Frjáls verslun - 01.01.2014, Síða 67
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 67
7) Tímaskyn hverfur – Fólk
upplifir tímann öðruvísi en við
venjulegar aðstæður. Tíminn
skiptir minna máli, bara að fá
að halda áfram.
8) Að sleppa sjálfinu – Við
fangsefnið verður æðra einstak
lingnum. Því oftar sem fólk upp
lifir flæði, því meira sjálfstraust
fær það.
aukum líkur á
flæði
Við höfum tilhneigingu til að
vilja endurtaka athafnir sem
veita ánægju og verja meiri
tíma í þær. Þannig felst ákveðin
hvatning í flæði. Til að geta
upplifað flæði er nauðsynlegt
að hafa stjórn á því hvað fær
athygli manns, hverju maður
gefur tíma og gefa gaum að
venjum sínum eða því hvað
maður venur sig á. Mikilvægt er
að gera sér grein fyrir hvað það
er sem maður vill nýta orkuna
og tímann í og setja það í
forgang. Hversu vel manni tekst
að stjórna athyglinni ákvarðar
hverju maður fær áorkað. Við
drögumst að því sem okkur líkar
best. En þetta virkar líka þannig
að okkur fer smá saman að líka
vel við það sem fær athygli okkar.
Eftir því sem færnin eykst, þá
eykst ánægjan. Þess vegna
skiptir máli að veita athygli því
sem leiðir af sér góða hluti,
jafnvel þó okkur líki það ekki í
byrjun.
Að stjórna tímanum er nátengt
því að stjórna athyglinni. Við
höf um tilhneigingu til að finna
tíma fyrir það sem okkur þykir
mikilvægt og við höfum ánægju
af. Fólk sem elskar starfið sitt
eyðir gjarnan meiri tíma í vinn unni
á kostnað tíma með fjöl skyldunni.
Margir kvarta yfir þessu en í
raun er þetta oft ómeðvitað val.
Vinn an skapar meira flæði en
annað sem maður gæti verið
að gera og þess vegna fær
hún forgang. Til að verja meiri
tíma með fjölskyldunni þarf að
skapa aðstæður til að upplifa
flæði á þeim vettvangi. Það er
mikilvægt að þekkja sinn takt
og fylgja honum og ráðstafa
tíma sínum þannig að maður
geti sem oftast og best upplifað
flæði. Þannig má t.d. auka jafn
vægi milli starfs og einkalífs.
Venjur skapast af því hvert
við höfum beint athyglinni og
það ræðst mikið af því hvað
okkur var kennt í æsku. Þetta
endurspeglast í aga, dyggðum
og mannkostum, til dæmis
gagnvart vinnunni og því
sem maður hefur ánægju af.
Mynstrið liggur í því sem mótaði
viðhorf manns í æsku. En margt
af því sem átti við þá hefur
runn ið sitt skeið og hver kynslóð
temur sér nýjar hefðir og venjur.
Oft getur þurft ærið átak til
að breyta gömlum venjum og
tileinka sér nýjar og betri. Engin
ástæða er til að dvelja við gaml
ar venjur sem hvorki skila þér
árangri né ánægju ef annað
og betra er í boði. Veldu það
sem hentar þér, burt séð frá því
hvað hentaði foreldrum þínum
eða forfeðrum þeirra. Það getur
verið árangursríkt að svara
spurningunum svo sem: Hvaða
hlutir skipta mig mestu máli? Að
hvaða fólki dáist ég? Hvernig
manneskja vil ég alls ekki vera?
Hvað gildum mun ég ekki fórna
undir neinum kringumstæðum?
