Frjáls verslun - 01.01.2014, Síða 12
Hún lifði af É
g er svolítið feimin við
að segja frá því; en
ég talaði til Íslands,
en ekki guðs, þegar
ég hélt að dagar
mínir væru taldir.“
Þann ig komst franska stúlkan Maylis
Lass erre að orði við Pál Stefánsson
ljósmyndara fljótlega eftir að hún
fannst á heiðinni upp af Heydal, á
milli Mjóafjarðar og Skötufjarðar, eftir
að hafa verið týnd í tvo daga. Maylis
er rúmlega tvítug; hún hafði komið
til Mjóafjarðar við Ísafjarðardjúp
nokkrum dögum áður til að vinna á
ferðaþjón ustubænum Heydölum yfir
sumarið. Páll var á ferð ásamt Eygló
Svölu Arnardóttur blaðamanni fyrir
tímaritið Ice land Review sem Heimur
gefur út. Þjökuð eftir hrakninga í 38
klukkustundir veitti hún stutt viðtal og
myndatöku. Mynd Páls af Maylis er
núna orðin að verðlaunamynd – hún
var á dögunum valin bæði mynd
ársins og portrett ársins á árlegri
verðlaunahátíð hjá Blaðamannafélagi
Íslands og Blaðaljós myndarafélagi
Íslands. Í umsögn dómnefndar segir
að myndin sé tilfinningaþrungið
portrett sem fangi athygli áhorfenda
samstundis, veki óræðar tilfinningar
og láti áhorfendur vilja vita meira
um viðfangsefnið, hver hún sé og
hvað hafi komið fyrir. Maylis ákvað
föstudagsmorguninn 31. maí að
fara í tveggja tíma gönguferð upp
á fjallið ofan við Heydal þar sem
hún vann og dvaldi. En hún villtist í
niðaþoku og lenti í sjálfheldu. Hún
fannst ekki fyrr en 38 tímum síðar, að
kvöldi laugar dagsins 1. júní. Hún hafði
gengið um tíma berfætt í snjónum;
rammvillt. Hún var niðurkæld þegar
hún fannst. Líkamshitinn var kominn í
34° gráður og hún var mjög illa á sig
komin til fótanna. Tæplega þrjú hundr
uð björgunar sveitarmenn, auk þyrlu
Landhelgisgæslunnar, höfðu leitað
að henni alla helgina. „Ég hugsaði
með mér uppi á heiðinni, í kaldri og
dimmri þokunni, að það væri synd
að ég sæi ekki meira af Íslandi áður
en yfir lyki. Það væri heimskulegt að
deyja núna,“ segir Maylis.
„Ég segi bara takk, duglega stúlka,“
segir Páll um myndina af Maylis.
Þess má geta að Kjartan Þorbjörns
son, ljósmyndari á Morgunblaðinu,
fékk einnig tvenn verðlaun á
hátíðinni; fyrir myndröð og „daglegt
líf“ ársins. Þá hlaut Baldur Hrafnkell
Jónsson verðlaun fyrir besta mynd
skeið fréttatökumanns í ljósvaka
miðlum. Páll Stefánsson um verðlaunamyndina: „Ég segi bara
takk, duglega stúlka.“
Verðlaunamyndin er af Maylis; hinni tvítugu
frönsku stúlku sem fannst eftir að hafa verið týnd
á Vestfjörðum sl. sumar í um 38 klukkustundir.
Mynd ársins
Sagan á bak vIð myndIna af maylIS:
12 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
TexTi: jón G. HauKsson / Mynd: Páll sTefánsson
Franska stúlkan Maylis skömmu eftir að hún fannst heil á húfi eftir 38 tíma leit.