Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 60

Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 60
BILAR Stálslegin skynsemi Reynsluaksturá Volkswagen GolfSky GAMLI FÓLKSVAGNINN, Bjallan sem svo var nefnd, kom fyrst hingað til lands fyrir rúmum 30 árum. Þá voru raunar liðnir tæpir tveir áratugir frá því að Hitler og hans rnenn fengu bílahönnuðinn Ferdinand Porsche, sem sportbílarnir frægu eru kenndir við, til þess að hanna þennan bjöllulaga „alþýðu- vagn" sem lið í því að koma efnahag þriðja ríkisins á réttan kjöl og sjarmera lýðinn. Fyrir heimsstyrjöldina voru einungis smíðuð nokkur eintök til reynslu, en fyrr en varði var alþýða manna sett í að framleiða skriðdreka og skjóta á óvinina. Hitler entist því ekki aldur til að líta draumsýn sína: Sviphrejna Aría akandi á Fólksvögnum um sólgullnar sveitir þriðja ríkisins með blómlegar eiginkonur sér viö hliö og hreinræktuð börn í aftursætinu; allir syngjandi djarflega ættjarðarsöngva. Pegar stríðinu lauk og nýtt Þýskaland reis úr rústunum var hönnun Porsches dregin fram í dagsljósið að nýju og alþýða manna hófst handa um að framleiða - og aka - Volkswagen, öllu friðsamlegra ökutæki en þunglamalegir skriðdrekarnir voru. Af skiljanlegum ástæðum hafa menn nú fátt hlýlegt um Hitler og hans nóta að segja. Hitt er annað mál að gamla Bjallan hans Porches á margt hrós skilið. Þar var nýstárleg og snjöll hugmynd á ferðinni: Rúmgóður, áreiðanlegur og ódýr smábíll með vél sem var frábrugðin því sem almennt tíðkaöist. Hún var afturí, loftkæld, og strokkarnir tjórir láréttir. hvorir á móti öðrum, í stað þess að vera lóðréttir í beinni röð. Reyndar var vélin í Citroen-bragganum fræga hönnuð með svipuðum hætti. nema hvað þar voru strokkarnir aðeins tveir og vél og drif í bílnum framanverðum. Það er athyglisvert að hugmyndin að Bragganum var sett fram á sama tíma og Porsche var að móta Fólksvagninn, þ.e. skömmu fyrir stríðið, og einnig hann átti að vera alþýðuvagn. Sagt er að frönsku hönn- uðunum hafi verið gert að smíða bíl sem nægði nánast að finna lykt af bensíni til að komast áfram og væri svo mjúkur að bændur gætu ekið lausum eggjum í honum á markað eftir holóttum vegi! Hvað sem satt er í því er hitt víst, að bæði Bjallan og Bragginn eru enn við lýði, fimmtíu árum síðar, Bjallan reyndar aðeins smíðuð í S-Ameríku nú orðið, en Bragginn rúllar út af færiböndum í Frakk- landi og er óskadraumur ólíklegustu manna. ÞEIR VORU margir sem tóku ástfóstri við gamla Fólksvagninn og sumir væru ugglaust til í að láta oftjár fyrir nýtt eintak. Öðrum þótti hann hins vegar þunglamalegur í akstri, kaldur og frekur á bensín. En það eru sagðar ævintýralegar sögur áf Bjöllunni; oað þyrfti TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR Lengd(cm): 398,5 Breidd(cm): 166,5 Hæö(cm): 141,5 Eigin þyngd(kg): 870 Farangursrými(litrar): 410 Hensíntankur(lítrar): 55 Vél: 4 strokkar í röö, 8 ventlar, 1 yfirliggjandi knastás Sprengirými(cm): 1595 Afl(bremsuhestöfl): 75 Tog(Nm/snún/mín): 125/2500 Þjöppunarhlutfall: 9:1 Bensínkerfi: 2ja hólfa blöndungur Bensín(oktan): lágmark 91 Fjöðrun: Sambyggöir gormar og höggdeyfar viö öll hjól Hemlur, framan: diskar Hemlar, aftan: skálar Stýri: Tannstangarstýri Beygjuradíus (inetrar): 10,5 Gírkassi: 5 gíraráfram Drif: aö framan að opna glugga til að geta skellt liurð auð- veldlega og mætti sigla henni urn ár og vötn. Svo þétt væri yfirbyggingin. Hvort tveggja er satt og geta fáir bílaframleiðendur státaö af slíkum eiginleikum. Og það er staðreynd að bíllinn var (og er, því margir aka enn um götur) feikn áreiðanlegur í daglegu brúki og dugnaðarforkur í snjó. Snjallar hugmyndir eru börn síns tíma og