Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 39
MENNING
Ljóðskáld og lagasmiður. Leonard Cohen.
Leonard Cohen í Laugardalshöll
Leonard Cohen eitt helsta átrúnaðargoð
ungmenna á árunum í kringum 1970 heldur
tónleika í Laugardalshöll föstudaginn
24.júní. Petta er nefnt „Listahátíðarauki" í
dagskrá en Cohen hefur verið á hljómleika-
ferð um Evrópu að undanförnu.
Hinn kanadíski rithöfundur, ljóðskáld,
tónsmiður og flytjandi, Leonard Cohen, átti
miklum vinsældum að fagna í byrjun áttunda
áratugarins. En síðustu árin hefur hann sleg-
ið aftur í gegn. Hljómplötur hans hafa selst í
metupplagi; 5 milljónum eintaka utan
Bandaríkjanna en þar eru vinsældir hans
miklar.
Pó ljóðasmiðurinn og lagasmiðurinn sé orð-
inn hálf sextugur virðast nýjar kynslóðir bæt-
ast í hóp aðdáenda hans. Leonard Cohen
fæddist í Montreal sonur velmegandi gyð-
inga. Hann lauk námi í bókmenntum við
háskóla og hann hefur ætíð þótt eiga upp á
pallborðið hjá menntamönnum. Hann vann í
fjölskyldufyrirtækinu þegar fyrsta ljóðabók
hans kom út en flutti síðar til Englands, þá til
grísku eyjarinnar Hydru, þar sem hann skrif-
aði skáldsöguna,, Beautiful Losers". Síðar
flutti hann til Bandaríkjanna þar sem hann
stundaði lagasmíði og gaf út hljómplöturnar
vinsælu. Nýjasta platan, „Im your man“ hef-
ur hlotið frábærar viðtökur og enn hrífur
Cohen áheyrendur.
Gagnrýnendur segja sumir að söngvar og
ljóð Cohens séu syfjandaleg og í úrklippu úr
Herald Tribune er sögð dæmisaga af tveimur
frönskum kunningjum á hljómleikum hjá
Cohen. Annar segir: Þetta er nú meira grín-
ið, það er engu líkara en hann sé að sofna
upp á sviðinu. Hinn svarar: Það eru bara
kjánar sem hlægja að ljóðskáldi. Og skáldið
söng:
Like a bird on a wire
Like a drunk in a midnight choir.
I have tried
In my way
To be free.
(Snörun: Eins og fugl á grein/ Eins og
öivaður nátthrafn í söng/ Ég hef reynt/
Á minn hátt/ Að vera frjáls)
■óg
TRY6GING
MDVARORDID
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI621110