Þjóðlíf - 01.11.1987, Page 56

Þjóðlíf - 01.11.1987, Page 56
NÁTTÚRAN • Kondór nr. 5 á flugi. „í dag eru 27 Kondórar á lífi — allir í búrum." og ef ein af hverjum 120 þessara plöntuteg- unda gæti nýst viö lyfjagerð þá getum við rétt ímyndað okkur hvaða missir það yrði ef 200 gagnlegar plöntutegundir verða útrýmingu að bráð... Par nemur skaðinn hundruðum miljóna dollara á ári aðeins vegna útrýming- ar plantna..." Oftast er það vegna gáleysis og vanþekk- ingar sem tegundum er útrýmt. Á fýrr- nefndri ráðstefnu kom fram að vísindamenn áætla að 450 miljónir tegunda hafi komið fram í sögu jarðar frá upphafi. Tegundir hafa dáið út að meðaltali á um 20 miljónum ára. Það er náttúrulegur hluti þróunarinnar að tegundir deyi út, en sú hraða útrýming sem á sér stað í dag er allt annars eðlis. Nornum Myers segir: „Ef við reiknum með að við missum eina tegund lífvera á hverjum degi nú. þá er raunhæft að ætla að í lok þessa áratugar muni ein tegund deyja út á klukku- stundarfresti að meðaltali og um aldamót má búast við að tugir dýra- og plöntutegunda hverfi af sjónarsviðinu með hverri klukku- stund sem líður hjá." Hann bendir ennfrem- ur á að margir vísindamenn telji að útrým- ingartíðnin verði mun örari. ORSAKIR útrýmingar eru í langflestum til- vikum vegna þess að maðurinn hefur gripið harkalega inn í viðgang náttúrunnar og líf- ríkisins. Náttúruvísindamenn beina nú sjón- um sínum sérstaklega að fruntskógum hita- beltisins. Þar er fjölbreytni lífríkisins mest. Til dæmis eru fleiri fuglategundir í Panama en í allri Evrópu. Vísindamenn hafa þó ekki uppgötvað nema hluta þeirra tegunda sem lifa í frumskógunum. Það er t.d. ekki vitað hversu margar skordýrategundir lifa nú a jörðinni. Til að vekja áhuga fólks á nauðsyn um- hverfisverndar hafa náttúruverndasamtök Utrýining dvraiina Ásókn og mengun mannsins þrengir uggvænlega að iífríki jaröar ÁTROÐNINGUR, framkvæntdir og mengun mannanna ógnar sífellt fleiri dýrategundum um allan heim. Hundruð velþekktra dýra- tegunda eru nú í yfirvofandi útrýmingar- hættu. Hundruðþúsundir lífvera eru í útrým- ingarhættu fyrir aldarlok. Náttúrufræðingar draga nú upp þá mynd fyrir mannkynið að gríðarlegur fjöldi tegunda dýra og plantna séu í útrýmingarhættu um víða veröld. Eina virka úrræðið til að sporna við fótum er að vernda heimkynni dýranna, segja nátt- úruvísindamenn. „Það stoðar lítið að verja stórum fjárhæðum til að bjarga einstökum, vinsælum dýrategundum. Það verður að vernda búsvæðin og friða regnskóga og vot- lendissvæði þar sem fjölbreytni lífríkisins er mest,“ segja þeir. Fyrir nokkrum vikum dó síðasti einstak- lingurinn af spörfuglategund sem hafðist við í Flórída. Fyrir aðeins um 20 árum voru spörfulgar þessir þúsundum saman í náttúr- unni, nú er tegundinni útrýmt um aldur og ævi. 19. apríl í ár var síðasti Kondórinn sem lék lausum hala í náttúrunni, handsamaður og komið fyrir í dýragarði í Kaliforníu. I dageru aðeins 27 kondórar á lífi - allir lokaðir í búrum. Kostnaður við umfangsmiklar tilraunir til að koma í veg fyrir yfirvofandi útrýmingu kondórsins nemur 200 þúsund bandaríkja- dölum á ári. Stefnt er að því að fá þessa fugla til að fjölga sér innan dýragarða og sleppa þeim síðan út í náttúruna. Enn sem komiö er hafa Kondórarnir ekki orpið í haldi og hafa rnargir uppi efasemdir um að takist að snúa vörn í sókn. GÁLEYSI OG VANÞEKKING. Fuglar og spendýr fá mesta athygli almennings þegar baráttan gegn útrýmingu ber á góma. Yfir- vofandi vandamál er langtum víðtækara. Áætlað er að 5 - 10 ntiljónir tegunda lífvera lifi nú í náttúrunni. Þó er ekki nema brot af þeirri fjölbreytni á skrá líffræðinga. Ef spár ganga eftir má búast við að um einni miljón tegundanna verði útrýmt fyrir aldarlok. Þetta er niðurstaða sérfræðinga víðsvegar að úr heiminum sem mættust á ráðstefnu í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum um þessi mál en erindi þeirra hafa nýlega verið birt í bók sem ætlað er að vekja almenning til umhugsunar um þetta bráða vandamál. Bandaríski líffræðingurinn Norman Myers hefur þetta að segja um útrýmingu plantna í heiminum: „Það má áætla að um 250 þús- und plöntutegundir finnist í náttúrunni og ein af hverjunt tíu er nú í útrýmingarhættu. Vísindamenn hafa komist að því að að meðaltali má nota eina af hverjum 120 plöntutegundum við lyfjaframleiðslu gegn mörgum sjúkdómum s.s. hjartasjúkdómum og háum blóðþrýstingi. Þær u.þ.b. 40 plöntu- tegundir sem eru nýttar í dag við lyfjafram- leiðslu gefa af sér um 40 ntilljarða dollara á ári. Það er vel hugsanlegt að við munum glata 25 þúsund plöntutegundum fyrir lok þessarar aldar vegna útrýmingarhættunnar 56

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.