Fréttatíminn - 29.08.2014, Page 66
heilsa Helgin 29.-31. ágúst 201466
S ífellt fleiri strákar velja nú samkvæmisdans sem íþróttagrein þó að stelp-
urnar séu nú alltaf í meirihluta,“
segir Edgar Gapunay, skólastjóri
hjá Dansskóla Sigurðar Hákonar-
sonar.
„Þó samkvæmisdans sé keppn-
isdans þá getur hann einnig verið
stökkbretti fyrir annað. Margir
ferðast um heiminn til að taka
þátt í fleiri danskeppnum, aðrir
fara í leiklist eða jafnvel í annars
konar dans. Dans er góð hreyfing
fyrir hvern sem er, byggir upp
sjálfstraust, eflir samskipti við
annað fólk og hefur að sjálfsögðu
forvarnargildi. Ég veit að það eru
fullt af strákum þarna úti sem
vilja koma í dans, dans er fyrir
alla, segir Eddi. Við ræddum við
þrjá stráka skólanum sem náð
hafa langt í dansinum.
Sigraði Hæfileikakeppni Ís-
lands
„Mér finnst mjög gaman að
dansa,“ segir hinn 13 ára Elvar
Kristinn Gapunay sem byrjaði
fjögurra ára í samkvæmisdöns-
um.
Elvar Kristinn hefur náð langt
þrátt fyrir ungan aldur náð eftir-
tektarverðum árangri; unnið
fjölda titla hér heima og keppt í
stórum keppnum erlendis. Hann
hefur komist í úrslit í Blackpool,
tók þátt í Ísland Got Talent og
sigraði Hæfileikakeppni Íslands á
Skjá einum árið 2012.
„Það var mjög gaman að taka
þátt í þessum keppnum í sjón-
varpinu. Þar fengum við að prófa
eitthvað nýtt og fara út fyrir okk-
ar þægindaramma,“ segir hann.
Hver er uppáhalds dansinn
þinn?
„Það er örugglega foxtrot,
hann er hægur og skemmtileg-
ur. Líka jive, það er mjög hress
dans.“
Ætlarðu að halda áfram í dans-
inum?
„Já, markmið mitt er að verða
danskennari. Ég ætla að halda
áfram í dansinum þar til ég verð
gamall og grár.“
Sigraði í Dans dans dans
Birkir Örn Karlsson sigraði í
Dans dans dans á RÚV fyrir
tveimur árum. Hann er á átjánda
ári og er nemi í Versló. Birkir
byrjaði að dansa níu ára gamall
í Dansskóla Sigurðar Hákonar-
sonar. „Ég byrjaði frekar seint
miðað við flesta en það hafði ekki
mikil áhrif. Það er aldrei of seint
að byrja ef þú hefur nógu mikinn
áhuga,“ segir Birkir.
Birkir æfir oftast sex sinnum
á viku á veturna og æfingarnar
geta verið frá einum og upp í þrjá
tíma í senn. „Það er alveg slatti
af tíma sem fer í þetta en það er
þess virði,“ segir Birkir sem er í
landsliðinu í dansi og er á leiðinni
á heimsmeistaramót í Moldavíu
og annað stórt mót í Englandi í
október.
Eru margir á þínum aldri í
samkvæmisdansi?
Flottir strákar í dansi
„Ég var í fótbolta á hverjum degi
en nú er ég kominn meira í dans-
inn,“ segir Hjörtur.
Hvað sögðu vinir þínir þegar þú
tókst dansinn fram yfir fótbolt-
ann?
„Fyrst fengu þeir alveg sjokk
en svo skildu þeir þetta og finnst
þetta rétt ákvörðun.“
Hann segist hafa kynnt mikið af
skemmtilegum krökkum í dans-
inum. Krakkarnir í bekknum hans
eru líka spenntir fyrir því að sjá
hann dansa í Billy Elliot. „Kenn-
arinn sagði strax að bekkurinn
myndi fara saman á sýninguna.“
Fjölbreytt námskeið í vetur
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
hefur verið með starfsemi í Kópa-
vogi í tæplega 35 ár. Núna á haus-
tönn 2014 eru fullt af námskeiðum
að hefjast eftir sumarfrí.
Yngstu nemendur dansskólans
eru þriggja ára en vinsælustu
námskeiðin eru einmitt í barna-
dönsum fyrir þriggja til fimm ára.
Fyrir sex ára og eldri eru nám-
skeið í samkvæmisdönsum. Fjöl-
breytt námskeið eru í boði fyrir
fullorðna í samkvæmisdönsum,
bæði fyrir byrjendur og lengra
komna.
Auk þess er Dansskólinn í sam-
starfi við nokkra grunnskóla í
Kópavogi og Garðabæ um að bjóða
upp á dans í Dægradvöl. Námskeið-
in eru fyrir krakka í 1.-4. bekk.
Skráning stendur nú yfir á
heimasíðu skólans, Dansari.is, en
þar er einnig að finna nánari upp-
lýsingar um námskeiðin. Einnig er
hægt að hringja í síma 564-1111.
Unnið í samstarfi við
Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.
„Það eru nokkrir á Íslandi sem
eru jafn gamlir mér en ég er einn af
þeim eldri. Ætli þetta sé ekki aldur-
inn þegar maður ákveður að fara af
alvöru út í þetta eða hætta. Ég ætla
að halda áfram.“
Fékk hlutverk Billy Elliot
„Mér finnst alveg frábært í dans-
inum,“ segir Hjörtur Viðar Sigurðs-
son, ellefu ára. Hann er einn þeirra
sem valdir voru í hlutverk Billy El-
liot í Borgarleikhúsinu í vetur eftir
strangar æfingar. Hjörtur kynntist
dansinum í Dægradvöl á frístunda-
heimili í Kópavogi fyrir tveimur
árum og hóf í kjölfarið æfingar hjá
Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.
Hressir dansstrákar í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar. Frá vinstri eru Elvar, Birkir og Hjörtur.
Bananadrykkur
2 vel þroskaðir bananar
4 til 5 dl soya-mjólk eða önnur mjólk
1 til 2 tsk kakó
5 döðlur
1 tsk hnetusmjör (má sleppa)
Orkuríkur og góður
bananadrykkur
Mikilvægt er að borða hollan og næringarríkan mat, bæði
fyrir og eftir æfingu. Bananar, kakó og hnetusmjör eru góð
blanda. Þennan drykk tekur enga stund að útbúa í blandara.
1 tsk vanillusykur (má sleppa)
Nokkrir klakar (má sleppa)
Skellið öllu í blandara og blandið í
10 til 15 sekúndur.