Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 42
42 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
Margret Flóvenz segir að gæði ákvarðana ráðist meðal annars af þeim
forsendum sem liggja þeim til
grundvallar. Umhverfið í viðskipt
um, og samfélagið allt reyndar,
breytist hraðar en áður þekktist.
Það felur meðal annars í sér að
þeir sem taka lykilákvarðanir í
viðskiptum eða á öðrum vettvangi
verða að leggja sig eftir því að
byggja þær á nýjustu og bestu
upplýsingum.
„Oft er reynt að bregðast við
þess um aðstæðum með því
að koma sér upp kerfum og
aðferðum til að draga saman
mikið safn gagna. Það eitt og
sér að safna saman gögnum
og við skiptaupplýsingum dugir
hins vegar skammt ef ekki eru
fyrir hendi tæki og þekking til að
greina gagnasafnið og draga fram
upplýsingar og einstaka mæli
kvarða sem skipta viðkomandi
at vinnugrein eða fyrirtæki máli.
Hér á gamla máltækið að sjá ekki
skóginn fyrir trjánum að mörgu
leyti við.
Gagnamagnið eitt og sér getur
komið í veg fyrir að menn greini
þróun eða átti sig á mikilvægum
breytum. Það skiptir því miklu
máli að skilgreina hvaða upp lý s
ingum maður er að leita eftir og
hvaða upplýsingar koma manni
að mestu gagni en láta ekki kerfin
stýra því.
Þeir sem ná árangri í að greina
upplýsingar og nýta sér þær til að
taka skynsamlegar og framsýnar
ákvarðanir ná sér í samkeppnis
forskot á þessum tímum þegar
sífellt verða til nýjar upplýsingar
og nýjar tegundir af gögnum og
sífellt þarf að vera að endurskoða
forsendur og ákvarðanir.“
maRgReT flÓVeNz
– stjórnarformaður kPmgEndurskoðun
Að vanda sig
gÍSli kRiSTJÁNSSoN
– blaðamaður
STJÓRnUnAR-
MOLi
Stundum er eins og skortur á frumkvæði leggist yfir vinnustaði. Engum dettur
neitt snjallt í hug og enginn þorir
að nefna nýjar hugmyndir. Þetta
er ekki gott. Það skortir skap andi
anda á vinnustaðinn. Og hér er úr
vöndu að ráða. Það er ekki hægt
að skipa fólki að bæta aðeins við
snilligáfuna. Engu að síður lánast
sumum stjórum fremur en öðrum
að skapa andrúmsloft frumkvæðis
á vinnustað. Það eru stjórar sem
koma hlutum svo fyrir að fólki
finnist sem nú sé „veður til að
skapa“ eins og skáldið sagði.
En hvað er til ráða? Hér eru tíu ráð
sem eignuð eru Nolan Bushnell,
forstjóra Atari.
1Vinnustaðurinn er eins og auglýsing. Það skiptir miklu að vinnustaðurinn endur
spegli þann anda sem vinnuveit
andinn vill að ríki í fyrirtækinu.
Ef áherslan er á skapandi
starf er óreiða í góðu lagi. Útlit
vinnustaðarins er auglýsing fyrir
fyrirtækið.
2Ástríða í augunum. Það er mikilvægt að ráða ástríðufullt fólk. Ástríðan sést í
augum þess. Ástríðufullt fólk talar
líka mest um hugsjónir sínar og
minna um fyrri reynslu, sem oft er
vörðuð mistökum.
3Fúll á móti er mikilvægur. Vandinn í umgengni við hrokafulla beturvitrunga er
að þeir hafa svo oft rétt fyrir sér.
Þeir eru leiðinlegir, hlusta ekki
á samstarfsfólk, en hafa mikið
sjálfstraust og þora að troða hug
myndum sínum upp á aðra. Oft
eru þetta góðar hugmyndir.
4Hvað ertu að lesa? Ástríðufullt fólk les bækur, labbakútarnir lesa ekki. Því
ætti fyrsta spurning við manna
ráðningar að vera: Hvað ertu að
lesa núna?
5Réttur maður á rangri hillu. Það er ekki víst að allir í fyrirtækinu séu á réttri hillu.
Því er rétt að bera úrlausnir undir
fólk sem ekki hefur með þau
vanda mál að gera. Oft koma
óvæntir hæfileikar í ljós.
6Partí! Það á að vera skemmti legt í vinnunni. Þess vegna er nauðsynlegt
að bjóða öllum í partí reglulega.
Það bætir samskipti fólks og
skapar skemmtilegt andrúmsloft.
7Sjálfstæði. Of þungt skipulag innan fyrirtækis drepur niður sköpunargáfuna.
Hættan er að sjálfur reksturinn
verði aðalatriðið í starfseminni.
Því er gott að láta fólk vinna í
sjálfstæðum hópum með frelsi til
að taka eigin ákvarðanir.
8Holl mistök. Ekki heppnast allt en mistök þurfa ekki að vera alvarleg. Þess vegna
á að fyrirgefa mistök og leggja
áherslu á að læra af þeim.
9Fækka neimönnum. Það er ekki gott ef margir neimenn safnast upp
í fyrir tæki. Þeir eru hins vegar
góðir í hófi til að halda fólki niðri
á jörðinni. Hvað um að banna
meirihluta starfsmanna að nota
orðið nei?
10Leikir á vinnustað. Börn fá útrás fyrir sköpunarþrá sína í
leikjum. Fullorðið fólk hættir að
leika sér og missir þá oft um leið
hæfileikann til að skapa. Leikir
á vinnustað eru barnalegir en
viðhalda skapandi hugsun.
Fúll á móti er
mikilvægur
skoðun
Investment
p a s s i o n f o r
www.nasdaqomx.com/listing/europe