Frjáls verslun - 01.08.2012, Page 80
80 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. 2012
RAGNAR GuðMuNDssoN, FoRsTjÓRi NoRðuRáLs
þurfum skýrari stefnu
1. Hver verða forgangs verk -
efni fyrirtækis þíns næstu sex
mán uðina?
Framundan eru spennandi en
jafnframt krefjandi verkefni
hjá Norðuráli sem fela í sér
framleiðsluaukningu á Grund
ar tanga og uppbyggingu nýs
álvers í Helguvík.
2. Hver er kjarninn í stefnu-
mótun fyrirtækis þíns?
Hagsýni, liðsheild og heilindi
eru þau gildi sem við höfum að
leiðarljósi.
3. Hafa tekjur fyrirtækisins
vaxið frá því í fyrra?
Álverð hefur lækkað um 15% á
milli ára og það kemur fram í
lækkun tekna hjá okkur.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægð astur með innan þíns
fyrirtækis á árinu?
Vel hefur gengið að leggja
grunn að framtíðinni á
Grundartanga og það sama
má segja um undirbúning og
viðræður vegna Helguvíkur.
Rekst urinn á Grundartanga
hefur gengið vel, innleiðing
gæðavottunarkerfis, ISO9001,
sem og annað sem starfsfólk
Norður áls hefur stjórn á. Á
móti kemur að álverð hefur
verið allnokkru lægra en í fyrra.
5. Hver er helsti vandinn sem
fyrirtæki glíma núna við?
Endurreisnin hefur gengið
hægt og illa og óvissuþættir
eru fjölmargir. Þá er ótækt að
fyrirtæki á alþjóðlegum sam
keppnismarkaði geti ekki
treyst því að stjórnvöld standi
við gerða samninga, líkt og
þá sem skrifað var undir við
núverandi ríkisstjórn um aukna
skattheimtu. Sú skattheimta
átti að vera tímabundin en það
loforð virðast ráðamenn ekki
ætla að efna.
6. Er atvinnulífið enn of
skuld ugt til að geta byrjað að
fjárfesta?
Þessi vandi snertir Norðurál
ekki með beinum hætti, þar
sem fyrirtækið er ekki í skuld
við lánastofnanir. Réttaróvissa
á vafalaust sinn þátt í hversu
langan tíma hefur tekið að leysa
úr þessum málum almennt og
ég velti fyrir mér hvort það sé
ekki hægt að gera dómskerfið
hraðvirkara.
7. Eitthvert eitt ráð sem þú vilt
gefa stjórnvöldum?
Skýra þarf línur til lengri tíma.
Það er óvissa uppi um framtíð
íslensks sjávarútvegs og einnig
um rammaáætlun, sem unnið
hefur verið að faglega í fjölda
ára en stefnt er í hættu vegna
pólitískra afskipta. Sterkar
útflutningsgreinar, sem eru í
fremstu röð á heimsvísu, eru
styrkur okkar nú og mögu
leik ar til framtíðar eru miklir
ef rétt er haldið á málum.
Stjórn völd verða að vinna með
atvinnulífinu og leggjast á árar
með vinnandi fólki.
„Hagsýni, liðsheild og heilindi
eru þau gildi sem við höfum að
leiðarljósi. “
Ragnar Guðmundsson.