Fréttatíminn - 29.08.2014, Síða 74
heilsa Helgin 29.-31. ágúst 201474
Nú get ég auð-
veldlega farið
í ferðalög og
fór til dæmis til
Kína nýlega.
Helga Rún Pálsdóttir
Helga Rún Pálsdóttir er klæðskerameistari, leikmynda- og búninga-
hönnuður, fatahönnuður og hattadama og rekur saumaverkstæði
á heimili sínu. Fyrir fimm árum fór hún að finna fyrir verkjum í
hnjám, sökum slitgigtar. Hún átti erfitt með að ganga langar vega-
lengdir og vaknaði iðulega á nóttunni vegna stöðugra verkja. Með
notkun á Unloader One hnéspelkum frá Össuri hefur Helga endur-
heimt fyrri lífsgæði og getur nú stundað hreyfingu og ferðalög.
Nýtt líf með Unloader
One hnéspelku
H elga Rún Pálsdóttir er um fimmtugt og hefur átt við hné-
vandamál að stríða í fimm ár
vegna slitgigtar. „Brjóskið í
hnjánum hefur eyðst svo þar
nuddast bein í bein. Ég var
með mikla verki og bólgur
vegna þessa. Næst á dag-
skrá hjá mér var að fara í
hnéskipti en í rauninni er ég
of ung því gerviliðir endast
yfirleitt ekki nema í 10 til
15 ár,“ segir Helga.“ Eina
úrræðið, fyrir utan gigtar-,
verkja- og svefnlyf, var að
fá spelkur. Til að byrja með
hafði hún ekki mikla trú á
því að spelkur myndu hjálpa.
„Mér leist ekki vel á að þurfa
að nota spelkurnar í fyrstu
en nú geng ég með þær alla
daga og finnst það frábært.
Það varð fljótlega alveg gríð-
arleg breyting og ég fann
mun minna fyrir verkjunum.
Eftir dálítinn tíma hurfu svo
nær allir næturverkirnir og
í fyrsta sinn í mörg ár gat ég
sofið heila nótt.“
Þegar verkirnir voru sem
mestir átti Helga erfitt með
að stunda almenna hreyf-
ingu og þyngdist því. „Ég
gat ekki hreyft mig að neinu viti
og treysti mér því til dæmis ekki
í ferðalög til útlanda. Ég gat ekki
gengið götuna mína á enda og til
baka. Þegar ég var komin út á enda
hringdi ég í manninn minn og bað
hann að sækja mig.“
Breytt líf með spelkunni
Líf Helgu hefur tekið miklum
breytingum eftir að hún byrjaði
að ganga með spelkurnar og nú
getur hún ekki hugsað sér daginn
án þeirra. Hún er nú alveg hætt að
taka gigtar- og verkjalyf og er með
spelkurnar frá morgni til kvölds og
hefur endurheimt mikið af þeim
lífsgæðum sem hún varð af vegna
verkjanna. „Nú get ég auðveldlega
farið í ferðalög og fór til dæmis til
Kína nýlega. Svo geng ég langar
vegalengdir án vandræða sem er
alveg dásamlegt.“
Mælir með Slitgigtarskólanum
Í vor sótti Helga námskeið hjá Slit-
gigtarskólanum og segir hún námið
þar hafa hjálpað sér mikið. „Þar
læri ég æfingar hjá sjúkraþjálfur-
unum og byggi mig upp í kringum
hnén. Ég vildi að ég hefði haft þess
kost strax í byrjun þegar verkirnir
hófust að sækja námskeið þar,“
segir Helga en hún var svo heppin
að vera í fyrsta námskeiðshópnum
hjá Slitgigtarskólanum. Næstu
námskeið verða haldin á þremur
stöðum; í Reykjavík, Hafnarfirði
og á Akureyri. Nánari upplýsingar
um Slitgigtarskólann má nálgast
á síðunni www.slitgigt.is og í síma
555 4449.
Unnið í samstarfi við
Össur.
Unloader
One-hné-
spelkan
veitir hnénu
stuðning og
dregur úr verkjum
og notendur geta
gengið með hana
allan daginn. Í
henni eru tveir
borðar sem
létta álagið
af slitnum
liðflötum og
auðvelda sjúk-
lingum að stíga
í fótinn. Borð-
arnir aðlagast
hreyfingum sem
gerir það að verkum
að álagið flyst af
slitna liðfletinum yfir á þann heila. Spelkan
er tiltölulega fyrirferðarlítil, létt og með-
færileg. Unloader One-spelkan er árangur
margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu
Össurar. Nánari upplýsingar í síma 425-3400
Hvað er slitgigt?
Slitgigt er algengasta gerð gigtar.
Verkur vegna slitgigtar orsakast
af sliti í hnéliðnum og bólgum sem
því fylgja. Slitgigt í hné kemur
til þegar brjóskið sem hylur og
dempar beinendana brotnar niður
og veldur sársauka og hreyfingar-
missi þegar slitnir liðfletir nuddast
saman.
