Fréttatíminn - 12.06.2015, Síða 14
N
Núverandi fyrirkomulag kjarasamninga á
opinberum markaði er gengið sér til húðar.
Þetta mat Gylfa Dalmanns Aðalsteinssonar,
dósents í viðskiptafræði, kom fram í Morgun-
blaðinu nýverið – og ekki að ástæðulausu.
Landsmenn hafa horft upp á verkfall að-
ildarfélaga BHM í rúmlega tvo mánuði þar
sem hvorki hefur gengið né rekið. Tjónið
er ómælt, ekki síst hjá þeim sem enga að-
ild eiga að deilunni. Verkfall
hjúkrunarfræðinga fylgdi
síðan í kjölfarið svo ófremdar-
ástand skapaðist í heilbrigðis-
kerfinu. Stéttarfélögin innan
BHM riðu á vaðið í baráttu
sinni en lokuðust hreinlega
inni. Það hefði líklega mátt sjá
það fyrir. Ósamið var við stóru
stéttarfélögin á almenna mark-
aðnum og til þess var horft.
Samningar náðust þar áður en
til víðtækra verkfalla kom og
með því má segja að heildarlínur hafi verið
lagðar – þótt ríkið og opinberu stéttarfélögin
takist enn á.
Í rökstuðningi sínum vísar Gylfi til ársins
1994 þegar mikill spekileki varð úr opinbera
geiranum yfir í einkageirann. Við því var
brugðist með því að innleiða nýskipan í rík-
isrekstri. Starfsmannalögum var breytt með
þeirri ætlan að gera opinbera vinnuveitendur
samkeppnisfæra við almenna vinnumarkað-
inn með því meðal annars að geta umbun-
að starfsfólki eftir menntun. Í kjölfarið voru
teknir upp stofnanasamningar og skyldi með
þeim, eins og segir í viðtalinu við Gylfa, taka
tillit til aðstæðna hjá hverri stofnun, þar með
talið launa og menntunar starfsfólks.
„Þessi markmið um dreifstýringu hafa
ekki tekist. Stofnanasamningarnir eru ekki
að virka eins og þeir áttu að gera. Til dæmis
ætluðu menn að laga kjarasamninga að að-
stæðum hjá hverri stofnun fyrir sig. En fjár-
magn fylgdi ekki. Nú er miðstýringin orðin
svo mikil að allir eiga að fá það sama,” sagði
Gylfi í fyrrnefndu viðtali og tók um leið undir
með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra
um að vinnumarkaðslíkanið væri úrelt. Þar
vísaði hann til ummæla ráðherrans á Alþingi
um að við byggjum við gallað vinnumarkaðs-
kerfi, að ekki geti „allir endalaust fengið leið-
réttingar gagnvart einhverjum öðrum við-
miðunarhópum.“
Gylfi segir ekki hægt að bera saman þróun
á opinberum og almennum markaði. Ákvæði
hafi t.d. gilt í kjarasamningum VR frá alda-
mótum um persónubundin laun, að þau eigi
að endurspegla menntun, færni, þekkingu
og reynslu hvers starfsmanns. Þetta kerfi sé
hins vegar ekki í boði hjá ríkinu.
Gylfi telur það heldur ekki klókt að vera
með flókin markmið meðan á verkfalli stend-
ur, þótt göfug séu, um að sigrast á kynbundn-
um launamun og fá það fram að menntun sé
metin til launa. Betra væri ef samningsaðilar
væru sammála um að taka þau út fyrir sviga,
skipa vinnuhóp sem ynni að því að ná þessum
markmiðum.
Athyglisverð er einnig hugmynd Gylfa um
lagabreytingu í þá veru að embætti ríkissátta-
semjara fái frestunarvald á verkföll. Hann vís-
ar til þess að Magnús Pétursson, fyrrverandi
ríkissáttasemjari, hafi bent það í skýrslu emb-
ættisins í fyrra að á öllum Norðurlöndunum
nema Íslandi hafi sáttasemjari heimild til að
fresta verkföllum í allt að fimm vikur.
Slík heimild gæti komið í veg fyrir ólíð-
andi ástand eins og skapast hefur hér á landi
undanfarna mánuði. Sama gildir um þann
galla sem er í lögum um kjaramál opinberra
starfsmanna að t.d. þau stéttarfélög sem í
mislangan tíma hafa verið í verkföllum að
undanförun, BHM og hjúkrunafræðingar,
hafa ekki rétt til að fresta verkföllum.
Þekkt er að ástand sem skapast á erfiðum
verkfallstímum leiðir til breytinga – vonandi
til batnaðar. Það átti til dæmis við um þegar
samfélagið varð fjölmiðlalaust árið 1984, þeg-
ar saman fóru prentaraverkfall og verkfall
hins opinbera sem stöðvaði útsendingar eina
ljósvakamiðilsins, Ríkisútvarpsins. Menn sá
að slíkt gekk ekki og það flýtti lagasetningu
þar sem einokun ríkisins á ljósvakamarkaði
var afnumin.
Nú er brýn þörf á endurskoðun og lagfær-
ingum á úreltu kerfi.
Gallað vinnumarkaðsmódel
Endurskoða þarf úrelt kerfi
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
68
0
57
Frá kr.
109.900
Maleme
Mare
Frá kr. 131.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 131.900 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna
í stúdíó.
Marina
Sands
Frá kr. 115.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá
kr. 115.900 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 132.900 m.v. 2 fullorðna
í stúdíó.
Omega
Frá kr. 109.900
Netverð á mann frá
kr. 109.900 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 126.900 m.v. 2 fullorðna
í stúdíó.
Stökktu
Frá kr. 109.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá kr.
109.900 m.v. 2-3 í íbúð/
stúdíó/herbergi.
Frá kr. 139.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr.139.900 m.v. 2-3 í íbúð/
stúdíó/herbergi.
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
STÖKKTU
SÉRTILBOÐ
m/allt innifalið
Bókaðu sól á
22. júní í 10 nætur
Krít
Krít grípur alla sem þangað koma með sinni einstöku menningu
og sögu, landslagi og ekki síst viðmóti eyjaskeggja sem hafa
sinnt ferðamönnum af sinni alkunnu snilld svo áratugum skiptir
án þess þó að tapa sérkennum sínum. Hér er enn að finna ekta
gríska menningu í þorpunum þar sem menn og konur hittast
undir húsvegg eða á kaffihúsum í lok dags og skrafa saman um
daginn og veginn.
m/morgunmat
14 viðhorf Helgin 12.-14. júní 2015