Frjáls verslun - 01.08.2012, Blaðsíða 72
72 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. 2012
HösKuLDuR ÓLAFssoN, BANKAsTjÓRi ARioNBANKA
Skuldir lækka, eftirspurn eykst
1. Hver verða forgangs verk efni
fyrirtækis þíns næstu sex mán -
uðina?
Við erum stöðugt að leita leiða
við að þjónusta viðskiptavini
okkar betur og bjóða þeim
upp á nýjungar. Það er ávallt
for gangsverkefni hjá okkur
og munum við halda áfram
á þeirri braut. Hvað varðar
rekst ur bankans sjálfs þá verð
ur áfram lögð áhersla á kostn
aðaraðhald innan bank ans,
með það að markmiði að auka
skilvirkni í rekstri.
2. Hver er kjarninn í
stefnumótun fyrirtækis þíns?
Kjarninn í okkar stefnu og
verkum dag frá degi felst
fyrst og fremst í því að veita
við skiptavinum okkar góða
þjónustu. Ekki síst að veita
þeim sem það kjósa, einstakl
ingum og fyrirtækjum, þjón
ustu sem sérsniðin er að þeirra
þörfum. Til að geta gert það
þurfum við að vera í góðu
sam bandi við viðskiptavinina
og þekkja óskir þeirra og
þarfir, sem er okkar stefna. Við
leggjum okkur fram við að
upp fylla væntingar við skipta
vinanna og leitumst stöðugt
við að fara fram úr væntingum
þeirra.
3. Hafa tekjur fyrirtækis þíns
vaxið frá því í fyrra?
Já, tekjur bankans hafa vaxið
það sem af er ári. Við hefðum
alveg viljað sjá meiri vöxt og
þá ekki síst í þóknanatekjum
bankans. En það verður eitt af
okkar verkefnum næstu miss
erin að auka þær enn frekar.
Það ætlum við okkur að gera
með því einfaldlega að bjóða
upp á þjónustuþætti sem við
skiptavinir okkar vilja nýta sér
og greiða fyrir.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægð astur með innan þíns
fyrirtækis á árinu?
Það sem mestu skiptir er sá
stöðugleiki sem kominn er í
starfsemi bankans. Þótt vissu
lega sé ákveðin óvissa enn til
staðar og kannski ekki síst í
ytra umhverfi þá er komið
ákveðið jafnvægi í reksturinn.
Við erum vel í stakk búin til að
takast á við krefjandi verkefni
sem og hið kvika umhverfi
sem við störfum í. Við höfum
á undanförnum árum náð að
byggja upp fjármálafyrirtæki
sem er sterkt og er það sá
ár angur sem ég er ánægðastur
með.
5. Hver er helsti vandinn sem
fyrirtæki glíma núna við?
Þróunin undanfarið hefur
um margt verið jákvæð. Al
mennt hefur skuldsetning
fyrir tækja minnkað, eftirspurn
er að aukast og við njótum
hagvaxtar sem er yfir meðaltali
ná grannalanda okkar. Ísland
er hluti af umheiminum og
verðum við því um margt að
takast á við sömu áskoranir
og aðrir. En almennt held ég
að ýmsir óvissuþættir valdi
fyrir tækjum einna mest um
vanda í dag, t.d. gjald eyris
höft in og afnám þeirra, þróun
eftirspurnar í Evrópu og einnig
breytingar á laga og skatta
umhverfi fyrir tækja. Þá velti ég
því nú stund um fyrir mér hvort
við erum ekki of gjörn á að
gera okkur sjálfum erfitt fyrir
og forgangs röðum illa. Það er
óeining um of mörg viðamikil
mál.
6. Er atvinnulífið enn of
skuldugt til að geta byrjað að
fjárfesta?
Almennt tel ég svo ekki vera.
Vissulega eru fjölmörg fyrirtæki
enn verulega skuldsett og eiga
vafalaust erfitt um vik. En það
er ekki algilt. Að mörgu leyti
snýst þetta um trú á framtíðina,
að trúa því að þrátt fyrir
ákveðna óvissuþætti sé þeim
stöðug leika náð að hægt sé að
gera plön fram í tímann sem
muni ganga eftir. Ég vil trúa
því að við séum komin á þann
stað í endurreisninni.
7. Eitthvert eitt ráð sem þú vilt
gefa stjórnvöldum?
Það mikilvægasta er að eyða
þeim óvissuþáttum sem eru
á þeirra borði í stað þess að
bæta við. Það þarf að skýrast
sem allra fyrst hver tilhögun
sjávarútvegs og auðlindamála
verður hér á landi og forsvars
menn fyrirtækja þurfa al
mennt að fá vissu fyrir því að
laga og skattaleg umgjörð
rekstrar þeirra muni ekki taka
stakkaskiptum á næstu miss
erum. Stöðugleiki og fyrir
sjáanleiki er held ég eitt hvað
sem íslensk fyrir tæki óska
eftir. Mér hefur fund ist vanta
þarna upp á og tölu verðrar
skammsýni gæta í þess um
málum.
„Við höfum á undanförnum árum
náð að byggja upp fjármála fyrir tæki
sem er sterkt og er það sá ár angur
sem ég er ánægðastur með.“
Höskuldur Ólafsson.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Það er alvarlegt að missa vinnuna. Áfallið er ekki aðeins
fjárhagslegt heldur einnig sálrænt og mikilvægt að
atvinnuleitendur komist sem allra fyrst út á
vinnumarkaðinn á ný.
Það er nefnilega ekki bara gott fyrir heimilisbókhaldið
og atvinnulífið í landinu að sem flestir hafi vinnu, heldur
mikilvægt að sem flestir séu virkir í samfélaginu.
VR býður víðtæka þjónustu fyrir atvinnuleitendur
í samstarfi við Starf – vinnumiðlun og ráðgjöf.
Við hvetjum atvinnurekendur til að sýna samfélagslega
ábyrgð og kynna sér þjónustu VR við atvinnuleitendur
og styðja við bakið á þeim sem þurfa á aðstoð
að halda. Þannig græðum við öll.
Ekki henda
verðmætum