Frjáls verslun - 01.04.2015, Page 8
8 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
Sigurður Pálmi er kaupmaður. Einn fárra sem núorðið titla sig
kaupmenn í símaskránni. en hann er kaupmaður og sér enga ástæðu
til að fela starf sitt bak við annan titil. kaupmennska liggur og í ættinni hjá
manninum sem núna stendur fyrir hörðustu samkeppninni á sportvöru mark-
aðnum. afi hans var pálmi Jónsson í Hagkaupum og móðir hans er
ingibjörg pálmadóttir.
Viðtal: Gísli Kristjánsson / Myndir: Geir Ólafsson
Sigurður pálmi Sigurbjörnsson
kaupmaður í Sports Direct:
kaupmaðurinn
V
ið spyrjum fyrst
hvort Sigurður
Pálmi Sigur
björnsson sé
búinn að fá nóg
af samlíkingum
við afa sinn, Pálma Jónsson –
Pálma í Hagkaupum. Nei, það er
öðru nær. Minningin um afann er
honum kær og hann er fyrirmynd
og hvatning í mörgu sem dóttur
sonurinn tekur sér fyrir hendur.
„Að vísu held ég að ungt fólk
viti ekki hver Pálmi í Hagkaupum
var. Það eru þrátt fyrir allt 24 ár
síðan hann dó. Ég var bara níu
ára þá. En allir sem komnir eru
á miðjan aldur muna hann og
hvað hann breytti miklu í verslun
á Íslandi,“ segir Sigurður, sem
nú rekur verslunina Sports Direct
í Lindum í Kópavogi og hefur
va kið athygli fyrir lægra vöruverð
en keppinautarnir og oft meira
vöruúrval – rétt eins og var í
Hag kaupum á velmektarárum
afa hans.
Lögmálin óbreytt
„Viss lögmál eru enn þau sömu
og hann var upptekinn af þótt
aðstæður í verslun á Íslandi séu
allt aðrar í dag en var fyrir 5060
árum,“ segir Sigurður. Í þessu
efni nefnir Sigurður Pálmi veltu á
fermetra, veltu hraða og áherslu
á jafnvægi milli sölu og fasta
kostnaðar. Í grundvallaratriðum
er þetta óbreytt þótt margt
annað hafi breyst.
„Leiga er háð staðsetningu og
til að standa undir leigu þarf vissa
veltu á fermetra. Launa kostnaður
þarf að vera í jafnvægi, ekki of
hár en ekki heldur svo lágur að
mikilvæg verk í fyrirtækinu séu
ekki unnin. Birgðir mega ekki
safnast upp og því þarf ákveðinn
veltuhraða í búðinni svo að fjár
magnið bindist ekki í hlutum sem
missa verðgildi sitt hratt. Þetta
er alveg það sama og afi var
meðal annars að fást við,“ segir
Sigurður.
sömu lögmál
og hjá Pálma afa