Þjóðlíf - 01.11.1987, Qupperneq 15

Þjóðlíf - 01.11.1987, Qupperneq 15
I N N LENT HELGI FRIÐJÓNSSON þjálfa HEIMSPEKILEGA VÍDD. Og svona halda þau áfram aö velta fyrir sér hlutunum undir stjórn kennarans. Hann heldur sig fast v'ð oröalag krakkanna og skráir öll atriöin á íófluna sem mynda umræðuskrá kennslu- stundarinnar. „Það hefur sýnt sig aö þaö reynist best ef umræöurnar spinnast út frá hugmyndum krakkanna sjálfra um efni bókarinnar sem við lesum," segir hann í sam- tali við ÞJÓÐLÍF. „Að loknum lestrinum spyr ég krakkana hvaö þau vilji ræða úr því sem Iesiö var; sjónarmiö sögupersóna, ein- stakar setningar, orö, hugmyndir eöa spurn- 'ugar sem vakna meö nemendunum koma öll greina. Þá legg ég fyrir þau beitur, t.d. ukveðin hugtök eins og skemmtilegur og spennandi, og reyni aö ná þeim á flug - oftast fekst það. Með þessu læra þau t.d. aö gera Sfeinarmun á skyldum hugtökum og draga skil á milli hlutanna. Einn mikilvægur ávinningur af þessu er að samræðurnar leiða smátt og smátt til þess aö hörnin fara aö hlusta á hvaö hin hafa að j*egja, spyrja hvert annað og vísa í þaö sem "ln hafa sagt. Ég er þegar farinn að sjá þetta gerast hjá þessum krökkum þó að námskeið- 'ð sé ekki nema hálfnaö," segir hann. Hreinn segir að í Bandaríkjunum sé heim- sPeki með börnum víða viðurkennd náms- 8fein „og er stundum sagt að engin náms- 8rein skólanna sé betri til að kenna börnum ^ugsun," segir hann. Hann er sjálfur sér- ^henntaður á þessu sviði og vann doktors- verkcfni sitt út frá þessu námsefni við Montclair State University í Bandaríkjun- i,Það var á seinni hluta sjöunda áratugar- ltls uð heimspekingurinn Matthew Lipman Se«ist niður til að skrifa heimspekilegar . aldsögur fyrir börn og unglinga. Hann var a þeirri skoðun að það skorti heimspekilega vídd í kennslu barna og unglinga. Síðan hef- ur þessi grein smám saman aukist enda hefur reynslan með námsefni Lipmans staðfest að það má þjálfa börn í heimspekilegum sam- ræðum og að þau hafa gaman af þessu. Þetta hef ég ííka fundið hjá þeim hópum sem ég er með hérna. Þau mæta vel og eru öll virk í samræðum allan tímann. Eins hafa foreldrar þegar haft samband við mig og lýst yfir ánægju sinni með reynslu barnanna," segir hann. Hreinn segir að um og uppúr tólf ára aldrinum fari börn að líkjast fullorðna fólki- nu og ýta frá sér heimspekilegri yfirvegun. „Þankagangur fimm til níu ára bama er heimspekilegri en eldri barna. Ef hægt væri að ná börnum mjög ungum á svona nám- skeið, þá er hægt að halda þessari heimspeki- legu vídd opinni fram eftir öllum aldri." ERFITT EN SKEMMTILEGT. „Enn sem komið er hef ég ekki ákveðið hvort ég verð með námskeið fyrir yngri börn en tíu og ellefu ára, en viðtökurnar sem þetta nám- skeið fékk í haust hvetur mig mjög til að halda þessu áfram á næsta ári og taka þá fleiri aldurshópa í þjálfun. Þessi kennsla er erfið og krefst þolinmæði, en hún er líka skemmti- leg því börnin eru svo gefandi á þessu sviði,“ segir Hreinn og bætir í lokin við stuttri lýs- ingu á æfingakennslu sem hann stundaði í Bandaríkjunum: „Mér eru alltaf minnisstæðar samræður sem ég átti með sjö ára börnum þar sem rætt var um býflugur og stungur þeirra. Einn nemenda varpaði því fram að býflugur hefðu sama rétt til lífs og menn. Þetta leiddi til samræðna um réttindi dýra, barna og full- orðinna, hver þau væru og hvaðan komin. Meðal þessara barna mátti finna fulltrúa heimspekingsins Descartes (dýr hafa ekki sál • Þegar við lítum aftur inn í bekkinn hafa þau af einh verjum ástæðum upphafið vangaveltur um skólaskyldu. og flugur eru vissulega tilfinningalausar), og Hobbes (hver maður hefur náttúrlegan rétt til að gera allt sem hann getur til að halda sér á lífi) og svo Rousseau (allir menn eru góðir að eðlisfari en þeir lenda í slæmum félags- skap og fara að troða hver á öðrum). Niður- stöður barnanna mörkuðu engin tímamót í sögu heimspekinnar en í þessu tilviki held ég að hugmyndir og hugsun barnanna um inn- tak hugtaksins „réttindi" hafi skýrst og orðið þeim til frekari umhugsunar, og það kom ljóslega fram að við gátum ekki skoðað hug- takið eitt og sér. Þetta held ég að hafí verið strax nokkur ávinningur," segir hann. Þegar við lítum aftur inn í bekkinn hjá tíu ára börnunum hafa þau af einhverjum ástæðum upphafið vangaveltur um skóla- skyldu: „Mér finnst frjáls mæting í skóla vera slæm hugmynd,“ segir Hákon. Geiri tekur undir þetta og segir: „Já, þetta yrði eins og í Háskólanum þar mætir fólk bara í tímana ef því dettur það í hug.“ Stebbi: „Flestir vilja læra til að verða menntaðir og þó það væri frjáls mæting þá myndu flestir mæta - nema einhverjir vitleysingar.“ „Við töluðum um það um daginn að ef ekki væru neinir skólar þá væru bara allir „stúbídó.“ Menntun er nauðsynleg," segir Gúndi. „Maður lærir alltaf eitthvað þótt skólinn sé leiðinlegur," heyrum við Simma segja all spekingslega, þegar við yfirgefum þessa óvenjulegu og skemmtilegu kennslustund. • Ómar Friöriksson 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.