Frjáls verslun - 01.01.2014, Qupperneq 61
heimsmynd eða skoðunum að í fréttum
sem er ætlað að vera hlutlægar.
Viltu láta selja RÚV, er þörf fyrir ríkis
útvarp á frjálsum fjölmiðla markaði?
Þrátt fyrir allt þykir mér nú alltaf vænt
um Ríkisútvarpið og hef alltaf verið and
vígur sölu þess. Hins vegar hefur það
undarlega gerst á undanförnum árum
að maður er farinn að heyra það æ oftar
á fundum hjá flokknum víðs vegar um
landið hvort það sé einhver ástæða fyrir
ríkið að vera að halda úti ríkisútvarpi
ef það passar ekki upp á hið lögbundna
hlutverk sitt. Þetta var nokkuð sem ég
heyrði aldrei á fyrstu árum mínum í
pólitíkinni. Og ef ég ber saman umfjöllun
RÚV um fyrri ríkisstjórn og þessa þá
skulum við segja að mér finnist að mátt
hefði vera meira jafnvægi þarna á milli.
Það er mikið rætt um náttúruvernd.
Erum við að ganga of nærri náttúrunni
í virkjunarmálum?
Ég er sjálfur mikill umhverfissinni.
Ey steinn Jónsson var það líka. Ég hitti
Vilhjálm Hjálmarsson, gamla ráðherrann,
sem verður 100 ára á þessu ári. Hann
var mikill vinur Eysteins og samherji og
skrifaði ævisögu hans. Við fórum að ræða
þessa umhverfisumræðu eins og hún
er í dag. Vilhjálmur sagði: Eysteinn var
gríðarlega mikill umhverfisverndarsinni
og vann ötullega að þeim málum. En
honum hefði aldrei dottið í hug að vera á
móti virkjunum. Það er málið. Við erum
með þessar umhverfisvænu og sjálfbæru
virkjanir, græna orku, og ég myndi segja
umhverfisvænasta land í heimi. Þess vegna
er það með ólíkindum að umræðan um
þennan málaflokk skuli stundum vera
eins og við séum mestu umhverfissóðar á
byggðu bóli. Þetta er afar skrítin umræða,
annars vegar í umhverfismálum og hins
vegar í sjávarútvegsmálum. Hingað kom
David Miliband þegar hann var utan
ríkisráðherra Bretlands til að ræða sjávar
útvegsmál. Okkur var boðið til fundar við
hann, einum fulltrúa frá hverj um flokki.
Ég sagði honum að við vær um hér með
sjávarútsvegskerfi sem væri arðbært,
ekki ríkisstyrkt heldur skilaði verulegum
fjármunum til ríkisins. Svo væri það líka
umhverfisvænt. En líklega væru 70%
þjóðarinnar aðspurð í könnunum á móti
þessu kerfi. Hann botnaði hvorki upp né
niður í því hvernig það gæti verið. Enda
stendur nú ESB fyrir því sem Times kallaði
ríkisstyrkta rányrkju í sjávarútvegi, ríkis
stuðning við ofveiði. En hér á Íslandi erum
við með þessa umhverfisvænu orku og
við erum með þenn an umhverfisvæna
og arðbæra sjávar útveg, en samt mega
þessar greinar búa við endalausan áróður
gegn sér ár og síð, og maður sér best
samhengið þegar maður ræðir þessi mál
við útlendinga. Þeim kem ur á óvart að hér
skuli vera eitthvert stríð um umhverfismál.
Þess vegna segi ég að umræðan um
umhverfismál hér á landi er á algjörum
villigötum. Samt vil ég bæta því við að ég
sé eftir hverjum fermetra gróins lands sem
fer undir lón en menn verða alltaf að vega
og meta hags muni. Ekkert er útgjaldalaust
og við eigum ennþá virkjunarkosti þar sem
ávinn ingurinn af því að virkja er meiri en
fórnar kostnaðurinn. Tökum sem dæmi
Norðlingaölduveitu sem nú er allt í einu
orðin umdeild. Látið er eins og verið sé að
sökkva miklu landi með þessari umhverfis
vænu miðlun en því fer víðs fjarri.
Big Brands Online
Reykjavik Internet Marketing Conference 2014
Framundan er glæsilegasta Reykjavik Internet Marketing Conference (RIMC) ráðstefna sem haldin
hefur verið. Aðalþema hennar er „Stór vörumerki á netinu“ með áherslu á félagsmiðla og samspil
þeirra á markaðshagkerfi fyrirtækja.
Meðal fyrirlesara eru topparnir í félagsmiðlum, leitarmarkaðssetningu og netsamskiptum
frá KLM, Heineken, Geox, Roland, Nokia, Dell og Money & Travel Supermarket.
Auk þeirra koma framkvæmdastjóri Google í Noregi, Jan Grønbech og framkvæmdastjóri
Lenovo.com, Ajit Sivadasan.
RIMC 2014 fer fram 28. mars á Grand Hotel Reykjavík
Sjá allar nánari upplýsingar á heimasíðunni www.rimc.is
European Search Awards 2014
European Search Awards er alþjóðleg samkeppni, meðal þeirra virtustu í internet markaðssetningu
í Evrópu. Hátíðin er í boði Manual Link Building og SEMPO og verða verðlaunin afhent í tengslum
við RIMC 2014.
Verðlaunahátíðin verður á Grand Hotel Reykjaví k að kvöldi 28.mars.
Hér má sjá allar tilnefningarnar: www.europeansearchawards.com/2014-shortlist
Við erum með þessar um hverfis
vænu og sjálfbæru virkjanir,
græna orku, og ég myndi
segja umhverfisvænasta land í
heimi. Þess vegna er það með
ólíkindum að umræðan sé
stund um eins og við séum mestu
umhverfissóðar á byggðu bóli.