Frjáls verslun - 01.01.2014, Síða 131
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 131
fjórar stjörnur
Hótel KEA á Akureyri er fjög
urra stjörnu hótel, hið eina
sinn ar tegundar í bænum.
Alls eru 104 rúmgóð herbergi
á hótelinu, búin öllum þeim
þæg indum sem stjörnurnar
fjórar gera ráð fyrir að gestir
njóti. Unnt er að hýsa allt að
190 manns á hótelinu. Stað
setning þess er einkar hentug,
í miðbæ Akureyrar, á mót
um Kaupvangsstrætis og
Hafnarstrætis, neðst í svo nefndu
Listagili.
litlir salir eða stórir!
Fjölmargir möguleikar eru
í boði fyrir þá sem þurfa á
funda og ráðstefnuaðstöðu
að halda og segir Hrafnhildur
hótelið hafa sérstöðu á þeim
vett vangi. „Við bjóðum upp
á mikinn fjölbreytileika, allt
eftir því sem hentar hverjum
og einum hópi,“ segir hún.
Í boði er einn stór salur sem
hæglega rúmar um 150 manns.
Honum má svo skipta upp
í tvo eða þrjá sali eftir stærð
hópanna hverju sinni. Þannig
eru í boði litlir salir fyrir minni
samkomur, sem svo er hægt að
stækka eftir því sem gestum
fjölgar á hverjum viðburði
fyrir sig. „Starfsfólk okkar
hefur lagt mikinn metnað í
að fylgjast með öllum helstu
tækninýjungum sem fram
koma í samskiptatækni og
tækja búnaði þegar að funda og
ráðstefnuhöldum kemur. Innan
okkar veggja er mikil þekking
og reynsla á þessu sviði sem
nýtist viðskiptavinum vel,“
segir hún.
Mikið um fundi og man-
nfagnaði
Jón Friðrik Þorgrímsson, veit
ingastjóri á Hótel KEA, segir
að fjölbreytt úrval veitinga sé
ávallt í boði á hótelinu, hvort
sem um er að ræða fundi, ráð
stefnur eða mannfagnaði af
öðru tagi. „Við erum mjög stolt
af eldhúsinu okkar, innan okkar
raða er fjöldi starfsmanna sem
býr yfir mikilli kunnáttu í mat
reiðslu og framreiðslu veitinga
af öllu tagi. Það er mjög líflegt
hér hjá okkur, mikið um fundi
og ráðstefnur en einnig ýmiss
konar samkomur eins og af
mæli, erfidrykkjur, árshátíðir og
þess háttar. Við leggjum metnað
í að þjóna öllum okkar gestum
sem best,“ segir hann.
Múlaberg fær góðar
viðtökur
Múlaberg Bistro & Bar nefnist
nýr veitingastaður sem opn
aður var á Hótel KEA síðast lið
ið sumar og hefur fengið góðar
viðtökur að sögn Hrafn hildar
og Jóns.
Hægt er að njóta veitinga
bæði innandyra í fallega hönn
uð um veitingasalnum og eins
á stóru útisvæði framan við
hó telið með góðu útsýni yfir
eitt fjölfarnasta horn bæjarins;
kaup félagshornið eins og það
er gjarnan nefnt. „Gestum
þykir yndislegt að sitja hér úti
yfir sumarið og fylgjast með
mannlífinu um leið og þeir fá
sér hressingu, en það er líka
ekki amalegt að slaka á yfir
heitum drykk úti á palli eftir
vel heppnaða skíða eða sund
ferð,“ segir Jón Friðrik. Fjöl
breytt úrval rétta af ýmsu tagi
er í boði á Múlabergi, Bistro &
Bar og ættu allir að finna eitt
hvað við sitt hæfi þar.
fjölbreytt afþreying skiptir
máli
Erlendir ferðamenn eru í meiri
hluta gesta Hótels KEA yfir
sumarið, en Íslendingar yfir
vetrarmánuðina. Hrafnhildur
segir að margir komi norður
yfir heiðar í skíðaferðir, en
menningarferðir séu líka alltaf
vinsælar. Fólk komi norður
til að lyfta sér upp, fara í leik
hús eða á viðburði sem í boði
eru í Menningarhúsinu Hofi
svo dæmi séu nefnd. Eins
hefur færst í aukana að fólk
sæki Akureyri heim vegna
íþrótta, enda viðburðir af því
tagi fjölmargir í bænum á
hverjum vetri og þeim fylgir
fjöldi gesta. Sem dæmi eru
tvær vetrarhátíðir í boði nú
í vetur; Éljagangur, sem efnt
var til á dögunum, og alþjóð
legir vetrarleikar, Iceland
Winter Games, verða í mars.
„Af þreying hefur aukist mjög
mikið hér undanfarin ár og
það er ánægjulegt. Það skiptir
okkur miklu máli að líflegt sé
í bænum, það laðar að gesti,“
segir Hrafnhildur.
Sex hótel innan
keðjunnar
alls eru nú rekin sex hótel
innan kEahótelkeðjunnar,
á helstu ferðamannastöðum
landsins. Þrjú þeirra eru
í höfuðborginni, Hótel
borg, Hótel björk og
reykjavík lights. Tvö eru
á akureyri, Hótel kEa
og Hótel norðurland, og
við sunnanvert mývatn
stendur Hótel gígur. Þá
standa yfir framkvæmdir
við tvö til viðbótar; annað
við austurstræti, þar
sem reykjavíkurapótek
var áður til húsa, og hitt
við Hverfisgötu, en þau
verða opnuð 2014 og
2015. Þá er einnig verið
að stækka Hótel borg og
fjölga herbergjum þar en
Hrafnhildur segir að kEa
hótelin séu að búa sig
undir að mæta auknum
ferðamannastraumi til
landsins.
„Gæði og góð þjónusta
hafa verið leiðarljósið í
rekstri hótelsins allt frá
upphafi.“