Fréttatíminn - 29.08.2014, Síða 96
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
RagnheiðuR SkúladóttiR
Bakhliðin
Víðsýnn töffari
Aldur: 48 ára.
Maki: Bjarni Jónsson.
Börn: Á tvo stjúpsyni, Hall og Jökul.
Menntun: BA og MSA í leiklist
Starf: Framkvæmdastjóri og listrænn
stjórnandi leiklistarhátíðarinnar
LÓKAL.
Fyrri störf: Deildarforseti sviðlista-
deildar Listaháskólans, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar.
Áhugamál: Sviðslistir, bókmenntir og
stangveiði.
Stjörnumerki: Krabbi.
Stjörnuspá: Breytingar breytinganna
vegna hafa sjaldnast nokkuð upp á
sig. Engin spenna er í loftinu og því
skaltu taka lífinu með ró.
Hún Ragnheiður er klár, skemmtileg, gagnrýnin, víðsýn og ákveðin,“ segir
Guðrún Vilmundardóttir, útgáfu-
stjóri Bjarts og vinkona Ragn-
heiðar. „Þetta er frábær blanda,
bara eins og gott leikhús. Hún
er kokkur af guðs náð og þolin-
móður kennari (hún kenndi mér
á veiðistöng úti í garði í sumar),
unaðslegur gestgjafi og sálu-
bjargandi göngufélagi. Svo er
hún bara svo töff.“
Ragnheiður Skúladóttir er framkvæmda-
stjóri og listrænn stjórnandi leiklistarhá-
tíðarinnar LÓKAL, sem hófst í Reykjavík
síðastliðinn miðvikudag og stendur fram
á næstkomandi sunnudag, 31. ágúst.
LÓKAL er alþjóðleg leiklistarhátíð sem
ætlað er að kynna nýjustu strauma og
stefnur í sviðslistum fyrir áhorfendum
á Íslandi og stuðla að bættum tengslum
innlendra og erlendra listamanna.
Hrósið...
...fær Ísleifur Þórhallsson
og Sena fyrir að gleðja um
17.000 Íslendinga með tón-
leikum Justin Timberlake um
síðustu helgi.
MARSHALL
hátalari
Nú einnig til í brúnu
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is
Verð 99.900,-