Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 48
LISTIR
lll
jökulkaldur var febrúar
og blár á ís
fiskur á disk
ís-land
og vertíd minninganna...
ég tendra tón öldunnar
án fiskimiða
óralangt inni
í grœnni skelinni
langferðir strandir og djúp
Þannig gerir skáldið skýran greinarmun þess
sjávar sem skilar fiski á disk í febrúar (og
tengist vertíðum) og hins vegar þeim sjó sem
tendrast tónum og miðast ekki við dráp
fiska. Sjórinn er því í þessum ljóðheimi allt
umhverfi okkar, lífið sjálft. Við erum fisk-
arnir - enda kallar Ijóðmælandinn sig tlugfisk
í II. kafla Ijóðabálksins og gengur þá myndin
upp: flugfiskur sumarsins er andstæða þess
fisks sem liggur á diski í jökulköldum
febrúarmánuði. Söngleikur fyrir fiska, heiti
bókarinnar, fær því dýpri merkingu enda
skiptir tónlist, tónar og hljómar, miklu máli í
bókinni allri sem engan þarf að undra þar
sem höfundur setur sér það markmið að
finna samhljóm þessum tíðaranda sem
sannarlega virðist gefa öllu slíku langt nef.
Litanotkun er einnig mikil og markviss þar
sent gult, blátt, grænt og rautt mynda and-
stæðu viö hið gráa og svarta:
Hví ekki spássera á draumbláu kvöldi
inn í regnvota grasgræna nóttína...
Stundum verður úr þessu tóna- og litaflóð
þar sem litur styrkir tóninn og tónninn lit-
inn:
Sumarið grœnt og blátt fyrir utan opna
glugga og verönd öll til veraldar. Leti
leg tónlist á lágum styrk (silfurskœr
diskant, kontrabassi: jazz)...
Eins og raunar sést af þeim dæmum, sem hér
hafa verið birt úr Ijóðum Jóhanns, beitir
hann fjölda vísana - og um of að ntínu rnati.
Vísanir eiga rétt á sér ef þær bæta einhverju
við Ijóðið; lesandinn sér eitthvað í nýju ljósi.
Því er sjaldan að heilsa hér. Vísanirnar
hlaðast upp úr ýmsurn áttum og drepa at-
hyglinni á dreif. Lesandinn er sífellt minntur
á eitthvað annað en það sem er fyrir augun-
unt og.fyrr en varir er hann kominn í rann-
sóknarferð frá Ijóðinu og rifjar upp það sem
hann þykist kannast við úr öðrum áttum.
Á nokkrum stöðurn kernur fram að Jó-
hann yrkir ljóð sín á erlendri grundu og það
er gróin þjóðleg hefð að yrkja unt þau örlög.
Skemmtilegt er Ijóðið Lundabaggi:
Tregt er mér tungu að hrcera
hina tilfinningaþyrstu fyrstu hvítgulu
björtu en köldu daga vorsins í þessum
flata Lundi...
Töfrað get ég þó stöku sinnum J'ram
tónaliti orðanna, dregið furðum hlaðin
orð úr pússi mínu grœn og dulræn, fjarlœg
og blá, syndug svört og rauð, krystaltœr
og hvít eða kartöflugul og brún eins og
jörðinni er eðlilegast úrfölbleiku vetrar-
hýðinu rykgráu.
Eg get töfrað fram orðsins seyð þegar
andinn skreytir tunguna og innblásturinn
þenur lungun út og inn...
En þá er áigúst og tími berjatínslunnar.
Jóhann árelíuz getur vel við unað. Honum
tekst margt vel, sumt stórvel, í þessari bók.
Svo er að sjá hvað verður, hvað berst okkur
frá hinum „flata Lundi".
• Þórður Helgason
NUTRIBEL
lífgjufi húðarinnar
Dagkremið scm nærir og veitir raka
Paö rennur eins og mjólk og er silkimjúkt.
Nulribel hverfur inn íhúdina á svipstundu.
Leynivopn N utribels er jojoba-olían og F- vítamínið.
Med daglegri notkun Nutribels verðurhúðin aftur
mjúk oggeislandi björt. Áhrifin hafa verið
sannreynd. Berðu Nulribel á þig að morgni
kte*
LANCÖME
PARIS