Þjóðlíf - 01.11.1987, Page 20

Þjóðlíf - 01.11.1987, Page 20
IN N LENT starfi. „Þingmennskan er mjög sérstætt starf og þaö er hægara sagt en gert að losna út úr ýmsu þar að lútandi. Þaö er gert ráð fyrir því að þingmenn hafi þrjá mánuði til að finna sér nýtt starf og ég efast um að þaö sé nógu langur tími. Þingmenn sem hafa setið lengi á þingi eru á launum í sex mánuði sem er raun- hæfara.*' Arni bendir á að kjör þingmanna séu ekki spennandi. „Það eru fyrst og fremst hug- sjónirnar sem ráða því að menn sækjast eftir því að komast á þing en ekki launin. Það eru um hundraðþúsund króna laun fyrir þetta starf og því fylgir gífurlega mikil yfirvinna, að ógleymdum allskonar kostnaði." Það er því kannski ekki af miklu að missa Iaunalega séð þó að menn falli út af þingi og Árni segir, að það megi ekki ganga út frá því sem gefnu að fyrrverandi þingmenn notfæri sér ýmis sam- bönd sem komast á í gegnum þingmennsk- una til að koma sér fyrir í þægilegu starfi. „Ugglaust er það hægt, en það er ekki þar með sagt að menn noti slíkar aðferðir," segir hann. Auk blaðamennskunnar hefur Árni unn- ið fyrir ríkissjónvarpið að gerð nokkurra við- talsþátta og náttúruþátta. „Nýverið lukum við gerð þáttar sem við nefnum Undir kinn- um Eyjafjallajökuls, sem er um ferð á hest- um upp með Skógánni, upp á Fimmvörðu- háls og aö jökulsporðinum. Síöan er gengið niður í Þórsmörk eftir gamalli og ævintýra- legri gönguleið. Þetta er einn af nokkrum náttúrulífsþáttum sem ég hef unnið að undanfarið og auk þess hef ég unnið að fleiri þáttum í þáttaröðinni Maður er manns gam- an,“ segir Árni og er auðheyrilega hinn ánægðasti með sitt hlutskipti þó ekki vermi hann þingsæti á þessu kjörtímabili. GUÐMUNDUR EINARSSON: Guðmundur Einarsson Alþýðuflokki, er líf- fræðingur að mennt og var lektor í lífeðlis- fræði við læknadeild Háskóla íslands þegar hann tók sæti á þingi fyrir Bandalag jafn- aðarmanna 1983. „Ég átti samt enga stöðu vísa við háskól- ann þegar þingmennsku minn lauk," segir hann, „því ég lét stöðu mína þar sigla sinn sjó þegar ég tók sæti á Alþingi. Háskólans vegna er erfitt að halda stöðum fyrir menn sem hverfa þaðan um hríð. Þetta á sérstaklega við um raunvísindagreinar þar sem menn eru með tækjabúnað og aðstoðarfólk í kringum sig og þess vegna er varla gerandi að halda slíkum stöðum opnum í langan tíma," segir hann. Guðmundur gekk til liðs við Alþýðu- tlokkinn á síðasta ári og fór fram í fyrsta sæti á lista flokksins á Austurlandi í kosningun- um í vor en náöi ekki þingsæti. Hann segirað hann hafi átt þess kost að velja á milli starfa þegar ljóst varð að ekki yrði um frekari þing- setu að ræða á þessu kjörtímabili og starfar • Guðmunaur: Framkvæmdastjóri. • Árni: I blaðamennsku. nú sem framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins og starfsmaður þingflokksins. Hann er sá eini úr hópi fyrrverandi þingmanna sem hef- ur stjórnmálin að aðalatvinnu og telst líklega til þeirra sem eiga eftir að sækja aftur fram á framboðsvöllinn í Alþingiskosningum þó svo hann vilji engar yfirlýsingar gefa um það nú. „Ég hef ekki ákveöið neitt í þeim efn- um," segir hann. -Sí; ■; • Ingvar: Ritstjóri. PÉTUR SIGURÐSSON: Pétur Sigurðsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík skellihló þegar hann var spurður hvort hann hefði átt 1 nokkrum erfiðleikum með að finna sér starf eftir að þingmennskunni lauk. „Ég hef verið í fjórum störfum mest allt mitt líf og unnið 18 tíma á sólarhring svo það er alveg nóg að gera þó að ég starfi ekki lengur á þingi," segir hann. „Ég er frekar að reyna að skera þetta af mér smám saman," bætir hann við. • Pétur: 18 tímar á sólarhring! 20

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.