílharmóníunni í München.
Svo taka við upptökur á Ragnheiði og nokkrar
sýningar að auki á henni í desember og fleira
skemmtilegt, svo ég þarf eiginlega að fá mér
tímaskipuleggjanda fyrir mig, ég næ ekki
alveg utan um þetta allt,“ segir Þóra og hlær.
La Traviata verður flutt í Norðurljósasal
Hörpu 6. og 7. september. Í aðalhlutverkum,
auk Þóru, verða þeir Garðar Thor Cortes,
Viðar Gunnarsson og Bergþór Pálsson. Með
önnur hlutverk fara þau Einar Dagur Jónsson,
Ingibjörg Ólafsdóttir, Guðrún Lóa Jónsdóttir,
Jón Ingi Stefánsson, Guðmundur Karl Eiríks-
son og Davíð Ólafsson. Hljómsveitarstjóri og
stjórnandi Óperukórsins er Garðar Cortes.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Stóru húsin
vilja nýta
fólkið eins
mikið og
hægt er og
eru ekkert
að spá í
það hvort
söngv-
arar brenni
fljótt upp,
þá ráða
þeir bara
einhverja
nýja.
26 viðtal Helgin 29.-31. ágúst 2014