Ekki endilega spyrja, hver er ég?
heldur ákveða, hver vil ég vera.
mikilvægi flæðis
fyrir stjórnendur
Starf stjórnenda er krefjandi og
þeim því mikilvægt að há marka
orku sína. Ef fólk hefur ekki
ángæju af því sem það starfar
við þá er ólíklegt að það upplifi
flæði í vinnunni. Það dregur úr
líkum á góðum árangri. Sumir
vilja meina að það sé ómögulegt
að lifa af sem stjórnandi nema
að hafa ánægju af starfinu
og finna með því tilgang. Án
þess verði starfið of stressandi,
vinnudag urinn of langur og
freistingin til að eyða meiri og
meiri tíma í aðra dægrastyttingu
innan eða utan vinnustaðarins
of sterk. Rannsóknir hafa sýnt
að fullorðnir sem upplifa flæði
oft eru hamingjusamari og eyða
umtalsvert meiri hluta af vinnu
tímanum en aðrir við störf sín,
frekar en að slúðra við vinnu
félaga, lesa blöðin eða vafra á
netinu.
Því hefur verið haldið fram að
jafnvægi milli vinnu og einka
lífs sé allt að því goðsögn
þegar stjórnendur eru annars
vegar. Því sé það stjórnendum
mikil vægt, sem hafa tvöföldu
hlut verki að gegna sem leiðtog
ar og fjöl skyldufeður/mæður, að
ná að hámarka orku sína. Í því
felst að forgangsraða þannig að
athyglin sé á þáttum sem veita
orku, hvort sem er á vinnustað
eða utan hans. Þeir stjórnendur
sem reglulega upplifa flæði
skila meiri afköstum og hafa
meiri ánægju af starfi sínu held
ur en þeir sem gera það ekki.
Þannig gefur starfið þeim orku
frekar en að gera þá úrvinda.
flæði á vinnu
staðnum
Líta má á mikilvægi flæðis fyrir
stjórnendur frá tveimur hliðum,
annars vegar út frá stjórnand
anum sjálfum og hins vegar út
frá undirmönnum hans. Það
er stjórnandanum mikilvægt
að hafa framtíðarsýn og finna
tilgang í því sem hann er að
fást við. Jafnframt er mikilvægt
að leiðtoginn skapi aðstæður á
vinnu staðnum fyrir samstarfs
menn sína til að þeir finni
tilgang í störfum sínum og geti
upplifað flæði.
Csikzentmihalyi nefnir dæmi
um hvernig stjórnend ur geta
nýtt flæði til að byggja upp
fyrirtæki sem hvetja starfsfólk
til að leggja sig fram og ílengj-
ast í starfi. Það þarf að huga
að þrennu:
1) Að gera vinnuumhverfið
eins aðlaðandi og mögulegt
er, bæði vinnustaðinn
sjálf an og til dæmis það að
komast til og frá vinnu.
2) Að glæða störfin tilgangi
og gildi. Það er munur á
vinnu og köllun. Flestir hafa
þörf fyrir að vinna fyrir mál-
stað, ekki aðeins fyrir laun.
3) Að umbuna einstakling um
sem finna ánægju í starfinu
sínu. Að laða það besta fram
í fólki er ekki gert í þeim
eina tilgangi að auka hagn-
að. Heldur til að gera fólki
keift að vaxa sem einstakling-
ar og auka hamingju.
Csikzentmihalyi heldur því fram
að það sé ógerningur að skapa
umhverfi sem hvetur til flæðis,
án skuldbindingar frá æðstu
stjórnendum. Manneskjulegt
og heilbrigt starfsumhverfi er
líklegra til að ýta undir góð
samskipti og samstarf sem
hvetur til nýsköpunar, umbóta
og lærdóms. Ef verkefnið felur
í sér jákvæðan tilgang og fólk
hefur tækifæri til að láta gott
af sér leiða er líklegt að aukin
afköst náist og laun skipti minna
máli. Hugum að þessu þegar
við viljum koma meiru í verk,
hafa aukna orku og eiga aukinn
frítíma. Veljum vel.
Hæfni og áskor un
mætast í hæfilegum
hlutföllum þannig að
áskorunin er örlítið
meiri en hæfnin.