Þjóðlíf - 01.11.1987, Síða 28
FÓLK
Ekki er ólíklegt að þann 27. maí í vor hafi
verið slegið heimsmet í hljóðveri Sigurðar R.
Jónssonar, Stúdíó Stemmu, þegar Bergþóra
Ámadóttir og hljómsveit hennar voru þar við
live-upptökur og hljóðrituðu alls 19 lög á
hálfum sjötta tíma. Sjónvarpið var mætt á
staðinn og sýndi nýlega þátt af upptökunum
og þessa dagana er svo að koma út hljóm-
plata þar sem fimm þessara Iaga er að finna
auk fjögurra nýrra laga eftir Bergþóru sem
tekin voru upp í september. Auk þess kemur
út geisladiskur með níu lögum frá upptök-
unni í vor. Platan ber heitið Bergþóra í
seinna lagi.
„Pað voru svo sannarlega farnar ótroðnar
slóðir við þessar upptökur," segir Bergþóra,
,,en ég gerði þó þá breytingu að fá unga og
bráðefnilega söngkonu til að syngja í stað
mín í einu Iagi en hljóðfæraleikurinn er
óbreyttur frá því í vor. Þar er á ferðinni Gígja
Sigurðardóttir úr Grindavík, sem þekkt er
fyrir framlag sitt sem Stína stuð, úr látúns-
barkakeppni Stuðmanna í sumar."
„Samvinnan á milli allra sem komu við
sögu kvöldið góða í maí, var alveg fádæma
góð og skemmtileg, stemmningin sérstök og
þarna voru líka milli 30 og 40 áheyrendur
saman komnir,“segir hún.
Meðal nýrra laga á plötunni er eitt sem
Bergþóra samdi við ljóð eftir tvítuga dóttur
sína, Birgittu, sem heitir Sandkorn. Ljóðið
birtist í ljóðabókinni Ljóðormur nr. þrjú,
fyrir tveimur árum og var nýlega valið í nýja
útgáfu skólaljóða sem væntanleg er á næsta
ári. ,,Sandkorn er það lag plötunnar sem ég
er ánægðust með," segir Bergþóra. „Við
syngjum það saman, ég og Pálmi Gunnars-
son. Pálmi hefur spilað með mér í fjölda
mörg ár eða allar götur frá 1976 og sá reynd-
ar til þess á sínum tíma að fyrsta sólóplata
mín, Eintak, var gefin út.“ - Sú plata er nú
löngu uppscld.
Þaö er Skífan sem sér um útgáfuna á Berg-
þóru í seinna lagi í samvinnu við fyrirtækið
Þor, sem þau eiga í sameiningu Bergþóra og
eiginmaður hennar, Þorvaldur Ingi Jónsson.
Liðin eru tvö ár frá því að seinasta plata
Berþóru, Pað vorar, kom út en þar fékk hún
breska fiðluleikarann Graham Smith til liðs
við sig. „í millitíðinni hefur svo komið frá
mér hljóðsnældan Skólaljóð, sem er fyrst og
fremst ætluð krökkum - og kannski íslend-
ingum erlendis á þriðja glasi," segir Berg-
þóra sposk.
Á nýju plötunni eru úrvalsmenn á öll
hljóðfæri; Pálmi Gunnarsson bassa, Tryggvi
Hubner gítar, Hjörtur Howser hljómborð,
Sigurður Reynisson trommur, Abdou
Dhour slagverk og svo sá Sigurður Rúnar að
sjálfsögðu um upptökustjórnina.
Að sögn Bergþóru er á döfinni að gefa
plötuna út í Skandinavíu í gegnum Nordvisa,
sem er hagsmunafélag starfandi vísnasöngv-
ara. „Eg hef dvalist mikið á Norðurlöndun-
um og hef kynnt mig vel í heimi vísnatónlist-
ar og vísnarokksins og sit í stjórn Nordvisa-
• Bergþóra með köttinn Bjart.
samtakanna," segir hún. „Það er greinilegt
að vísnasöngur er á mikilli uppleið í Skandi-
navíu og eflaust gæti ég haft það mjög gott ef
ég byggi þar að staðaldri - en ég nenni bara
ekki að vera langtímum saman í burtu frá
íslandi."
•
Þessa dagana er að koma út hljómplata með
nokkrum gömlum og nýjum lagaperlum Jóns
Múla Ámasunar. Þótt þeirrar tilhneigingar
hafi gætt undanfarið að músíkrásirnar blási
lífi í dægurflugur sjötta og sjöunda áratugar-
ins er það ekki sú endurvakning sem ýtti við
mönnum - gæði þessara djassættuðu og
rómantísku laga er næg ástæða til að setja
velunna plötu með lögum Jóns Múla og text-
um Jónasar Árnasonar á markað. Þessi fína
músík hefur alltaf verið freistandi fýrir vand-
aða tónlistarmenn. Þannig var Tómas R.
Einarsson, bassaleikari, lengi með þá hug-
mynd í kollinum að safna saman góðum
kröftum og vinna úr þessu efni Jóns Múla.
En tímásetning útgáfunnar hittir í mark.
Alla yfirumsjón með tónlistinni hafa þeir
Eyþór Gunnarsson, hljómborðsleikari og
fyrrnefndur Tómas. Upptökur fóru fram 1
stúdíó Stemmu og þangað lögðu margir
toppmenn í músíkbransanum leið sína til að
leggja hönd á plóginn. Hér mætast tvær kyn-
slóðir tónlistarmanna á einni plötu. „Heljar-
ins mikið glanslið í íslensku tónlistarlífi,'
segir Sigurður G. Valgeirsson útgáfustjóri
Almenna bókafélagsins sem gefur plötuna út
undir heitinu Lög Jóns Múla Árnasonar við
texta Jónasar Árnasonar.
Kreditlistinn er fjölskrúðugur. Fyrstan
skal frægan telja látúnsbarkann Bjarna
Arason sem syngur tvö lög, annað á mot*
Ellen Kristjánsdóttur og er það hið gamal-
kunna Án þín. Ellen kemur við sögu í fle*rl
lögum. Bubbi Morthens syngur Við heim1'
um aukavinnu, Magnús Eiríksson syngureit*
lag og leikur með á gítar, Sif Ragnhildardótt'
ir syngur nýtt lag eftir Jón Múla: Það vaxa
blóm á þakinu og er textinn fenginn úr einu
verka Halldórs Laxness. Þá syngja Þe,r
28