Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 36

Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 36
MENNING Óðinn snýr aftur Armönsk kona á Indlandi óf þetta teppi með táknum úr norrænni goðafræði, en teppið verður gefið íslendingum í sumar. Sigrún lagði rúnatöflur og las í rúnirnar örlög Arthúrs Björgvins og vinkonu hans. hafi dálæti á Aríum, þeir telji mikilvægt að standa vörð um evrópska menningu. Þeir vilji gera allt sem í þeirra valdi stendur til að forða því, að ljóshærðir og bláeygðir Aríar deyi út. Hinn aríski stofn sé nefnilega í bráðri hættu. Hann hafi reyndar löngum átt í vök að verjast, því þegar bláeygður og hörunds- bjartur maður gangi til ástarsamlags og geti barn með sér dekkri konu, verði niðurstaðan oftar en ekki í dökkum lit. Sigrún bendir einnig á, að tölur sýni svart á hvítu, að merkisberum hins bláeygða og bjarta kyns fækki óðum og þess verði ekki langt að bíða, að ljóshært og bláeygt fólk verið friðað. Það sé hins vegar hætta á að sú friðun komi of seint og Aríar verði aldauða. Þess vegna verði allir að leggjast á eitt til að afstýra ógæfunni. Þrátt fyrir að Armanir dái hið aríska kyn af trúarástæðum, líti þeir frá- leitt niður á fólk af öðrum kynþáttum. Þeir vilji þvert á móti halda góðum tengslum við alla vega litt fólk, án þess þó að blanda við það blóði. Sigrún segist sjálf hafa verið 4 ár í Afríku og eiga marga blakka vini. Hvað sem slíkri vináttu líður hvarfli það þó ekki að sér eða öðrum Armönum að samrekkja einstak- lingum af öðrum kynstofnum. Armanir leggi áherslu á nauðsyn þess að viðhalda hverjum stofni fyrir sig og blóðblöndun ólíkra stofna sé ævinlega til vansa. — í framhaldi af þeim orðum frúarinnar má nefna, að hugmynda- fræði Armana er ofin úr ýmsum litríkum þráðum. Hún á að nokkru rætur að rekja til dulspekingsins Guidós von List, sem setti fram kenningar sínar um síðustu aldamót, þar sem hann „afhjúpar" leyndan vísdóm hins „aríó-germanska“ kyns. Þessar hug- myndir voru frá upphafi andstæðar kristinni trú, enda líta Armanir á kirkjuna sem erki- fjanda. Þeir bera riddurum kristinnar trúar á brýn að hafa ráðist með brugðnum brandi að forngermönskum trúarbrögðum til þess eins að svala eigin valdafíkn. Þetta ofríki krist- inna manna telja Armanir undirrót flestra þeirra menningarkvilla, sem Evrópubúar hafi átt í höggi við á liðnum öldum. Enda þótt þar sé tæpast um vísvitandi tengsl að ræða minna árásir Armena á kirkjuna og klerkavaldið óneitanlega á hugmyndir þýska heimspekingsins Nietzsches, sem veittist að stofnunum kirkjunnar á líkum nótum á ofan- verðri 19du öld. En það er meira blóð í kúnni. Armanir eru ekki bara argir útí kirkjuna, heldur beina þeir spjótum sínum einnig að „auðvaldinu" (das Grosskapital), sem þeir telja að hafi hjálpað kirkjuvaldinu dyggilega við að reyra þjóðirnar í fjötra arðráns og kúgunar. Höf- uðpaurar „auðvaldsins" eru kaupahéðnar í Wallstreet og þeim fylgir halarófa af allskyns peningapúkum, svo sem frímúrurum, Lions- mönnum og fleirum. Enda þótt árásir Arm- ana á „auðvaldið“ hljómi á köflum líkt og forystugreinar í „Prövdu“ fer því fjarri, að Armanir séu hallir undir kommúnisma. Þvert á móti líta þeir svo á, að ríkiskap- ítalisminn í Sovét sé engu betri en auðvald- skerfið í vestri. Annar þáttur í fjölskrúðugu hugmyndasafni Armana er andúð þeirra á vísinda- og skynsemishyggju nýaldar, sem þeir telja að hafi rekið fleyg á milli manns og náttúru. Þessi andúð tengist þeirri náttúru- dýrkun, sem Armanir setja á oddinn. Þeir boða afturhvarf til „náttúrulegs" lífs og bar- áttu gegn þeirri „vélmenningu" sálarinnar, sem fylgdi í kjölfar iðnvæðingar og arðráns á auðlindum náttúrunnar. Mikilvægur liður í því að losa „vélaða“ nútímamenn úr ánauð- 36

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.