Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.08.2014, Page 64

Fréttatíminn - 29.08.2014, Page 64
Helgin 29.-31. ágúst 2014 Á tak heilsurækt rekur tvær glæsilegar líkamsræktar-stöðvar á Akureyri. Önnur er við hliðina á Sundlaug Akureyrar við Skólaveg og hin við Strandgötu. Í vetur verður boðið upp á fjölmörg spennandi námskeið og opna tíma fyrir unga sem aldna. Eigendur Átaks heilsuræktar eru hjónin Guð- rún Gísladóttir og Ágúst H. Guð- mundsson. Guðrún hefur kennt lík- amsrækt frá árinu 1992. „Enn þann dag í dag veit ég fátt skemmtilegra en að kenna og meðfram því að sjá um reksturinn kenni ég á námskeið- um og tek að mér einkaþjálfun,“ segir hún. Aldrei hefur verið boðið upp á eins gott úrval tíma hjá Átaki og í ár. Að sögn Guðrúnar eru sérstök námskeið fyrir unglinga, sömuleiðis fyrir fólk 60 ára og eldri og í raun alla aldurshópa þar á milli. „Við verðum með morgunyoga fyrir 60 ára og eldri og sérstakt styrktarnámskeið fyrir þann hóp sömuleiðis. Þar verða gerðar góðar styrktaræfingar en engin hopp og læti. Námskeiðin hjá okkur eru mjög fjölbreytt svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.“ Hjá Átaki hefur lengi boðið upp á karlaþrek og Betra form fyrir kon- ur. Karlaþrek hefst mánudaginn 15. september. Það er lokað nám- skeið sem byggir á þol- og styrkt- aræfingum fyrir karlmenn á öllum aldri sem vilja bæta styrk sinn og þol. Betra form er aðhaldsnámskeið fyrir konur og hefst mánudaginn 1. september. Kennt verður fjórum sinnum í viku. Á námskeiðunum er mikið aðhald, fræðsla og hvatning svo þau eru frábær leið til að koma sér vel á veg í átt að bættri heilsu. Ýmsir opnir tímar eru á dag- skránni hjá Átaki í vetur, svo sem Foam Flex, Butt Lift og Hatha jóga. Nýr þolfimisalur hefur verið opn- aður í Átaki við Skólastíg en þar verður meðal annars boðið upp á Hot yoga. Áskrift að heilsu Nú eru ýmis góð tilboð hjá Átaki. Eitt þeirra er Áskrift að góðri heilsu en með henni kostar ársáskrift 6.900 krónur á mánuði. Sérstök til- boð eru fyrir námsfólk. Bæði við Skólastíg og Strandgötu er boðið upp á barnapössun á morgnana, kvöldin og um helgar. Þar er mjög góð aðstaða fyrir börnin sem hefur verið vel nýtt. Frábær hópur kennara Góður hópur kennara starfar hjá Átaki, sumir sem kennt hafa árum saman og aðrir nýjir. „Hjá okkur eru um sextán þolfimikennarar og ann- að eins af einkaþjálfurum. Hópur- inn samanstendur bæði af reynslu- miklum kennurum sem sumir hafa kennt í hátt í þrjátíu ár og öðrum nýjum og yngri,“ segir Guðrún. Nánari upplýsingar um dag- skrána hjá Átaki heilsurækt má nálgast á vefnum www.atakak.is og á Facebook-síðunni Átak heilsu- rækt. Unnið í samstarfi við Átak. Líf og fjör í Átaki heilsurækt Húsnæði Átaks við Strandgötu er byggt út í sjó og er útsýnið því fallegt. Mikið var lagt upp úr hönnun hússins og var innanhússhönnun í höndum þeirra Fanneyjar Hauksdóttur og Margrétar Jónsdóttur. Veturinn verður spennandi hjá heilsu- ræktinni Átaki á Akureyri. Á næstu dögum hefjast ýmis lokuð aðhaldsnámskeið sem og opnir tímar fyrir fólk á öllum aldri. Ýmis góð tilboð eru núna hjá Átaki heilsurækt á Akureyri og kostar ársáskrift 6.900 krónur á mánuði. Guðrún Gísladóttir eigandi Átaks heilsuræktar hefur kennt líkamsrækt í yfir tuttugu ár og er enn að. Hlíðasmára 10, 201 Kóp, S. 568 3868 www.matarfikn.is Esther Helga Guðmundsdóttir M.Sc. Stjórnar át- og þyngdarvandi lí þínu? NÝTT LÍF ! www.matarfikn.is Áhugasamir ha samband í síma 568 3868 eða sendið póst á matar kn@matar kn.is Næstu námskeið: Næsti NÝTT LÍF hópur hefst 02.10.14.: 5 vikna meðferaðarnámskeið með þriggja mánaða eftirfylgni, fyrir nýliða og þá sem þurfa að komast í "fráhald". Meðferðin hefst með helgarnámskeiði, síðan tekur við daglegur stuðningur við meðferða- og matarprógramm, vikulegir hópfundir, fyrirlestrar og kynningar m.a. á 12 spora star. Næstu FRÁHALD Í FORGANG framhaldshópar heast 03.09.14 og 22.09.14 5 vikna framhaldsnámskeið með þriggja mánaða eftirfylgni, fyrir þá sem vilja áframhaldandi stuðning og endurkomufólk. VIÐTÖL: Skimunarviðtöl, samtals- og dáleiðslumeðferðir Estherar Helgu, leiðbeiningar um mataræðisbreytingar í fráhaldi. Frá skjólstæðingum MFM miðstöðvarinnar: „Mér nnst alveg frábært að það séu til fagaðilar sem taka á þessum kvilla og nnst mér þið vinna frábært og mjög svo þarft verk. Áfram MFM“. NÁMSKEIÐ KVÍÐAMEÐFERÐARSTÖÐVARINNAR Eftirfarandi námskeið verða á dagskrá hjá Kvíðameðferðarstöðinni haustið 2014 Nánari upplýsingar má finna á www.kms.is Skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 eða kms@kms.is Námskeið við félagskvíða Sjálfsöryggi og sátt Streitustjórnun Öryggi í námi Námskeið við athyglisbresti Svefnnámskeið Íþróttastuðningshlífar Mikið úrval af stuðningshlífum frá Sporlastic. Vandaðar vörur á góðu verði. Sporlastic vörurnar fást einnig í ýmsum apótekum. FA S TU S _H _2 7. 05 .1 4 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16, 2.h. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.