Þjóðlíf - 01.11.1987, Blaðsíða 18
INNLENT
fékkst nokkuð við skriftir í sumar og var t.d.
að safna saman ýmsum gamansögum og
lausavísum í eina heild, þó það sé engin út-
gáfa á döfinni. Auk þessa naut ég þess að
starfa talsvert í búskap með syni mínum
austur á landi."
Aðspurður um hvort hann sakni barátt-
unnar þegar hann sér þingmenn nú safnast
saman á nýbyrjuðu Alþingi segir Helgi það
ekki vera. „Það er frekar að ég sakni þess að
hafa ekki þau miklu samskipti við fólk sem
ég hafði sem þingmaður - ekki síst á ferða-
lögum.
Þrátt fyrir það að ég sé hættur á þingi er ég
ekki hættur öllum afskiptum af stjórnmálum.
Núna er ég t.d. að vinna að verkefni á vegum
nefndar í Alþýðubandalaginu," segir hann.
Eru það ekki mikil viðbrigði fyrir lang-
reynda þingmenn að draga sig allt í einu í
hlé?
„Sennilega er það oftast vandalítið en þeir
þurfa þá að velja sér starf sem er ekki alltof
líkt þingmannsstarfinu en geti samt nýtt sér
þá fjölbreyttu reynslu og þekkingu sem þeir
hafa aflað sér á þinginu."
Helgi segir að ýmsar ástæður hafi verið
fyrir því að hann ákvað að gefa ekki kost á
sér í þingframboð í vor. „Aðalatriðið finnst
mér vera að menn eigi ekki að sitja alltof
lengi á Alþingi. Ég tel að með ákveðinni
endurnýjun eigi að hleypa nýjum mönnum
og nýjum sjónarmiðum að áhrifastöðum.
Það er nijög nauðsynlegt."
Helgi Seljan er menntaður kennari og
starfaði bæði sem kennari og skólastjóri á
Austfjörðum áður en hann var kjörinn á þing
en segir óráðið hvort hann snýr sér aftur að
kennslunni á næstunni a.m.k.
SIGRÍÐUR DÚNA KRISTMUNDSDÓTTIR:
„Ekki hef ég fengið neina launaða vinnu frá
því að ég hætti á þingi og það helgast einfald-
lega af því að ég hef ekki sótt um slíkt. Ég er
önnum kafin við að skrifa doktorsritgerð í
mannfræði við háskólann í Rochester í
Bandaríkjunum," segir Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, fyrrum þingkona Sam-
taka um kvennalista í Reykjavík. Og hún
býst við að verða a.m.k. allt næsta ár að
fullklára það verkefni. Viðfangsefnið er:
Konur og pólitík á íslandi.
Finnur hún ekki til löngunar að hella sér út
í baráttuna nú þegar þingstörfin eru komin á
fulla ferð?
„Jú, að sjálfsögðu því að þetta er ólækn-
andi," svarar hún brosleit, „en ég er líka
fegin að geta snúið mér aftur að mínu fagi,
mannfræðinni." Og hún bætir við: „Ég er nú
líka að fást við stjórnmál í vissum skilningi
þegar ég vinn að þessu doktorsverkefni, og
auk þess reyni ég að leggja mitt af mörkum
hjá Kvennalistanum. Við teljum mikilvægt
að þær konur sem hafa aflað sér reynslu og
• Sigríður Dúna: í doktorsritgerð.
• Kolbrún: í verslunarrekstur.
• Helgi: Atvinnuiaus.
þekkingar aðstoði hinarsem eru að taka við í
samræmi við þá útskiptareglu sem við
Kvennalistakonur höldum í heiðri."
Sigríður Dúna segir að þingstörfin séu
mjög flókin og viðamikil, og því getur það
reynst þeim sem helga sig þessu starfi það
stór biti að kyngja að falla út af þingi í kosn-
ingum. Sjálf segist hún hafa ákveðið með
löngum fyrirvara að gefa ekki kost á sér aftur
og hleypa öðrum starfssömum Kvennalista-
konum að.
Sigríður Dúna sat í fjögur ár á Alþingi, eða
• Valdimar: Framkvæmdastjóri.
eitt kjörtímabil, en áður hafði hún starfað
sem kennari á ísafirði og frá árinu 1980 sem
kennari í mannfræði við félagsvísindadeild
Háskóla íslands.
VALDIMAR INDRIÐASON:
Þessa dagana vinnur Valdimar Indriðason.
varaþingmaður sjálfstæðismanna á Vestur-
landi, sem framkvæmdastjóri Síldar- og
18