Fréttatíminn - 29.08.2014, Qupperneq 92
Í takt við tÍmann edda gunnlaugsdóttir
Finnst Snapchat hundleiðinlegt
Staðalbúnaður
Ég er ekkert mjög fríkuð í klæða-
burði, ég er mikið í skyrtum og
gallabuxum og reyni að klæðast
þægilegum fötum. Ég þoli ekki
óþægileg föt. Svo er ég stundum
í fínni fötum eins og kjólum og
samfestingum. Ég geng yfirleitt í
Converse-skóm eða ökkla-boots.
Ég kaupi fötin mín oftast úti en
mér finnst gaman að finna eitt-
hvað hérna heima líka. Núorðið
kaupi ég yfirleitt færri flíkur en
fleiri og legg áherslu á gæðin.
Hugbúnaður
Ég á mjög stóra fjölskyldu og er
mikið með henni og vinkonum
mínum þegar ég er á Íslandi. Ég
fer mikið á kaffihús og út að borða
með vinkonum mínum og mér
leiðist sjaldan. Foreldrar mínir eru
líka duglegir að heimsækja mig í
London. Ég hef ekki mikinn tíma
til að fara út að skemmta mér og
ég er líka léleg við að horfa á sjón-
varpið. Ef ég horfi á eitthvað þá
er það Friends og stundum Suits.
Mér er dugleg við að lesa og hef
mjög gaman af listum yfirleitt.
Vélbúnaður
Ég er með iPhone 4 og bíð eftir því
að hann skemmist alveg svo ég geti
fengið mér nýjan. Ég er ekkert rosa
góð að nota öpp, mér hundleiðist
Snapchat en ég fer auðvitað inn á
Facebook. Ég fer eiginlega bara
á Instagram og þess vegna er ég
spennt að fá mér nýjan síma með
góðri myndavél, mér finnst svo
gaman að breyta myndum.
Aukabúnaður
Pabbi og mamma eru rosa góð að
elda og við borðum oft saman. Mér
finnst ítalskur matur mjög góður
og fer oft niður í bæ og fæ mér pítsu
og rauðvín. Hér heima finnst mér
Sakebarinn mjög góður en Fiskmark-
aðurinn er í uppáhaldi, hann er svona
spari. Ég er mjög dugleg að fara út
að borða með fólki sem heimsækir
mig í London og þá er skemmtileg-
ast að fara um Notting Hill. Það er
líka frábær staður fyrir safnara eins
og mig. Mér finnst mjög gaman að
ferðast og reyni að nýta mér að það
er mjög ódýrt að ferðast um Evrópu
frá London. Því miður eru engin
ferðalög á planinu á næstunni.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Edda Gunnlaugsdóttir er 23 ára Garðabæjarmær sem er að
læra textílhönnun í London Col l e ge of Fashi on. Hún skrifar auk
þess um tísku og listir á Femme.is. Edda elskar Instagram og
Fiskmarkaðinn.
Klapparstígur 40 101 reyKjavíK sími 5714010
Lokadagar útsölu 50 - 70 %
af öllum útsöluvörum
finndu okkur á facebook
„Það verða nokkrir fastir liðir, eins og
sýningin á fornbílum á Tungubökkum,
grænmetismarkaðurinn í Mosfellsdal
og matar-og handverksmarkaðurinn í
Álafosskvosinni,“ segir Aldís Stefáns-
dóttir, forstöðumaður þjónustu og upp-
lýsingamála hjá Mosfellsbæ.
Á laugardagskvöldið verða útitón-
leikar á miðbæjartorginu. „Í ár koma
fram okkar menn úr Kaleo, sem eru
einmitt Mosfellingar, systkinin Páll
Óskar og Diddú og það er Jógvan
Hansen sem mun halda utan um dag-
skrána. Svo hefst barnadagskráin á
laugardaginn klukkan 13 á Hlégarðs-
túninu en auk þess verða hoppukast-
alar víðsvegar um bæinn,“ segir Aldís.
Ullarvinnsla hefur lengi verið stund-
uð í Mosfellsbæ og því verður þema
hátíðarinnar í ár ullin. „Við erum með
nokkra viðburði sem eru tengdir ullar-
þemanu. Meðal annars höfum við látið
hanna Mosfellsbæjarpeysu, sem er
lopapeysa með skjaldamerki Mosfells-
bæjar og hana verður hægt að nálgast
í Álafossbúðinni eða ná í uppskriftina á
netinu. Svo verður ullarpartí í Álafoss-
kvosinni á föstudagskvöldinu þar sem
allir eru hvattir til að mæta í lopapeys-
um,“ segir Aldís.
Aldís segir bæjarbúa vera sérstak-
lega spennta fyrir kjúklingaveislunni
en það var Mosfellingurinn Hjalti Úrs-
us sem fékk hugmyndina og skipulegg-
ur veisluna. „Það hefur alltaf verið heil-
mikil kjúklingaframleiðsla í bænum,
hér er bæði ræktun, sláturhús og fram-
leiðsla, og okkur langaði að draga at-
hyglina að því. Það er gaman að tengja
hátíðina við mat og það verður boðið
upp á kjúkling við Varmá á laugardeg-
inum. Svo fékk Hjalti Úrsus veitinga-
hús úr bænum, eins og td. Fabrikkuna
og Ghandi, til að bjóða upp á litla rétti á
góðu verði. Þetta verður algjör veisla.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
HátÍð Í túninu Heima Í mosfellsbæ
Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, er haldin í ellefta
sinn nú um helgina. Mosfellska hljómsveitin Kaleo, systkinin
Páll Óskar og Diddú og Jógvan Hansen eru þeirra sem troða
upp á tónleikunum á laugardagskvöld. Þema hátíðarinnar í
ár er ullin í öllu í öllu sínu veldi en auk þess verður blásið til
kjúklingaveislu við Varmá.
Systkinin Páll Óskar og Diddú munu troða upp á laugardagskvöldið, auk Kaleo og
Jógvan Hansen.
Ullarpartí og
kjúklingaveisla
92 dægurmál Helgin 29.-31. ágúst 2014