Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2012, Síða 44

Frjáls verslun - 01.08.2012, Síða 44
44 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. 2012 Á ári hverju kemur út gríðarlegur fjöldi bóka sem með einhverjum hætti hafa þann tilgang að hjálpa lesandanum að ná enn meiri árangri en áður. Þessar árangursbókmenntir eru gríðarlega misjafnar en eiga þó það sammerkt að í fæstum þeirra kemur fram einhver nýr sannleikur sem lesandinn hefur aldrei heyrt áður. Það sem allir höfundar þessara bóka reyna er að pakka í nýjar umbúðir því sem lesandinn veit en vill gjarnan láta minna sig á. Höf ­ undum tekst misvel upp en í tilfelli Michaels Heppells verður að viðurkennast að honum tekst afar vel í ætlunarverki sínu og þótt fátt nýtt sé að finna í bók­ inni tekst honum að setja það fram með þeim hætti að lesand­ inn á erfitt með að lesa í gegn­ um bókina án þess að merkja við áhugaverð atriði og/eða líta upp og hugsa hvernig þetta tiltekna atriði geti nýst honum til enn meiri árangurs. Bókin tekur á miklum fjölda árangursþátta allt frá því að beita innsæinu við ákvarðanatöku yfir í praktískari þætti svo sem góð ráð til að halda áhrifaríkari ræður og kynn ingar, og allt þar á milli. Sökum breiddar bókarinnar er dýptin á köflum ekki mikil en höf undur tiltekur reyndar ágætar ástæður fyrir því í formála, m.a. þá að algengara er en hitt að þeir sem bækur af þessum toga lesa séu mjög uppteknir og þurfi því ekki að tyggja hlutina ofan í fólk. Mikilvægara sé að flytja skilaboðin með skýrum og skorinorðum hætti. ÁraNgursHriNguriNN Eins og svo oft í bókum af þess­ um toga er grunnhugmynda­ fræði bókarinnar einföld, skýr og hittir beint í mark. Höfundur gengur út frá árangurshring sem er það sem helst einkenn­ ir þá sem árangri ná og eru „með’etta“. Hringinn mynda fjórir þættir; árangur, óánægja, lausn og aðgerðir. Samspil þessara fjögurra þátta er það sem einkennir þá sem ná ár angri og innan hvers þáttar rúmast fjölmargir aðrir sem bókin í sinni einföldustu mynd fjallar um. Hægt er að byrja hvar sem er en oftar en ekki byrjar ferlið á óánægjustiginu, þ.e.a.s. einstaklingar sem ná árangri eru líklegir til að spyrja spurninga eins og „hvernig er hægt að gera þetta betur“ og sætta sig ekki við núverandi ástand. Viðkomandi leitar þá lausna, grípur til aðgerða og nær þannig árangri. Tekið er t.d. dæmi af James Dyson sem sætti sig ekki við lélegan sogkraft ryksugu heimilisins og þá staðreynd að reglulega þyrfti að skipta um poka í henni. Hann leitaði lausna, greip til aðgerða og náði árangri. Hann fann upp Dyson­ryksuguna sem er kraftmeiri en hefð­ bundnar ryksugur og án poka. Þessi uppfinning hans hefur fært honum og fyrirtæki hans mikinn auð. „Hægt er að byrja hvar sem er en oftar en ekki byrjar ferlið á óánægjustiginu, þ.e.a.s. einstaklingar sem ná árangri eru líklegir til að spyrja spurninga eins og „hvernig er hægt að gera þetta betur“ og sætta sig ekki við núverandi ástand.“ Stundum koma upp í hendurnar á manni fyrir tilviljun bækur sem koma á óvart. Bókin The Edge eftir breska rithöfundinn og fyrirlesarann Michael Heppell er ein þeirra. Í henni fjallar höfundur um hvað einkennir þá ein- staklinga sem einhverra hluta vegna ná lengra en meðaljóninn og hafa það sem höfundur kallar „the edge“. Hvernig þeir bestu verða enn betri TexTi: unnur valborG HilMarSdóTTir Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórnendaþjálfari hjá vendum „með’etta“?Ert þú bækur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.