Frjáls verslun - 01.01.2014, Síða 81
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 81
guðrún Ásmundsdóttir:
Hörð lína undir ljúfu
yfirbragði
Undir ljúfu yfirbragði má finna gallharðan
stjórnanda. Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona fékk Magnús til að leikstýra
sýningu sinni „Heilagir syndarar“ árið
1998. Upprifjun hennar á því varpar ljósi
á stjórnandann Magnús, sem þá var
25 ára. „Hann var afskaplega ljúfur og
þægilegur en mjög harður ef upp komu
einhver vafaatriði. Ég var hissa á því hvað
það var hörð lína undir ljúfu yfirbragði.
Við sáum fljótt að við gátum ekk ert spilað
með þennan unga mann. Við leikararnir
og reynsluboltarnir gátum ekkert tekið
af honum völdin,“ segir Guðrún en
Ragnar Kjartansson, myndlistarmaður og
sonur hennar, setti upp Línu langsokk í
Iðnó með Magnúsi. Þeir voru þá níu ára.
Magnús leikstýrði og Ragnar lék löggu.
Pétur Blöndal:
Stofnuðum leikfélag
Íslands
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls
og fyrrverandi blaðamaður, stofnaði
Leik félag Íslands með Magnúsi haustið
1995 ásamt tveimur öðrum. „Magnús
Geir hringdi í mig og bauð mér að taka
þátt í að heims frumsýna Stone Free
eftir Jim Cart wright í Borgarleikhúsinu.
Magnús var sá eini okkar sem hafði
reynslu af leikhúsrekstri. Við ákváðum
að nefna leikhúsið stóru nafni, Leikfélag
Íslands, sem allir yrðu að taka alvarlega,
og að leggja allt undir. Það voru engar
málamiðlanir í leikaravali. Margir reyndir
og þekktir leikarar og tónlistarmenn voru
fúsir að veðja á Magnús, sem hikaði ekki
við að breyta sýningunni frá lokaæfingu til
frumsýningar, þar með talið lokaatriðinu.
Og leikskrárnar voru fluttar á bretti inn um
bakdyrnar á meðan fyrstu gestunum var
hleypt inn í forsalinn. Stone Free varð mest
sótta sýning ársins 1996 og þegar hún fór
af fjölunum var það fyrir fullu húsi. Markið
var sett hátt. Ég held að kostnaður fram að
frumsýningu hafi numið yfir tíu milljónum
en það var mjög lærdómsríkt að fylgjast
með Magnúsi vinna. Daglega hélt hann
fund með öllum listrænum stjórnendum
sýn ingar innar sem voru formfastari en
sjálfir ríkisstjórnarfundirnir, það fór enginn
tími til spillis. Þarna áttaði ég mig fyrst á
því að galdrar leikhússins felast ekki í því
að fá leikara til að flytja texta á sviði. Það
er öll umgjörðin sem skapar galdurinn og
leyniformúla Magnúsar er að hafa auga
fyrir því.“
„Á síðustu sex árum höf
um við í Borgarleikhúsinu
staðið frammi fyrir niður
skurði á hverju ári en með
mikilli vinnu allra höfum
við komið í veg fyrir upp
sagnir, fækkun uppsetninga
eða lokun sviða – við höf
um nefnilega þvert á móti
sótt á.“
Ferillinn
Magnús Geir er stúdent frá MR. Hann nam leikstjórn við The Bristol Old Vic Theatre
School 1995, stundaði mastersnám í leikhúsfræðum frá The University of Wales
2003 og lauk MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Uppsetning hans á
Óliver hlaut Grímuverðlaunin sem áhorfendasýning ársins 2005.
ÍMARK valdi Magnús Markaðsmann ársins 2008 og Félag viðskipta- og hagfræðinga
veitti honum Íslensku þekkingarverðlaunin og valdi hann Viðskiptafræðing ársins
2010. Sama ár kaus ÍMARK Borgarleikhúsið Markaðsfyrirtæki ársins. Í fyrra hlaut
Magnús Geir riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu.
Endurtekur hann leikinn hjá RÚV?
Samsetning verkefna í Borgarleikhúsinu var stokkuð upp undir stjórn Magnúsar,
listræn stefna yfirfarin, allt skipulag og fjármál endurskoðuð, markaðsmálin unnin
frá grunni og mannauðsmál yfirfarin. Endurtekur hann leikinn hjá RÚV?