Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 112
112 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
skemmti leg. Það var í eigu er
lendra aðila sem höfðu stofnað
síma fyrirtæki á fleiri mörkuðum
og sendu hingað til lands hóp
manna sem þjálfaði okkur upp.
Það var síðan mjög spennandi
að fá aftur tækifæri til að byggja
fyrirtæki upp frá grunni árið 2006
þegar við hófum undirbún inginn
að Nova. Tækniframfarirnar hafa
síðan orðið svo miklar að núna
þjóna 140 starfsmenn okkar yfir
100 þúsund viðskiptavin um.
Það hefði ekki verið hægt áður
fyrr – það hefði þurft a.m.k. 250
starfsmenn! Hraðinn á þess
um markaði er meiri í dag en
nokkru sinni fyrr og nú þegar
flestir eru komnir með snjall
síma og farsímakerfin eru orðin
háhraða netkerfi er allt hægt.
Að mörgu leyti er það aðeins
hug myndaflugið sem takmarkar
okkur,“ segir Liv.
Í stjórn ólíkra félaga
Í fyrra fór Liv í stjórnunarnám í
IESE Business School í Barce
lona og hætti í stjórn Telio eftir
þriggja ára stjórnarsetu. Hún
er stjórnarformaður WOW air
og í stjórn CCP og 66°Norður.
Þetta virðist ærið nóg fyrir konu
með stóra fjölskyldu. Streitan
er þó langt frá því að ná fyrri
stigum segir Liv. „Ég hef alltaf
unnið mjög mikið og þekki ekki
annað. Í dag finnst mér ég hafa
meiri tíma en þegar maður var
nýkominn úr námi, hóf sambúð,
keypti fyrstu íbúðina, börnin
fæddust, heimilið stækkaði og
maður var að koma sér fyrir
á vinnumarkaðnum. Þetta var
alveg rosalegt prógramm fyrir
tíu árum en í dag er álagið ekk
ert í líkingu við það,“ segir hún
brosandi. „Fyrstu þrjú árin með
Nova var auðvitað brjáluð vinna
hjá okkur öllum í fyrirtækinu en
í dag hef ég reynt stjórnenda
teymi með mér svo þetta
gengur vel upp, bæði í vinnunni
og hjá mér sjálfri. Stjórnarseta
í ólíkum fyrir tækjum er síðan
tækifæri fyrir mig til að miðla
reynslu en ekki síst til að halda
áfram að læra nýja hluti.“
FERILLINN
Liv, sem fæddist árið 1969,
er stúdent frá Menntaskól-
anum í Kópavogi og lauk
viðskiptafræði frá HÍ 1995.
á námsárunum vann hún
fjölbreytt störf. Sumarvinn-
an var til dæmis í hvalnum
í Hvalfirði, á sjúkrahúsinu
á Siglufirði og í Tyrklandi.
Hún var au pair bæði í dan-
mörku og Bandaríkjunum
og vann hjá Citibank í Lond-
on í eitt ár að loknu námi.
Liv vann einnig hjá Slátur-
félagi Suðurlands, Tali og
tók þátt í sameiningu Tals
og Íslandssíma og starfaði
í framhaldinu sem fram-
kvæmdastjóri hjá og Voda-
fone. Liv var framkvæmda-
stjóri símafyrirtækisins
Sko og hefur verið forstjóri
Nova frá árinu 2006.
„Ég man að það
truflaði mig mikið
að sérstaklega
væri auglýst eftir
kvenkyns stjórnar
manni.“
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri
Actavis á Íslandi, vildi í upphafi vinna
sem lyfjafræðingur á rannsókn ar stofu.
Hún fékk ekki starfið, varð stjórn andi
og að lokum forstjóri.
„Ég legg áherslu á að vinna með fólki sem
ég treysti og sem treystir mér. Ég hlusta á
fólk og þegar það hefur sagt sína skoðun
og rökstutt hana á ég oftast auðvelt með
að taka ákvörðun,“ segir Guðbjörg Edda
Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi,
sem hefur verið í stjórnunarstöðum í lyfja
iðnaði í þrjátíu ár. Hún segir að hún hafi þó
í upphafi viljað vinna á rannsóknarstofu.
Örlögin höguðu því þannig að hún fékk
ekki starfið sem hún sóttist eftir og settist í
stjórnunarstöður og að lokum í stól forstjóra
og segist aldrei hafa viljað breyta um kúrs.
Mfs:// Vildi vinna á rannsóknarstofunni
Guðbjörg, sem vann sitt fyrsta sumarstarf
í frystihúsi, er menntaður lyfjafræðingur frá
Kaupmannahafnarháskóla. Hún segist vera
komin á toppinn núna. „Ég er komin á þann
aldur að ég fer frekar að hægja á mér,“ segir
Guðbjörg á sinn hægláta hátt og brosir en
hún hefur stjórnað fyrirtækinu með öðrum
forstjórum um allan heim þótt hún hafi aðset
ur hér á landi. Aðspurð hver hafi hvatt hana
til dáða í lífinu þarf hún að hugsa sig svolítið
um. „Þannig lagað voru það allir í kringum
mig en líklega mikið til bara ég sjálf.“
En við viðtöku viðurkenningarinnar nefndi
Guðbjörg oftar en einu sinni að Vigdís
Finnbogadóttir væri henni mikil fyrirmynd.
„Það hefur verið mitt mottó að maður gæti
náð eins langt og maður vill. Ég hef haft
þá reglu að segja frekar já en nei þegar ég
er beðin um eitthvað sem krefst ábyrgðar,
vinnu eða hugrekkis. Maður á að takast á
við áskoranirnar og ég hef verið heppin að
vera vinnusöm að upplagi og heilsuhraust,“
segir þessi heiðurskona að lokum.
Guðbjörg Edda var ráðin markaðsstjóri
lyfjafyrirtækisins Delta árið 1983 og síðar
aðstoðarforstjóri, 19992002, en þá tók hún
við sem framkvæmdastjóri hjá Actavis. Árið
2008 varð hún aðstoðarforstjóri félagsins
þar til 2010 þegar hún tók við sem forstjóri
félagsins á Íslandi. Guðbjörg situr í stjórn
um Össurar, Auðar Capital, Viðskiptaráðs
Íslands og Íslandsstofu.
Guðbjörg Edda fékk Þakkarviðurkenningu FKA:
Fékk ekki draumastarfið
– varð síðar forstjóri
„Ég hef haft þá reglu að
segja frekar já en nei þegar
ég er beðin um eitthvað sem
krefst ábyrgðar.“
Guðbjörg Edda Egg erts
dótt ir, forstjóri Actavis
á Íslandi, hefur verið í
stjórnunarstörf um í þrjátíu
ár. Hún hóf ferilinn hjá
Delta.
fka