Þjóðlíf - 01.06.1988, Qupperneq 15
INNLENT
Þrír vistmenn í Bræöratungu.
önnur heimilisstörf í sambýli Bræðratungu,
en á sambærilegum sambýlum, á kostnað
félagslegrar þjálfunar, tómstundastarfa og
hvfldar. Enda teljum við að vinnuvikan hjá
sonum okkar sé oft óhóflega löng. Jafnframt
viljum við benda á að sambýlið er ekki
mannað starfsmönnum sem skyldi. Við telj-
um áðurnefndar áherslur í starfsháttum á
sambýlinu séu ekki fallnar til þess að auka
þroska og vellíðan sona okkar. Því óskum
við eftir breytingum.
Við viljum minna á að sambýlið hefur
bráðum starfað í tvö og hálft ár og okkur er
tjáð að eðlilegt sé að fagleg starfsemi sé end-
urskoðuð reglulega á sambýlum og yfirleitt
séu gerðar áætlanir um markmið þjálfunar
og búsetu á sambýlum með aðstæður og
þarfir heimilismanna að leiðarljósi, og í sam-
ráði við nánustu aðstandendur. Við teljum
æskilegt að reynt verði að fá faglært fólk til
vinnu á sambýlinu og til að vinna að úttekt á
starfseminni.“
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Vest-
fjörðum fjallaði um bréf þetta á fundi sínum
21. maí síðastliðinn. Formanni Svæðisstjórn-
ar var falið að ræða við foreldrana og leið-
rétta þann misskilning sem að mati Svæðis-
stjórnarmanna kemur fram í bréfinu.
„Gagnrýni verður að byggjast á þekkingu
og sanngirni en ekki sleggjudómum," sagði
Magnús Reynir Guðmundsson formaður
Svæðisstjórnar. Erlingur Níelsson forstöðu-
maður Bræðratungu taldi bréfið byggt á tals-
verðri vanþekkingu. Hann taldi það samráð
sem haft er við Sigurjón Hilaríusson í Noregi
vera næga tryggingu fyrir faglegri starfsemi
stofnunarinnar.
Ljóst er, að í þeirri samkeppni sem ríkir
um faglært fólk sem gefur kost á sér til starfa
úti á landi, standa ríkisstofnanir á borð við
Bræðratungu höllum fæti. Öfugt við stofnan-
ir í heilbrigðisgeiranum t.d. sjúkrahús getur
Bræðratunga ekki boðið fagmönnum ódýr-
ara eða ókeypis húsnæði. Sveitarfélög sem
keppa um starfskrafta menntaðra starfs-
manna bjóða bæði yfirborganir í launum og
ýmis hlunnindi. Magnús Reynir Guðmunds-
son formaður Svæðisstjórnar sagði í samtali
við greinarhöfund að þeir hefðu um tíma
greitt niður húsnæði fyrir forstöðumann
Bræðratungu, en ráðuneytið hefði lagt blátt
bann við slíku og yrði það ekki gert í framtíð-
inni. Magnús lét þess getið að næstu verkefni
Svæðisstjórnar væru að koma á vernduðum
vinnustað og setja á fót sambýli á Vestfjörð-
um.
„Ef við berum okkur saman við t.d.
sjúkrahúsin sem bjóða læknum, hjúkrunar-
fræðingum og öðru fagfólki niðurgreitt hús-
næði, þá er okkar aðstaða mjög erfið og
þetta hefur valdið stofnuninni miklum erfið-
leikum," sagði Magnús Reynir.
Ekki verður séð að neitt betur gangi að
manna slíkar stofnanir af fagfólki. Sambýli
eins og þau hafa verið rekin annars staðar
gera kröfu um faglært starfsfólk. Á sama
tíma og stofnun eins og Bræðratunga er
næstum óstarfhæf vegna skorts á fagfólki
verður ekki séð að slíkar áætlanir séu annað
en loftkastalar.
Engin markviss vinna
„Á Vestfjörðum eru 200 fatlaðir einstak-
lingar sem þurfa á einhvers konar aðstoð að
halda, samkvæmt könnun sem gerð var fyrir
fáeinum árum. Allt skipulag aðstoðar við
þessa einstaklinga er í molum, enda gefast
flestir upp og flytja annað. Á Vestfjörðum er
eitt heimili fyrir fatlaða og þroskahefta. Það
er Bræðratunga. Þar eru vistaðir 10 einstakl-
ingar, eða um 5% þeirra 200 sem þurfa á
aðstoð að halda. Enginn verndaður vinnu-
staður er enn til á Vestfjörðum og ekki hægt
að tala um neina markvissa vinnu að málum
fatlaðra," sagði Gísli Hjartarson fulltrúi Ör-
yrkjabandalagsins í Svæðisstjórn um málefni
fatlaðra á Vestfjörðum. Gísli hefur verið
fatlaður í 25 ár og hefur fylgst gjörla með
þessum málum.
Tveir þroskaþjálfar hafa nú verið ráðnir til
starfa í Bræðratungu og mun annar þeirra,
Erna Guðmundsdóttir gegna starfi forstöðu-
manns. Erlingur Níelsson fráfarandi for-
stöðumaður sagði að vonir væru bundnar við
að í haust yrðu alls þrír þroskaþjálfar starf-
andi við stofnunina.
Páll Ásgeirsson/ísafirði
15