Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 100
100 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
VÍB
Bylting í fjármálafræðslu
Yfir 80 manns höfðu skráð sig á námskeið Opna háskólans í HR og VÍB um fyrstu skref í fjárfesting
um viku áður en kennsla hófst. Loka þurfti fyrir skráningu þar sem salurinn rúmaði ekki fleiri. Þetta er
birtingarmynd byltingar í fjármálafræðslu sem VÍB hefur leitt undanfarin ár.
TexTi: Hrund HauKsdóTTir Myndir: Geir ólafsson
Árið 2013 sóttu tæplega 3.000 gestir 59 fræðslu
við burði á vegum VÍB og yfir
20.000 manns fylgdust með á
vefnum. Áhugi almennings
á fjármálafræðslu er sífellt að
aukast, en hver getur skýr ingin
verið? Björn Berg Gunn arsson
er deildarstjóri fræðslu og
viðskiptaþróunar VÍB:
„Við höfum lagt áherslu á að
fræðslu efni okkar sé ókeypis
og aðgengilegt hverjum sem
er, faglegt og umfram allt
skemmti legt. Þannig höfum
við náð til þeirra sem hafa
áhuga á að auka þekk ingu sína
en einnig að kveikja áhuga
margra, sem er mjög ánægju
legt. Eftirspurnin hefur verið
framar björtustu vonum.“
Beinar útsendingar
Fræðslustarf VÍB hefur verið
áber andi á vefnum og útsend
ingar frá fundum vakið athygli.
„Við viljum að hægt sé að
sækja fræðslu okkar hvar og
hvenær sem er. Það hafa ekki
allir möguleika eða áhuga á
að mæta á auglýstum tíma og
hefur áhorf á vefnum aukist til
muna. Sem dæmi má nefna að
á litlu námskeiði í janúar var
hús fyllir, um 60 gestir, en um
900 fylgdust með á vefnum.
Á fundum um nýskráningar
fyrir tækja er svo hægt að spyrja
forstjóra og fjármálastjóra
spurn inga á Twitter og hefur
því verið mjög vel tekið.“
Samstarf VíB og Opna
háskólans í Hr
Björn segir samstarf VÍB og
Opna háskólans í HR um
fjármálafræðslu vera viður
kenn ingu á gæðum fræðslu
starfsins en í samstarfi við
aðra aðila hefur VÍB náð til
margra ólíkra hópa. „Kennarar
í grunn og framhaldsskólum
líta reglulega til okkar með
skólahópa og sömuleiðis
nemendafélög. Í samstarfi við
félög eldriborgara höfum við
haldið tugi funda og þá erum
við afar stolt af samstarfi okkar
við Kauphöllina, Naskar og
FKA um aukna fræðslu.
Þrátt fyrir tortryggni í garð
fjár mála fyrirtækja hefur
fræðslu starfi VÍB verið vel tekið.
„Það er öllum gagnlegt að
geta tekið ábyrgð á sínum eigin
fjár málum. Við bjóðum okkar
aðstoð með fræðsluefninu.
Við kæmumst ekki upp með
neina tilgerð eða sölumennsku
heldur höfum við unn ið okkur
inn þetta góða orðspor með því
að tala á mannamáli og leggja
okkur fram við að bjóða vönd
uðustu fjármálafræðslu lands
ins.“
„Við höfum lagt áherslu
á að fræðslu efni okkar
sé ókeypis og aðgengilegt
hverjum sem er, faglegt
og um fram allt skemmti
legt. Þannig höfum við
náð til þeirra sem hafa
áhuga á að auka þekk
ingu sína en einnig að
kveikja áhuga margra,
sem er mjög ánægju
legt. Eftirspurnin hefur
verið framar björtustu
vonum.“
Björn Berg Gunnarsson er deildarstjóri fræðslu og viðskiptaþróunar VÍB.
fjÁrMÁl