Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 61

Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 61
heimsmynd eða skoðunum að í fréttum sem er ætlað að vera hlutlægar. Viltu láta selja RÚV, er þörf fyrir ríkis ­ útvarp á frjálsum fjölmiðla markaði? Þrátt fyrir allt þykir mér nú alltaf vænt um Ríkisútvarpið og hef alltaf verið and ­ vígur sölu þess. Hins vegar hefur það undarlega gerst á undanförnum árum að maður er farinn að heyra það æ oftar á fundum hjá flokknum víðs vegar um landið hvort það sé einhver ástæða fyrir ríkið að vera að halda úti ríkisútvarpi ef það passar ekki upp á hið lögbundna hlutverk sitt. Þetta var nokkuð sem ég heyrði aldrei á fyrstu árum mínum í pólitíkinni. Og ef ég ber saman umfjöllun RÚV um fyrri ríkisstjórn og þessa þá skulum við segja að mér finnist að mátt hefði vera meira jafnvægi þarna á milli. Það er mikið rætt um náttúruvernd. Erum við að ganga of nærri náttúrunni í virkjunarmálum? Ég er sjálfur mikill umhverfissinni. Ey steinn Jónsson var það líka. Ég hitti Vilhjálm Hjálmarsson, gamla ráðherrann, sem verður 100 ára á þessu ári. Hann var mikill vinur Eysteins og samherji og skrifaði ævisögu hans. Við fórum að ræða þessa umhverfisumræðu eins og hún er í dag. Vilhjálmur sagði: Eysteinn var gríðarlega mikill umhverfisverndarsinni og vann ötullega að þeim málum. En honum hefði aldrei dottið í hug að vera á móti virkjunum. Það er málið. Við erum með þessar umhverfisvænu og sjálfbæru virkjanir, græna orku, og ég myndi segja umhverfisvænasta land í heimi. Þess vegna er það með ólíkindum að umræðan um þennan málaflokk skuli stundum vera eins og við séum mestu umhverfissóðar á byggðu bóli. Þetta er afar skrítin umræða, annars vegar í umhverfismálum og hins vegar í sjávarútvegsmálum. Hingað kom David Miliband þegar hann var utan ­ ríkisráðherra Bretlands til að ræða sjávar ­ útvegsmál. Okkur var boðið til fundar við hann, einum fulltrúa frá hverj um flokki. Ég sagði honum að við vær um hér með sjávarútsvegskerfi sem væri arðbært, ekki ríkisstyrkt heldur skilaði verulegum fjármunum til ríkisins. Svo væri það líka umhverfisvænt. En líklega væru 70% þjóðarinnar aðspurð í könnunum á móti þessu kerfi. Hann botnaði hvorki upp né niður í því hvernig það gæti verið. Enda stendur nú ESB fyrir því sem Times kallaði ríkisstyrkta rányrkju í sjávarútvegi, ríkis ­ stuðning við ofveiði. En hér á Íslandi erum við með þessa umhverfisvænu orku og við erum með þenn an umhverfisvæna og arðbæra sjávar útveg, en samt mega þessar greinar búa við endalausan áróður gegn sér ár og síð, og maður sér best samhengið þegar maður ræðir þessi mál við útlendinga. Þeim kem ur á óvart að hér skuli vera eitthvert stríð um umhverfismál. Þess vegna segi ég að umræðan um umhverfismál hér á landi er á algjörum villigötum. Samt vil ég bæta því við að ég sé eftir hverjum fermetra gróins lands sem fer undir lón en menn verða alltaf að vega og meta hags muni. Ekkert er útgjaldalaust og við eigum ennþá virkjunarkosti þar sem ávinn ingurinn af því að virkja er meiri en fórnar kostnaðurinn. Tökum sem dæmi Norðlingaölduveitu sem nú er allt í einu orðin umdeild. Látið er eins og verið sé að sökkva miklu landi með þessari umhverfis­ vænu miðlun en því fer víðs fjarri. Big Brands Online Reykjavik Internet Marketing Conference 2014 Framundan er glæsilegasta Reykjavik Internet Marketing Conference (RIMC) ráðstefna sem haldin hefur verið. Aðalþema hennar er „Stór vörumerki á netinu“ með áherslu á félagsmiðla og samspil þeirra á markaðshagkerfi fyrirtækja. Meðal fyrirlesara eru topparnir í félagsmiðlum, leitarmarkaðssetningu og netsamskiptum frá KLM, Heineken, Geox, Roland, Nokia, Dell og Money & Travel Supermarket. Auk þeirra koma framkvæmdastjóri Google í Noregi, Jan Grønbech og framkvæmdastjóri Lenovo.com, Ajit Sivadasan. RIMC 2014 fer fram 28. mars á Grand Hotel Reykjavík Sjá allar nánari upplýsingar á heimasíðunni www.rimc.is European Search Awards 2014 European Search Awards er alþjóðleg samkeppni, meðal þeirra virtustu í internet markaðssetningu í Evrópu. Hátíðin er í boði Manual Link Building og SEMPO og verða verðlaunin afhent í tengslum við RIMC 2014. Verðlaunahátíðin verður á Grand Hotel Reykjaví k að kvöldi 28.mars. Hér má sjá allar tilnefningarnar: www.europeansearchawards.com/2014-shortlist Við erum með þessar um hverfis­ vænu og sjálfbæru virkjanir, græna orku, og ég myndi segja umhverfisvænasta land í heimi. Þess vegna er það með ólíkindum að umræðan sé stund um eins og við séum mestu umhverfissóðar á byggðu bóli.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.