Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 73
heilsaHelgin 29.-31. ágúst 2014 73
FYRIRLESARAR OG KENNARAR
Heilsunámskeið
Haust
Vetur
Sími 512 8040 | www.heilsuhotel.is | heilsa@heilsuhotel.is
Heilsuhótel Íslands | Lindarbraut 634 | 235 Reykjanesbær
Hjúkrunarfræðingur BSc heilsuvísindi Yogakennari
Ásdís Ragna
Einarsdóttir
Grasalæknir
Heilsa, hvíld og gleði
Vigdís
Steinþórsdóttir
Chad
Keilen
Kristín
Stefánsdóttir
2. - 26. september, Heilsunámskeið , 2 vikur
Frábært tækifæri, enn laust.
*Staðfestingargjald 40.000.- Flest stéttarfélög og fyrirtæki styrkja þátttakendur
2. -16. janúar, pantið tímanlega vinsæll tími
H já Heilsuhóteli Íslands starfar hópur sérfræðinga á sviði heilsu. Einn þeirra er Chad Keilen, nudd- og heilsuráðgjafi.
Chad er frá Minneapolis og flutti hingað
til lands með íslenskri eiginkonu sinni
árið 2007. Heilsusamlegt líferni án öfga
er ástríða Chad og fer hann með gesti hót-
elsins í gönguferðir á morgnana, sér um
kennslu í léttri leikfimi, nudd og veitir ráð-
gjöf um hreyfingu. „Á Heilsuhótelinu veiti
ég gestum persónulega ráðgjöf um hreyf-
ingu. Þegar gestir fara fá þeir æfingaáætlun
til að geta haldið áfram að gera æfingar
heima að lokinni dvöl hjá okkur. Nær dag-
lega held ég svo fyrirlestra um ýmis mál-
efni tengd heilsu, meltingu og mataræði.“
Markmiðasetning mikilvæg
Þegar verið er að stíga skref í átt til bættrar
heilsu er lykilatriði að setja raunhæf mark-
mið og segir Chad mikilvægt að hugsa til
framtíðar þegar markmiðin eru ákveðin.
„Við hvetjum fólk til að hreyfa sig til að
bæta lífsgæðin en ekki endilega til að vinna
keppni. Það gerist stundum þegar keppnis-
skapið nær yfirhöndinni að fólk hugsar bara
um að verða sem sterkast á sem skjótastan
hátt. Það er ekki endilega það besta því
minna er oft betra til að lifa við góða heilsu
fram á efri ár. Það er útbreiddur misskiln-
ingur að til að líta vel út þurfi fólk að vera í
ræktinni í margar klukkustundir á dag og
aldrei að borða súkkulaði eða fá sér pítsu.
Lykillinn er hófsemi og að fólk sjái stóru
myndina og hreyfi sig reglulega en fyllist
ekki samviskubiti þegar það borðar eitt-
hvað óhollt.“
Jafnvægi er lykillinn
Í nútímasamfélagi er algengt að fólk vinni
við skrifborð í átta tíma alla virka daga ár
eftir ár og hreyfi sig lítið sem ekkert í frí-
tímanum. Þeim lífsstíl hefur verið líkt við
reykingar á árum áður því afleiðingarnar
eru mjög slæmar og þekktar en þó er stór
hluti fólks sem tekur ekki mark á aðvör-
unum. „Slíkur lífsstíll er ógn við heilsuna.
Líkaminn venst því að sitja og halla sér
fram að tölvunni og fólk getur jafnvel ekki
lengur staðið beint í baki. Það er mikilvægt
fyrir líkamann að ná jafnvægi og fá hreyf-
ingu á móti allri kyrrsetunni.“
Chad bendir á að ýmsir aðrir þætti í lífi
nútímamanneskjunnar stuðli að kyrrsetu
eins og til dæmis sjónvarp og tölvurnar
sem fólk notar í frítíma sínum. „Í mörgum
tilfellum krefst daglegt líf ekki hreyfingar.
Sem dæmi er tiltölulega auðvelt er að nálg-
ast mat og fólk þarf ekki lengur að veiða sér
fæðu, heldur getur keyrt í búðina.“
Aldrei of snemmt að huga að heilsunni
Gestir Heilsuhótelsins eru í mis góðu
líkamlegu formi og segir Chad í raun aldrei
of snemmt að byrja að huga að heilsunni.
„Fólk þarf ekki að vera í ofþyngd eða við
slæma heilsu til að dvelja á Heilsuhótelinu.
Það hafa allir gott af heilsumeðferð og að
læra eitthvað nýtt. Hreyfing og heilsusam-
legt líferni er svipað og tannhirða. Henni
þarf að sinna daglega en ekki bara eftir að
tennurnar skemmast.“
Nánari upplýsingar um Heilsuhótel Ís-
lands má nálgast á vefnum www.heilsu-
hotel.is og á Facebook-síðunni Heilsuhótel.
Næsta tveggja vikna námskeið Heilsuhótels
Íslands verður dagana 12. til 26. september.
Fyrirspurnir og pantanir má senda á net-
fangið info@heilsuhotel.is.
Unnið í samstarfi við
Heilsuhótel Íslands
Lykillinn er hófsemi
og að fólk sjái stóru
myndina og hreyfi
sig reglulega en fyll-
ist ekki samviskubiti
þegar það borðar
eitthvað óhollt.
Chad Keilen, nudd-
og heilsuráðgjafi.
Kyrrseta jafn slæm og reykingar
Gestir Heilsuhótels
Íslands í Reykja-
nesbæ fá allir pers-
ónulega ráðgjöf um
lífsstíl og hreyfingu.
Chad Keilen, nudd-
og heilsuráðgjafi
hjá hótelinu, segir
hófsemi lykilinn
að góðri heilsu til
framtíðar.
Chad Keilen, nudd- og heilsuráðgjafi hjá Heilsu-
hóteli Íslands, segir aldrei of snemmt að byrja að
huga að heilsunni. „Fólk þarf ekki að vera í of-
þyngd eða við slæma heilsu til að dvelja á Heilsu-
hótelinu. Hreyfing og heilsusamlegt líferni er
svipað og tannhirða. Henni þarf að sinna daglega
en ekki bara eftir að tennurnar skemmast.“