Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 138
138 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
Undirbúningurinn stóð í um ár
100 ÁRA AFMæLISHÁTÍÐ EIMSKIPS:
H
aldið var upp
á 100 afmæli
Eim skips í
vet ur og segir
Ólafur Hand
upplý singafulltrúi, sem sá
um skipulagningu afmælis há
tíðar innar, að byrjað hafi verið
snemma á síðasta ári að huga að
undir búningi.
„Við erum vön að skipuleggja
móttökur og viðburði í sambandi
við sýningar sem starfsfólk Eim
skipafélagsins sækir erlendis en
þetta er stærsti viðburður sem
við höfum komið að. Við höfðum
þó í rauninni ágætisgrunn til að
byggja á.“
Ólafur segir að þegar byrjað
er að skipuleggja viðburði þurfi
alltaf að athuga hverja þarf
að hafa sam band við vegna
við komandi verkefnis, hverjir
gestirnir eigi að vera, hvaða
starfs menn þurfi að koma að
viðburðinum auk þess sem þörf
er á utanaðkomandi aðstoð.
„Við skilgreindum markhóp
inn, sem í þessu tilfelli voru
við skiptavinirnir og starfs menn
irnir. Um tvö kvöld var að ræða.
Við skiptavinir félagsins mættu
fyrra kvöldið en starfsmenn það
síðara en þá var um að ræða
okkar árlegu árshátíð.“
Ákveðið var að boðið yrði upp á
tónleika og kynningu á fé laginu.
Hópur stafsfólks Eim skips sá
síð an um að velja tónlistarmenn
í samvinnu við umboðs skrif
stof una Prime en það voru
m.a. Bubbi, KK og Björgvin
Halldórsson sem skemmtu
gest um. Þá var haft samand við
starfs fólk hjá Hörpu þar sem
hátíðin var haldin í Eld borg og
sáu matreiðslumenn hússins um
veitingarnar sem saman stóðu af
fjöl breyttum pinna mat.
„Það var frábært að vinna
með starfsfólki bæði Prime og
Hörpu.“
Aug lýsingastofan Janúar var
fengin til að hanna boðsmiða og
skapa vissa ímynd og upplifun
kvöldin tvö.
„Ákveðið var að taka tónleik
ana upp og fengum við True
North til að skipuleggja það
ásamt því að koma upp lýsingu
og hljóði.“
Af mælishátíðin þótti takast
mjög vel og mættu um 1.150
manns hvort kvöldið.
„Það sem ég lærði mest af
þessu er hvað það er mikið af
hæfi leikaríku fólki á Íslandi – hér
eru frábærir matreiðslumenn,
tón listar fólk og skipuleggjendur
að ráð stefnum eins og til dæmis
starfs fólk Hörpu. Ég lærði að
treysta þessu fagfólki fyrir því að
hlut irnir yrðu í lagi.“
Afmælistónleikar Eimskips þóttu takast einstaklega vel og allt skipulag þaulhugsað.
„Það sem ég lærði mest
af þessu er hvað það er
mikið af hæfileikaríku
fólki á Íslandi – hér eru
frábærir matreiðslu
menn, tónlistarfólk
og skipuleggjendur að
ráð stefnum.“
rÁðSTEfNur