Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 143
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 143
„Mikið er í húfi fyrir
leikstjór ann George
Clooney þegar The
Monuments Men
verður frumsýnd.“
ekkI eR allt Gull Sem GlóIR
Í Hollywood snýst allt um peninga og er ekkert til sparað þegar
gera á kvikmynd sem ætlað er að ná mikilli aðsókn. Stundum tekst
ætl unarverkið og þá er gróðinn ævintýralegur, en stundum mis
tekst og þá getur tapið verið gífurlegt. áður en 47 ronin með keanu
reeves í aðalhlutverki var frumsýnd um jólin var langmesta tap
ársins í fyrra á The lone ranger sem kostaði 250 milljónir dollara
fyrir utan tugi milljóna dollara sem fóru í markaðssetningu. aðeins
brot af þessari upphæð skilaði sér til baka. að vísu kom í ljós síðari
hluta ársins að Evrópubúar tóku The lone ranger mun betur og er
sú útkoma vinsældum Johnnys depps í Evrópu að þakka.
En svo kom 47 ronin, sem virðist ætla að taka fram úr The lone
ranger hvað varðar tap. Það sem er eftirtektarvert er að fram leið
endur 47 ronin gerðu ráð fyrir miklu tapi og voru því búnir að
afskrifa eitthvað í sambandi við myndina áður en sýningar hófust.
Og meira að segja í Japan, þar sem myndin gerist fyrr á öldum, var
dræm aðsókn. mikið tap varð á fleiri Hollywoodkvikmyndum í fyrra
og hér eru þær sem koma í næstu sætum á eftir 47 ronin og The
lone ranger á taplistanum í bandaríkjunum:
ender’s game. kvikmynd sem átti að feta í fótspor Hunger gam
esmyndanna og var stefnt á sama áhorfendahóp. myndin kolféll
og ungstirnið asa butterfield féll af stalli.
The fifth estate. Wikileakskvikmyndin náði þeim vafasama titli
að vera minnst sótta kvikmynd ársins af þeim kvikmyndum sem
voru frumsýndar í fleiri en 1.500 sýningarsölum í bandaríkjunum.
Jack the giant Slayer. gerð eftir klassísku ævintýri. myndin náði
að vísu sæmilegri aðsókn, sem komst nálægt þeim 200 milljónum
dollara sem settar voru í hana, en þegar óhemjudýr markaðssetn
ing er tekin með varð tapið 90 milljónir dollara.
r.i.P.D. Trú universal á myndinni var ekki meiri en svo að nánast
engin markaðssetning fór í gang þrátt fyrir að í aðalhlutverkum
væru ryan reynolds og Jeff bridges.
Oldboy. Endurgerð á klassískri kóreskri kvikmynd fór fyrir ofan
garð og neðan hjá flestum, leikstjóranum Spike lee til mikillar
armæðu og kenndi hann víst flestum um nema sjálfum sér.
after earth. Will Smith og sonur hans Jaden hefðu átt að tryggja
vinsældir en staðreyndin var enn eitt tap á kvikmynd sem m.
night Shyamalan leikstýrir. myndin náði sæmilegri aðsókn en ekki
nálægt framleiðslukostnaði og markaðssetningu.
bullet to the head. Sylvester Stallone má muna sinn fífil fegri.
Stórtap varð á myndinni þrátt fyrir að kostnaður væri í lágmarki
miðað við aðrar Stallonehasarmyndir.
machete kills. framhald hinnar vinsælu machete sem gerði hinn
grófa karakterleikara danny Trejo að kvikmyndastjörnu. leikstjór
inn robert rodriguez ætlaði að endurtaka leikinn en annað kom á
daginn, nánast enginn vildi vita meira um machete.
Keanu Reeves er eini bandaríski
leikarinn í 47 Ronan, kvikmynd
sem líklegast verður sú kvikmynd
sem mest tap varð á, en hún var
frumsýnd vestan hafs um jólin.
Leikstjórinn George Clooney við
upptökur á The Monuments Men.
Nú erum við búnir að lagfæra
þau atriði sem ekki virtust hafa
heppn ast nógu vel og ekkert því
til fyrirstöðu að sýna myndina.“
George Clooney var ekki
í vandræðum með að fá þá
leik ara sem hann vildi í helstu
hlut verkin og sá leikari auk
hans sem mest mæðir á er Matt
Dam on. Fer hann fyrir sjö manna
hópi sem Clooney einblínir á.
Í öðrum burðarhlutverkum eru
Bill Murray, John Goodman,
Bob Balaban, Jean Dujardin,
Hugh Bonneville og Cate
Blanc hett.
Í heild var bjargað ótrúlega
miklum fjölda listaverka og
ann arra stolinna muna úr fórum
nasista. Hópurinn, sem taldi í
heild á annað hundrað manns,
lauk sínu verki með miklum
ágætum, en eins og sagan
segir okkur eru ennþá ófundin
fjölmörg verðmæt listaverk sem
að mestu voru í eigu gyðinga.
Leikstjórinn George
Clooney
The Monuments Men er
fjórða kvikmyndin sem George
Clooney leikstýrir. Strax í upp
hafi leikferils síns var Clooney
ákveð inn í að láta til sín taka
sem leikstjóri. Eftir að hann var
laus úr hinni vinsælu sjónvarps
þáttaröð ER fór hann að
huga að verkefnum og fyrsta
kvik myndin í hans leikstjórn er
Confession of a Dangerous
Mind (2002) sem fékk mjög
góða dóma hjá gagnrýnendum
og ágæta aðsókn. Myndin er
byggð á ævi sjónvarpsmanns
ins Chucks Barris, sem hélt
því fram að hann væri njósnari
fyrir CIA. Clooney lék sjálfur
lítið hlutverk en aðalhlutverkið
var í höndum Sams Rockwells.
Fjölmiðlun var aftur viðfangsefni
Clooneys í næstu kvikmynd,
Good Night and Good Luck
(2005), og nú voru það kaflar
úr ævi sjónvarpsfréttamanns
ins Edwards Murrows, sem
David Strathairn lék. Sú kvik
mynd hlaut einnig frábærar
viðtökur gagnrýnenda og góða
aðsókn og var tilnefnd til sex
óskarsverðlauna.
Það var mikill skellur fyrir
Cloo ney þegar þriðja kvikmynd
hans Leatherheads kolféll og
hljóp víst léttur piringur í þenn
an annars skapgóða mann
þegar viðtökurnar voru ljósar
enda hafði Clooney ekki vanist
öðru en velgengni á þessum
vettvangi. Fjórða kvikmyndin,
pólitíska spennumyndin The
Ides of March (2011), fékk
aftur á móti góðar viðtökur og
óskarstilnefningu til Clooneys
fyrir handritið. Hann gat því
brosað á ný.
Mikið er í húfi fyrir leikstjór
ann George Clooney þegar
The Monuments Men verður
frumsýnd og má segja að
framtíð hans sem kvikmynda
leikstjóri byggist á viðtökum
myndarinnar, en The Monu
ments Men er langdýrasta kvik
mynd sem hann hefur leik stýrt.
Ef allt fer á versta veg getur
George Clooney alltaf huggað
sig við að vera enn þann dag í
dag einn eftirsótt asti kvikmynda
leikari samtímans, leik ari sem
yfirleitt skilar hlut verki sínu með
mikilli prýði.