Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 54
LISTIR
• „Listin erfriáls." Klaus Staeck, 1987.
höggmyndalist Rómverja.
Þau tækniverk, sem valin voru á Kassel,
sýndu þaö fyllilega að tilraunalist þarf ekki
að vera leiðinleg. Þvert á móti. Sú merka
stund er runnin upp að listamenn hafa náð
tökum á tækninni og þar af leiðir að nútím-
inn er orðinn nútímalegri en nokkru sinni
fyrr! Reyndar nagaði smásálin í mér mig
nokkuð. Hvar í andskotanum fékk fólkið
alla þessa peninga til að vinna verkin? Það
var greinilegt að menn eins og Paik voru á
mála hjá stórfyrirtækjum eins og Sony -
nokkurs konar framverðir í könnun á notk-
unarmöguleikum tækninnar. Slík samvinna
er af hinu góða svo framarlega sem lista-
mönnunum er veitt frítt spil. En stóru um-
hverfisverkin hljóta að vera unnin fvrir ríkis-
peninga og er óhjákvæmilega safnalist.
Að lokum. Dokumenta 8 er óður til tjöl-
breytninnar. Verðlaun og viðurkenning ti
handa þeim sem hafa haldið fast í eigin hug-
ntyndir og sköpunarleiðir án tillits til tísku
strauma hverju sinni. Sýningin hefur veric
umdeild og þá sérstaklega fyrir það að vert
ekki nógu ný og ekki nógu „myndlistarleg"
(t.d. eru hönnuðir teknir inn sem listamenn,
nokkut) sem margir eiga erfitt með að sætta
sig viö). Þeir einu sem þurfa þó að hafa
áhyggjur eru þeir sem á einni nóttu ná því að
skipta um skoðun og sjá fram á að þessi eða
hinn stíllinn sé sá eini rétti, jafnvel á nokk-
urra ára fresti.
Það getur ekki talist vondur boðskapur að
þeir vekji athygli sem vinna eftir gegnum-
hugsuðum og persónulegum leiðum. An til-
lits til þess hvaða stíll er mest áberandi þá og
þá stundina.
• örn D. Jónsson
* Svart-hvít vídeómynd eftir Marie-Jo Lafontaine, 1987.
54