svo er einnig urn hugmynd Porsches að Bjöll- unni. Hún átti sitt blómaskeið á árunum milli 1955-75, en það hlaut að koma að nýsköp- un. Það gerðu menn sér Ijóst í höfuðstöðvum Volkswagen í Wolfsburg á sjöunda áratug- num og upp úr 1970 gægðist ný hugmynd út úr verksmiðjudvrunum: Volkswagen Golf, bíllinn sem hér er til umræðu. Og lýkur þar með þessum sögupistli. VOLSWAGEN GOLF er önnur snjöll hug- mynd að bíl, reyndar ekki ættuð frá Þýska- landi, en hefur einkennt bílamarkaðinn undanfarin ár og gerir væntanlega enn um hríö. Það er sú hugmynd að sameina og sam- nýta farþega- og farangursrými og hafa stóra hurð á bílnum aftanverðum. Miðað viö þá bíla sem hafa lokað „skott" er af þessu aúg- Ijóst hagræði þar sem hægt er aö breyta hluta farþegarýmisins í farangursrými með því að fella niður aftursætisbakið og gera bílinn þar með að litlum vöruflutningabíl. Nánast eina hagræðið sem ég sé í fljótu bragði af því að hafa „skott" er í þeim tilvik- um er menn þurfa að vera mikið á ferðinni með verkaðan hákarl eða annað álíka lykt- andi. Þá felst í hugmyndinni að vél og drif eru frammí og vélin þversum. Með því móti nýt- ist plássið vel og þegar á allt er litið birtist bíll sem er Iítill aö utan, en stór að innan. Golfinn hefur að sjálfsögðu gengið í gegn- um ýmsar útlits- og tæknibreytingar frá fyrstu gerð, rétt cins og gamla Bjallan, en meginhugmyndin að baki bílnum er enn sú sama. Sá Golf sem hér er til umræðu heitir fullu nafni Volkswagen Golf Sky. Hann er í sjálfu sér ósköp venjulegur Golf, en hefur til við- bótar við Golf C (sem er ódýrasta gerðin) snúningshraðamæli og tauáklæði á sætum og innan á hliðum og hefur nokkru fleiri minni- háttar atriði til brunns að bera hvaö varðar útlit. Nokkru dýrari er síðan Golf GL, seni t.d. hefur krómlista kringum glugga og íburðarmeiri innréttingu. Allar eru þessar gerðir með sarns konar 75 hestalla vél og eins í tæknilegu tilliti. Vilji menn meira afl er hægt að fá Golf GT með 90 hestafla vél; enn öflugri erGolf GTI með 112 hestöfl, og þeim sem liggur lífið á býðst tryllitækið Golf GTI 16 með 16 ventla. 139 hestafla vél. Það er gífurlegt alf miðað við þyngd bílsins. Þeir sem girnast slíkan grip þurfa hins vegar að eiga tæp 800 þúsund og vilja eyða þeini í bíl. Þeir eru líka til sem kjósa bíl með hefð- bundnu skotti og vilji þeir að það sé Volks- wagen. býðst þeini Jetta, sem að öðru leyti í meginatriðum eins og Golfinn í tæknilegu tilliti. FEGURÐIN er smekksatriði. hvort sem nr fegurð himinsins eða bílanna. Að mínu mat1 er Golfinn snoturlega teiknaður, hreinn og beinn að útliti og samsvarar sér á allan hatt vel. En hann vekur enga sérstaka athygh- Maður snýr sér ekki við þótt hann aki hjá. en hugsar fremur að þama fari hlutlaus og klassísk- ur bíll. Sama er að segja um bílinn innandyra: þar) er ekkert gert til að ganga í augun á fólk'- engir yfirborðstakkar eða tæknibrellur, en allt yfirbragð og frágangur með fáguðum °g traustvekjandi blæ. Þegar sest er undir stýri og ekiö af stap fylgir því sama tilfinning: Öllum stjórntækj- um er vel fyrir komið og þau vinna óaðfmn' anlega, það vantar nánast ekkert og engu el ofaukið, bílstjóri og farþegar sitja t tremnl hörðum, en þægilegum sætum - stilla 111,1 bæði setu og bak - og vélaraflið er fyllile2a nóg. Otsýni er prýöilegt í allar áttir og speg1' ar beggja vegna stillanlegir innanfrá. M*ð' stöðin er öflug með þremur hröðum: Hægur andvari, stinningsgola og strekkingur. Það er óhætt að fullyrða að Golfinn sc traustur og vel hannaður bíll fyrir þá st-n’ gera fyrst og fremst þá kröfu að koma örugglega milli staöa á þægilegan hátt. hv° 60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.