Á æfingum er nauðsyn-legt er að huga að því að líða vel svo okkur
langi að koma aftur. Fríða
Rún Þórðardóttir, íþróttanær-
ingarfræðingur og hlaupari
með meiru, sendi á dögunum
frá sér bókina Góð næring –
betri árangur í íþróttum og
heilsurækt og segir hún ein
verstu byrjendamistökin að
mæta fastandi á æfingu og
líða hræðilega meðan á henni
standi. „Þá er hætt við að
fólk annað hvort langi ekki
aftur eða hreinlega treysti sér
ekki,“ segir hún og leggur
áherslu á að fólk sem fylgi
lágkolvetnis lífsstíl geti orðið
orkulaust á æfingum og jafn-
vel fundið fyrir alvarlegri
svimatilfinningu.
Skipulag lykillinn að
árangri
Ætli fólk að mæta á æf-
ingu strax eftir vinnu, til
dæmis um klukkan fjögur
eða fimm, er nauðsynlegt
að borða millimáltíð á
milli klukkan þrjú og
fjögur. „Stærri máltíð
fjórum klukkustundum
fyrir æfingu og létt milli-
máltíð tveimur klukku-
stundum fyrir er ágæt regla
sem ekki ætti að vera erfitt
að fylgja með smá skipulagi.
Þegar ég spyr fólk hvers
vegna það hafi ekki farið á
æfingu er orkuleysi algengt
svar. Oft kemur í ljós að
síðasta máltíð var í hádeginu
og skýrir vel af hverju fólk fer
heim en ekki á æfingu.“
Hún segir alltaf gott að hafa
í huga að hraði og streita á
matmálstímum séu ekki góð
fyrir meltinguna og geti jafn-
vel ýtt undir hlaupasting og
vanlíðan á æfingu, sem og
uppköst sé æfingin mjög erfið.
Æskilegt að borða fyrir
morgunæfingar
Að sögn Fríðu er oftast æski-
legast að borða
fyrir æfingar, þær
séu hins vegar mis
krefjandi og því
breytilegt hversu
mikið þurfi. Fyrir
styrktaræfingar
og púltíma sé mik-
ilvægt að borða vel
en þegar ganga
á í rólegheitum í
hálfa klukkustund
er orkuþörfin
ekki eins mikil.
Hún segir það þó
stundum tilfellið að
fólk hafi ekki lyst á að borða
mikið snemma morguns.
„Flestir ættu þó að þola hálfan
til heilan banana, aðrir myndu
fá sér brauðsneið eða skál
af morgunkorni eins og til
dæmis Cheeriosi. Þeir sem
ekki þola fasta fæðu gætu
fengið sér glas af
eplasafa, jafnvel
þynnt hann að-
eins út með vatni.
Sumir myndu
hins vegar fá
sér væna skál af
hafragraut með
fræjum og rús-
ínum og finnast þeir ekki geta
farið á æfingu án þess.“
Mikilvægt að fylgjast með
lit þvagsins
Alltaf er mikilvægt að drekka
nóg af vökva. Fríða segir gott
að fylgjast með litnum á þvag-
inu og miða við að það sé ljós-
leitt, eins og dauflitað sítrónu-
vatn. „Eftir því sem liturinn er
dekkri, þeim mun meiri líkur
eru á að líkaminn sé kominn
í eða á leiðinni í vökvaskort.“
Betra er að drekka oftar og
minna í einu en mjög mikið
magn sjaldan.
Máltíð eftir æfingar
Íþróttafólki er ráðlagt að
borða 20 til 30 mínútum eftir
að æfingu lýkur. Stuttu eftir
æfingar er blóðflæði um lík-
amann mikið, hann er heitur
og hormón á sveimi sem hafa
það hlutverk að snúa niður-
brotsferlinu, sem oft tengist
stífum æfingum, við og hefja
uppbyggingar- og viðgerðar-
ferlið. „Það ferli þarf orku og
næringu sem líkaminn fær
hvergi annars staðar en úr
fæðunni. Ef kvöldmáltíðin er
innan við klukkustund frá því
að æfingunni lýkur er í lagi að
notfæra sér hana sem fyrstu
máltíð eftir æfingu. Þá er
ekki þörf á því að fá sér stóran
próteinshake á leiðinni heim
úr ræktinni þegar kvöldmatur
sem inniheldur kjöt eða fisk
bíður í ofninum.“
Ekki æfa á fastandi maga
Fríða Rún
Þórðardóttir, nær-
ingarfræðingur,
næringarráðgjafi,
íþróttanæringar-
fræðingur og hlaup-
ari, sendi á dög-
unum frá sér bók um
næringu í íþróttum
og heilsurækt. Fríða
Rún gefur lesendum
Fréttatímans ýmis
góð ráð um næringu
og matarvenjur í
kringum æfingar.
Á dögunum sendi Fríða
Rún frá sér bókina Góð
næring – betri árangur í
íþróttum og heilsurækt.
Fríða Rún Þórðardóttir
næringarfræðingur.
Þegar æft er á fast-
andi maga er hætt
við að fólk annað
hvort langi ekki
aftur á æfingu eða
treysti sér ekki aftur.
„Stærri máltíð fjórum
klukkustundum
fyrir æfingu og létt
millimáltíð tveimur
klukkustundum fyrir
er ágæt regla sem
ekki ætti að vera
erfitt að fylgja með
smá skipulagi,“ segir
Fríða Rún. Ljósmynd/
NordicPhoto/GettyImages