Fréttatíminn - 29.08.2014, Page 76
76 ferðalög Helgin 29.-31. ágúst 2014
Vorferðir Aukið úrVAl hAgstæðrA tilboðA fyrir íslenskA ferðAmenn
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
Þúsundir fermetra af flísum með 20 -70% afslætti
Teppi og dúkar 25-70% afsláttur
ÚTSALA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...
Revestimiento
Ace Negro 33,3x100 cm
Ace Blanco 33,3x100 cm
Pavimento
Crystal Floor White 33,3x33,3 cm
Crystal Floor Dark 33,3x33,3 cm
DDaglega
D3 vítamín styrkir m.a. ónæmiskerfi, tennur og bein
og hjálpar til við upptöku kalks.
Á vorin eykst úrval ferðaskrif-stofanna á borgarferðum og það eru því margir sem
bregða sér í stutta utanlandsferð
á þessum árstíma. Þar sem erlend
lágfargjaldaflugfélög hafa aukið um-
svif sín hér á landi umtalsvert þá er
Hræódýrir farmiðar í lok vetrar
Þeir sem ferðast með lítinn
farangur geta auðveld-
lega komist út fyrir lítið
eftir nokkra mánuði þegar
hitastigið fer hækka á ný í
nágrannalöndunum.
í dag hægt að finna þó nokkuð af
farmiðum út í heim í mars, apríl
og maí fyrir nokkra þúsund króna
seðla. Þeir sem geta skipulagt
ferðalagið með löngum fyrirvara
geta því flogið út fyrir lítið.
Ódýrast til dýra landsins
Efnahagur Svisslendinga er í góðu
jafnvægi og gengi frankans þeirra
er hátt. Það er því ekki ódýrt
að vera ferðamaður í landinu en
samt ekki dýrara en til dæmis í
Skandinavíu, París eða London.
Þú borgar til að mynda álíka mikið
fyrir borða kjötbollur í óperu-
kjallaranum í Stokkhólmi og fyrir
ostafondú út á Genfarvatni. Til
svissnesku borgarinnar má finna
far með easyJet í mars á rúmar
sex þúsund krónur og báðar leiðir
því á innan við fjórtán þúsund.
Reyndar bætist um átta þúsund
króna töskugjald ef ferðast er með
meira en handfarangur. Ódýrustu
fargjöld breska félagsins til Basel
eru álíka lág.
Norskir regndropar
Í Bergen er meðalhitinn yfir vetur-
inn aðeins hærri en í öðrum norsk-
um borgum en ókosturinn er sá að
það rignir reglulega á borgarbúa.
Þeir sem láta skúrir ekki á sig fá
geta heimsótt frændur okkar í vor
og aðeins borgað tæpar fimmtán
þúsund krónur fyrir farið báðar
leiðir. Það er flugfélag heima-
manna, Norwegian, sem býður
svona vel og farmiðar félagsins til
Oslóar eru ögn dýrari. Norwegian,
líkt og easyJet, rukkar hins vegar
fyrir innritaðan farangur. Það er
því annað hvort að sitja í regngall-
anum og stígvélunum í vélinni eða
borga aukalega fyrir stóra tösku.
Sjálfstæðir eða ekki
Það gæti farið svo að Edinborg
verði bráðlega höfuðborg í sjálf-
stæðu Skotlandi. Hvað sem því
líður þá er hægt að finna töluvert
af flugmiðum til borgarinnar á
innan við tíu þúsund krónur í vor
með easyJet og sömu sögu er að
segja um fargjöld félagsins til Bri-
stol og Belfast.
Aston Villa í vor
Fyrir nærri tveimur áratugum
spiluðu leikmenn Aston Villa í
Henson búningum en skiptu svo
yfir í Hummel. Til heimaborgar
liðsins mun hið breska Flybe fljúga
frá Keflavík í allan vetur en það er
aðeins pláss fyrir rúmlega áttatíu
farþega í þotum félagsins. Ódýr-
asti miðinn, fram og til baka, er á
um 18 þúsund krónur. Það er álíka
og það kostar að fara aðra leiðina
með Icelandair til borgarinnar.
Hins vegar rukkar íslenska félagið
ekki fyrir töskurnar, líkt og það
breska gerir.
Á Túristi.is má sjá hvaða flug-
félög fljúga hvert í vetur og gera
um leið verðsamanburð á hóteltil-
boðum.
Kristján Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Sá sem bókar vorferð til Bergen í dag getur flogið út og heim aftur fyrir um fimmtán
þúsund íslenskar krónur. Ljósmynd/Sónia Arrepia/Visitnorway.com
Þó Genf sé með dýrari borgum
þá kostar ekki mikið að fljúga
þangað í mars, alla vega ekki
ef gengið er frá fluginu í dag.