Frjáls verslun - 01.01.2014, Síða 122
122 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
Ráðstefna þjóðleikhúsa í Varsjá
EFTIRMINNILEG RÁÐSTEFNA:
T
inna Gunnlaugsdóttir
sótti ráðstefnu þjóð
leik húsa í Evrópu
í Varsjá í Póllandi
haustið 2009.
Boðið var til ráðstefnunnar
að frum kvæði Þjóðleikhússins
í Pól landi, Teatr Narodowy, en
þátt takendur voru frá um 50
lönd um, allt frá National Theatre
í London, Dramaten í Svíþjóð og
Nationalteatret í Osló til ríkis
rekinna þjóðleikhúsa í Suður og
AusturEvrópu. Ráðstefnan stóð
í tvo daga og voru flutt fjölmörg
framsöguerindi og boðið upp á
umræður.
„Þetta var einstaklega áhuga
verð og upplýsandi ráðstefna þar
sem rætt var um hugmyndina
að baki opinberri aðkomu að
rekstri listastofnana sem grund
vallast almennt og undan tekn
ingar laust á þeim skiln ingi í
viðkomandi landi að menn ing
og listir séu hluti af velferðar
samfélaginu og þar með sé það
í hlutverki hins opinbera að
tryggja rekstur lykilstofnana í
hverri grein. Hugsjónin er sú að
gott aðgengi að menningu og
listum auki lífsgæði á hverj
um stað, skilning, víðsýni og
samfélagslega meðvitund og
sé í raun grunnurinn í öllum
menn ingarsamfélögum. Þar
með er ekki verið að halda því
fram að listirnar geti ekki þrifist
án opinbers stuðnings, aðeins
það að án þeirrar kjölfestu sem
miðlægar menningarstofnanir
veita væri flóran mun fátækari og
brotakenndari auk þeirrar hættu
að fagleg sjónarmið vikju fyrir
markaðslegum forsendum.
Það var eiginlega alveg maka
laust að fá þennan skilning
okkar hér heima staðfestan en
um leið að fá innsýn í hve ólík
rekstrarmódelin geta verið.
Það er einstaklega gagnlegt
að fá stundum að skoða stærri
mynd en þá sem blasir við okkur
hér heima og spegla það sem við
erum að gera í hliðstæðum, ekki
bara listrænt, eða með því að
sækja sýningar erlendis, heldur
einnig út frá öðrum sjónar horn
um. Þarna gafst fágætt tæki færi til
að heyra reynslusögur og spegla
vandamál og ógnanir ekki síður
en tækifæri og nýsköp un.
Það kom á daginn að það er
ótúlega margt sammerkt og að
við stöndum jafnfætis því sem
best gerist annars staðar, þó að
það sé vissulega á minni skala,
sérstaklega þegar kemur að
opin berri fjármögnun. Það er þó
alltaf jafngaman að sjá viðbrögð
fólks við þeirri staðreynd að hér
er menningaráhugi meiri og
almennari en víðast hvar annars
staðar. Það speglast meðal
annars í leikhúsaðsókn, en ekki
nokkurt þjóðleikhús í Evrópu
getur státað af því að aðsókn
samsvari því að þriðjungur þjóð
arinnar sæki leikhúsið árlega en
á síðasta ári sóttu ríflega hundrað
og tíu þúsund manns sýningar
Þjóð leikhússins. Þessi áhugi
er okkar stærsta auðlegð og í
raun algjör grundvöllur að því
hversu blómlegt leikhúslífið er á
Íslandi.“
Tinna Gunnlaugsdóttir sótti ráðstefnu þjóðleikhúsa í Evrópu í Varsjá í
Póllandi haustið 2009.
„Það kom á daginn að
það er ótúlega margt
sammerkt og að við
stöndum jafnfætis því
sem best gerist annars
staðar, þó að það sé
vissulega á minni
skala.“
rÁðSTEfNur