Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 37
ERLENT
BUNDESBILDSTELLE BONN
• 27 græningjar komust á sambandsþingiö í Bonn í kosningum í mars 1983. Otto Schily kemurtil
Wrsta þingfundar í þingflokki græningja.
arnir heföu vanrækt. Nú væri hins vegar svo
komið, að „gömlu flokkarnir" hefðu rankað
v>ð sér og gert þessi mál að sínum. þannig að
hlutverki græningja væri lokið og þeir orðnir
óþarfir. Ég spurði Otto Schily hvað græn-
lngjar segöu við slíkri gagnrýni.
„Jú, það er rétt að þessar skoðanir hafa
heyrst, einkum frá jafnaðarmönnum. Kristi-
*egir demókratar hafa líka ýjað að þessu
sjónarmiði undir rós. Það tók reynar út yfir
aHan þjófabálk, að eftir fund sem fulltrúaráð
græningja hélt í Oldenburg á dögunum,
ó'ðluðu flokkarnir beinlínis til okkar, hver á
eítir öðrum. Kristilegir demókratar létu í
Það skína, að „skynsamir" græningjar væru
Velkomnir í þeirra hóp, frjálsir demókratar
gerðu jafnframt hosur sínar grænar fyrir
°kkur, að ekki sé minnst á jafnaðarmenn.
V'ð höfum margsinnis fengið að heyra, að
°kkar tími sé á enda og mál til komið að við
sJaum að okkur og göngum í einhvern hinna
”virðulegri" stjórnmálaflokka.
Eg held að það sé enginn vafi, að hinir
^°kkarnir eru orðnir allt aðrir keppinautar
en þeir voru, þegar græningjar komust fyrst á
þing fyrjr fjmm árum. Jafnaðarmenn hafa
Ivímælalaust sýnt ýmsum málum mun meiri
anuga en áður. Það er hins vegar eingöngu
Sr$ningjum að þakka. Þrátt fyrir ákveðna
lugarfarsbreytingu er þó ekki hægt að horfa
framhjá því, að íhaldsöflin í jafnaðarmanna-
flokknum eru mun sterkari en margur held-
ur. Það sést t.d. greinilega á afstöðu flokksins
til orkumála. Á flokksþingi jafnaðarmanna í
Núrnberg í fyrra samþykktu þeir að berjast
fyrir lokun allra kjarnorkuvera í landinu.
Það kom fram í ályktun þingsins, að þeir
vildu hrinda þessari hugmynd í framkvæmd
innan tíu ára. Nú eru þeir hins vegar orðnir
tvístígandi í þessu máli og farnir að karpa
um, hvenær þessi tíu ára frestur eigi að byrja.
Þegar á allt er litið held ég að við græningjar
séum nauðsynlegra afl í vestur-þýskum
stjórnmálum en nokkru sinni fyrr, umfram
allt til að halda mönnum við efnið og sjá til
þess að ákveðin mál sofni ekki á þingi. Það er
svo auðvitað undir okkur sjálfum komið,
hvernig okkur tekst að rækja þetta hlut-
verk."
ÚR ÞVÍ SCHILY minntist á kjarnorkuna
notaði ég tækifærið og dengdi á hann þeirri
spurningu, hvort sú krafa græningja, að öll-
um kjarnorkuverum landsins verði tafarlaust
lokað, væri ekki óraunhæf þegar þess væri
gætt, hversu stóru hlutverki kjarnorkan
gegnir í iðnaði og efnahagslífi V-Þjóðverja.
„Nei. því fer fjarri að þetta séu draumór-
ar," svaraði hann. „Ég held að þegar menn
fara í saumana á þessu máli og láta allan