Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 109
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 109
3. Er hægt að sjá í stefnu
ríkisstjórnarinnar hug myndir
um leiðir út úr gjaldeyris
höftunum?
Fullsnemmt er að dæma verk
ríkisstjórnarinnar í þessum efn
um. Nauðsynlegt er að endur
skoða núverandi áætlun um
los un gjaldeyrishafta. Stjórn völd
vinna að nýrri áætlun og ég bind
vonir við að hún verði mark viss
ari en sú sem fylgt hefur verið
hingað til.
Ólafur Ísleifsson
hagfræðingur:
Krónuhafar kasti
krónunum
1. Erlendar krónueignir,
upp gjör þrotabúa bankanna,
verðtrygging, gjaldeyrishöft.
Þetta er eins og óleysanlegur
hnútur. Hvernig er hægt að
höggva á hann?
Þessir þættir hanga saman enda
fara höftin ekki fyrr en búin hafa
verið gerð upp. Ábyrgðarhluti
væri að aflétta þeim að óbreyttri
verðtryggingu. Kannski er spurn
ingin ekki um að höggva á hnút
heldur fremur að standa þannig
að málum að kröfuhafar sjái
hagsmuni í að skiljast sem fyrst
við umtalsverðan hluta um
ræddra eigna og bjarga þannig
því sem eftir stæði.
2. Hvað myndi gerast ef höftin
væri afnumin fyrirvaralaust á
morgun?
Virðist ekki þurfa mikla spámenn
til að sjá hættu á að við slíkar
aðstæður félli gengi krónunnar
með þekktum afleiðingum fyrir
verðbólgu og þætti sem hún
verkar á.
3. Er hægt að sjá í stefnu ríkis
stjórnarinnar hug myndir um
leiðir út úr gjaldeyris höfun um?
Já, ekki verður annað ráðið af
orðum forystumanna ríkis
stjórn arinnar við ýmis tækifæri
en þeir vilji móta hvata til að
ljúka uppgjörum búa hinna
föllnu banka og skapa á þann
veg skilyrði fyrir því að aflétta
höftunum. Sem dæmi má nefna
yfirlýsingar um að full trúar
ríkis valds setjist ekki að samn
ingaborði með kröfu höf um og
ráðagerðir um að tak marka þann
tíma sem bú föllnu bankanna geta
verið í slita ferli áður en kemur til
nauða samninga eða gjaldþrots.
Ásgeir Jónsson
hagfræðingur:
Seðlabankinn eyði
króunum
1. Erlendar krónueignir, upp
gjör þrotabúa bankanna, verð
trygging, gjaldeyrishöft. Þetta
er eins og óleysanlegur hnútur.
Hvernig er hægt að höggva á
hann?
Þetta eru þrjú ólík mál með þrjár
ólíkar lausnir.
Uppgjör þrotabúana: kröfuhafar
skili krónunum sínum til eyðing ar í
Seðlabankanum með samningum.
Verðtrygging: Hún verður til
staðar svo lengi sem íslenska
krónan er til staðar. Vandinn snýr
að verðbólgunni en ekki lána
forminu nema að litlu leyti
Gjaldeyrishöft: Verður að eins
leyst með þverpólitísku átaki þar
sem þjóðin þarf að vera tilbúin
til þess að taka á sig skamm
tímaskell fyrir lang tímaábata.
2. Hvað myndi gerast ef höftin
væri afnumin fyrirvaralaust á
morgun?
Gengi krónunnar myndi falla
verulega og vextir skuldabréfa
hækka.
3. Er hægt að sjá í stefnu
ríkis stjórnarinnar hug myndir
um leiðir út úr gjaldeyris
höftunum?
Nei.
gylfi magnússon
hagfræðingur:
Störukeppni ekki
lausnin
1. Erlendar krónueignir,
upp gjör þrotabúa bankanna,
verðtrygging, gjaldeyrishöft.
Þetta er eins og óleysanlegur
hnútur. Hvernig er hægt að
höggva á hann?
Það er hægt að losna við gjald
eyrishöftin að mestu á stuttum
tíma. Snjóhengjurnar eru þrjár og
það er hægt að taka á þeim með
1) skynsamlegum samningum
um uppgjör föllnu bankanna,
þannig að krónueignir þeirra
geti ekki streymt úr landi yfir
gjald eyrismarkaðinn nema á
mjög löngum tíma, um leið þarf
að endurfjármagna nýja Lands
bankann að hluta, og 2) aðrar
krónueignir erlendra aðila verði
settar til hliðar og einnig hleypt
úr landi á löngum tíma, og 3)
innlendum aðilum hleypt með fé
úr landi í nokkrum skrefum.
Það má hugsa sér ýmsar
útfærslur á þessu en vandinn
er engan veginn óleysanlegur.
Förum þó vart aftur í algjörlega
frjálsa fjármagnsflutninga,
a.m.k. ekki með krónuna sem
gjaldmiðil. Verðtryggingin er
einkum pólitískt vandamál,
aðalvandinn er hin óstöðuga
króna og sá vandi er óleystur.
2. Hvað myndi gerast ef höftin
væri afnumin fyrirvaralaust á
morgun?
Það myndu verða verulegar
sveiflur á gengi krónunnar í ein
hvern tíma, síðan myndi geng ið
ná einhvers konar jafn vægi
aftur, þó mjög óstöðugu. Hætt
við miklum sveiflum í verð lagi
og kaupmætti á með an og bæði
heimili og fyrirtæki gætu lent
í verulegum vand ræð um, m.a.
vegna lána. Einhver atvinnu
starf semi myndi fara í þrot sem
myndi auka atvinnuleysi um
skeið. Önnur koll steypa sem þessi
myndi ekki auka líkurnar á að
fjárfestar fengju áhuga á Íslandi á
næstu árum.
3. Er hægt að sjá í stefnu
ríkisstjórnarinnar hug myndir
um leiðir út úr gjaldeyris
höftunum?
Sú stefna hefur a.m.k. ekki verið
birt opinberlega. Störukeppni
er ekki lausnin en væntanlega
og vonandi hafa menn betri
hugmyndir en það.
ólafur Ísleifsson.
Ásgeir Jónsson.
Gylfi Magnússon.
Verðtryggingin er eink
um pólitískt vandamál,
aðal vandinn er hin
óstöð uga króna og sá
vandi er óleystur.
11