Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 65

Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 65
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 65 skilgreint sem vendipunktur, þ.e. þeir sem hafa PQ 75 eða hærra nýta hugann til að lyfta sér upp á meðan þeir sem hafa PQ lægra en 75 eru sífellt að láta hann draga sig niður. 80% einstaklinga og liðsheilda hafa jákvæðnivísitölu lægri en 75. Það er þess vegna sem 80% ein staklinga og liðsheilda ná ekki besta mögulega árangri og hamingju. Ræktaðu PQ­ vöðvann Höfundur tekur skýrt fram að já ­ kvæðnigreindarvísitalan sé ekki meitluð í stein heldur sé hægt að hækka hana og þar með auka þann tíma sem hug urinn vinnur okkur í hag og þar með auka árangur. Í bókinni setur höfundur fram æfingar sem eru til þess hugsaðar að rækta „PQ­vöðv­ ann“ eins og hann kallar það og þar með hækka jákvæðni­ greindarvísitöluna. Hann hefur jafnframt gert rannsóknir á því hver áhrif hækkunarinnar eru og samkvæmt þeim er vel til þess vinnandi að hækka jákvæðni­ greindarvísitöluna. Skýrt og einfalt Bókin er einkar skýrt upp sett og nálgast viðfangsefnið á einfaldan og aðgengilegan hátt. Höfundi tekst að leiða lesandan ­ um fyrir sjónir hvað það er sem hindrar besta mögulegan árang­ ur og sér honum fyrir leiðum til að komast yfir þær hindranir. Tekin eru raundæmi um aðila sem hafa beitt tækninni og eru þau dæmi lýsandi og vel skrifuð. Matstækin sem fylgja bókinni eru skýr og auðleysanleg og virðast nokkuð vel geta greint skemmdarvargana. Skýrslurnar sem fást þegar prófin eru tekin á netinu eru sérstaklega greinar­ góðar og innihalda lykilkafla úr bókinni og nýtast því fólki hvort sem það hefur lesið bókina eða ekki. Hér eru á ferðinni verkfæri sem nýtast flestum þeim sem til­ búnir eru til að skoða sjálfan sig og gera breytingar í rétta átt til þess að ná auknum árangri. Shirzad Chamine. Skýrslurnar sem fást þegar prófin eru tekin á netinu eru sérstaklega greinar­ góðar og innihalda lykilkafla úr bókinni. Ítarefni á vefnum Á vefsíðu bókarinnar www.positiveintelligence.com má finna mikið ítarefni. Útskýringar á hugmyndafræðinni, greinargóðar skýringar myndir og síðast en ekki síst er þar að finna matstæki sem bæði meta þá skemmdarvarga sem hugsanlega há þér mest í þínu daglega lífi og eins tæki sem metur jákvæðnigreindarvísitölu- na. Aðeins með því að gera þér grein fyrir hvað stendur í vegi fyrir þínum hámarksárangri geturðu brugðist við og gert nauðsynlegar breytingar til árangurs. dómarinn (The Judge) – Finnur að sjálfum sér, öðrum og aðstæðum. Veldur vonbrigðum, reiði, eftirsjá, sektarkennd, skömm og kvíða. Hinn ósveigjanlegi (The Stick- ler) – Fullkomnunar­ og skipu­ lagsáráttan fer út í öfgar. Þóknarinn (The Pleaser) – Reynir að fá samþykki og hrifn­ ingu annarra með því að hjálpa öðrum, þóknast þeim eða hrósa. Missir sjónar á eigin þörfum og verður gramur fyrir vikið. Sá árangursdrifni (The Hyper- Achiever) – Þörf fyrir stöðugan árangur og sigra til að viðhalda sjálsvirðingunni. Beinir sjónum að ytri árangri sem leiðir til „vinnu ­ alka einkenna“ og þess að hann tapar tengslum við tilfinningar sínar og mikilvæg sambönd. Fórnarlambið (The Victim) – Tilfinningasamur og skapstyggur til að fá athygli og umhyggju. Beinir kastljósinu að tilfinningum sínum, sér í lagi þeim neikvæðu. Stundum píslarvottur. Hinn rökfasti (The Hyper- Rational) – Ofuráhersla á rökfærslu við allar aðstæður, þar með talið í samskiptum. Getur virst kaldur, fjarlægur og hrokaflullur. Hinn árvakri (The Hyper Vigilant) – Stöðugur og mikill kvíði í garð allra mögulegra hætta og mistaka. Árveknin fær aldrei hvíld. Hinn eirðarlausi (The Rest- less) – Eirðarleysi, stöðugt í leit að meiri spennu í næsta verkefni eða stöðugt upptekinn. Finnur sjaldan ró eða sátt í þeim verkefn um sem unnið er í hverju sinni. Hinn stjórnsami (The Controll- er) – Þörf til að taka stjórn í eigin hendur og stýra aðstæðum og fólki að eigin vilja. Mikill kvíði og óþolinmæði þegar ekki tekst að taka stjórn. Flóttamaðurinn (The Avoider) – Einblínir á öfgafullan hátt á allt það jákvæða og þægilega. Forðast erfið og óþægileg verk sem og ágreining. Með því að koma auga á hvaða skemmdavargar eru ríkjandi í huga okkar getum við brugðist við þeim þegar þeir láta á sér kræla og minni líkur á að þeir lækki jákvæðnigreindina og komi þar með niður á árangri okkar. PQ-jákvæðnigreindarvísitalan Þeir sem hafa PQ 75 eða hærra nýta hugann til að lyfta sér upp á meðan þeir sem hafa PQ lægra en 75 eru sífellt að láta hann draga sig niður. 80% einstaklinga og liðsheilda hafa jákvæðnigreindarvísitölu lægri en 75. Það er þess vegna sem 80% einstaklinga og liðsheilda ná ekki besta mögulega árangri og hamingju. Áhrifin • Gerð var greining á meira en 200 vísindalegum rannsóknum samtals á meira en 275 þúsund manns um áhrif hækkaðs PQ. Niðurstöðurnar leiddu meðal annars eftirfarandi í ljós. • Sölumenn með hærra PQ selja 37% meira en sölumenn með lágt PQ. • Starfsmenn með hátt PQ taka færri veikindadaga og eru síður líklegir til að upplifa kulnun í starfi eða hætta. • Nemendur sem hækka jákvæðnigreindarvísitölu sína standa sig betur á stærðfræðiprófum. • Samanburður á 60 liðsheildum leiddi í ljós að PQ-gildi teymis- ins var besta vísbendingin um árangur teymisins. • Forstjórar með hærra PQ eru líklegri til að leiða hamingjusam- ar liðsheildir sem segja vinnuumhverfið hvetja til bættrar frammistöðu. • Læknar með hækkað PQ sjúkdómsgreina sjúklinga sína ná - kvæmar og hraðar. • Verkefnahópar með sem hækka PQ-gildi sitt standa sig 31% betur að meðaltali þegar aðrir þættir eru jafnir. SKEMMdARVARG ARNIR 10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.