Fréttatíminn - 12.06.2015, Síða 30
Þetta snýst
í rauninni
ekkert um
brjóst held-
ur um það
að konur
hafi sjálfar
valdið
yfir sínum
brjóstum.
Þetta snýst
bara um
algjöra
hugarfars-
breytingu.
Af hverju má allur líkami
kvenna sjást í fjölmiðlum,
nema geirvartan? Af hverju
þurfa konur að óttast að ráðist
sé á þær gangi þær hálfnaktar
um göturnar en ekki karlar?
Hvernig hemja karlmenn sig
í samfélögum þar sem kon-
ur eru með brjóstin ber allan
daginn? Eru geirvörtur karl-
manna ekki kynæsandi eða
eru konur með minni kynhvöt
en karlar? Af hverju þurfa
konur að læra að klæða sig
á viðeigandi hátt á meðan
karlar þurfa ekki að læra að
haga sér á viðeigandi hátt?
Með því að draga geirvörtuna
fram í dagsljósið vill „Free
the nipple“ hreyfingin draga
spurningar á borð við þessar
fram í dagsljósið. Að svara
þeim getur reynst þrautin
þyngri en að skapa vettvang
til þess er einmitt annar til-
gangur þess að bera saman
brjóstin á Austurvelli á
morgun, laugardaginn 13. júní,
klukkan 13.
B jóstabyltingin hófst í Banda-ríkjunum þar sem konum er bannað með lögum í flestum
ríkjum þeirra að vera berbrjósta á
almannafæri, líka þegar þær gefa
brjóst. Refsingar við að sýna geir-
vörtu geta verið mjög strangar, allt
að þriggja ára fangelsisvist. Sem
er þversagnakennt í landi þar sem
brjóst eru úti um allt í fjölmiðlum og
þar sem fjölmiðlar eru stútfullir af
ofbeldi sem ætti nú að teljast hættu-
legra en ein lítil geirvarta. Upphaf-
legur tilgangur „Free the nipple“
hreyfingarinnar var að ögra lög-
unum og sýna í leiðinni fram á mis-
réttið sem felst í því að banna konum
en ekki körlum að sýna líkama sinn.
Gegn hlutgervingu líkamans
Á Íslandi er ekki bannað með lög-
um að sýna geirvörtur en konum er
ekki ráðlagt að vera berbrjósta á al-
mannafæri þar sem það gæti sært
blygðunarkennd nærstaddra. Sem er
skrítið því fyrir ekki svo löngu gátu
konur verið berbrjósta á almanna-
færi, hvort sem það var við garð-
vinnu í sólinni eða í sólbaði á Aust-
urvelli. Karen Björk Eyþórsdóttir,
ein þeirra átta kvenna sem skipu-
Persónuleg brjóstabylting
Að draga geirvörtuna fram í dagsljósið er að draga hlutgervingu kvenna, afleiðingar klámvæðingar, hrelliklám og brenglaða siðferðisvitund fram
í dagsljósið. Skipuleggjendur hvetja allar konur til að mæta, berbrjósta eða ekki, það sé ekki það sem skipti máli. Viðburðurinn kallast „Frelsum
geirvörtuna – Berbrystingar sameinumst“ og hefst klukkan 13 á morgun, laugardag, á Austurvelli. Aftari röð: Hildur Harðardóttir, Nanna Her-
mannsdóttir, Guðbjörg Ríkey Hauksdóttir, Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir, Stefanía Pálsdóttir. Fremri röð: Sóley Sigurjónsdóttir og Karen Björk
Eyþórsdóttir.
leggja „Free the nipple“ viðburðinn
á Austurvelli um helgina bendir á
að sú þróun sé bein afleiðing klám-
væðingar síðustu ára. Öfgakenndar
afleiðingar klámvæðingarinnar hafi
komið hvað best í ljós um daginn
þegar fimm ára stelpu var vísað upp
úr sundlaug í Reykjavík þar sem hún
var ekki í toppi við bikiníbuxurnar.
„Samfélagið er orðið svo vant því að
kvenlíkaminn sé bara hver annar
hlutur, eða söluvara, að það er hætt
að sjá hann sem eitthvað náttúru-
legt,“ segir Karen. „Að það sé ósið-
legt að sjá fimm ára stelpu án bik-
inítopps sýnir vel hversu brenglað
samfélagið er orðið.“
Brjóstabyltingin er persónuleg
Í dag snýst samt berun geirvörtunn-
ar um eitthvað meira en brenglaða
siðferðisvitund. Síðan hreyfingin fór
af stað á Íslandi hafa hlutir eins og
#6dagsleikinn og Bjútítipsbyltingin
farið af stað. Skipuleggjendur eru
sammála um að eitthvað merkilegt
sé að gerast, jafnvel eldri kynslóðin
sem ekkert hafi skilið í byrjun, sé far-
in að sjá hlutina í skýrara ljósi. „Ég
held að brjóstabyltingin tákni mjög
margt og að hún sé mjög persónu-
leg. Fyrir mér getur hún snúist um
allt annað en fyrir næstu konu,“ segir
Stefanía Pálsdóttir, önnur skipuleggj-
enda. „Við viljum búa til vettvang þar
sem hægt er að ræða þessi mál en
þetta snýst um líka um anti-þöggun
og að slá vopnin úr höndum þeirra
sem stunda hrelliklám. Konur eru
stærsti minnihlutahópur í heimi,
hugsaðu þér hvað við getum áorkað
miklu ef við erum allar í sama liði.“
Að taka valdið til baka
Gagnrýni er heilbrigður fylgifisk-
ur aukinnar umræðu og meðlimir
hreyfingarinnar hafa ekki farið
varhluta af henni, því þrátt fyrir að
kvenlíkamanum sé slengt framan
í okkur alla daga sem söluvöru þá
fer það fyrir brjóstið á mörgum að
nú skuli konur gerast svo djarfar að
ætla að sýna líkamann sjálfar. Það
sé nú meiri athyglissýkin. En þar
liggur einmitt mergur málsins. Þær
sýna líkamann sjálfar. „Í okkar sam-
félagi er búið að ákveða það fyrir-
fram að ef ég ákveð að hylja ekki
hluta af mínum líkama þá sé ég að
tæla einhvern,“ segir Karen. „Valdið
hefur verið tekið af mér því það er
ekki ég sjálf sem ákveð hvort ég sé
að tæla eða ekki heldur einhver út
í bæ. Það geta allir mögulegir lík-
amshlutar verið kynæsandi en það
er búið að ákveða að ef ég er ber-
brjósta í sundi þá hljóti ég að vera
að táldraga. Við viljum fá að ráða
því sjálfar hvenær og hvenær ekki
við erum að táldraga,“ segir Karen
og bendir á að umræðan grafi und-
an karlmönnum. „Það er gert ráð
fyrir því að karlmenn séu bara eins
og spólgraðir hundar sem ráði ekk-
ert við sig og fái bara bóner við að
sjá geirvörtu. Þetta snýst í rauninni
ekkert um brjóst heldur um það að
konur hafi sjálfar valdið yfir sínum
brjóstum. Þetta snýst bara um al-
gjöra hugarfarsbreytingu.“
Gegn hræsni
Að frelsa geirvörtuna þýðir að taka
til sín völdin og fá aftur eignarhald
yfir eigin líkama. Konur eru hrein-
lega þreyttar á því að ráða því ekki
hvenær brjóst eru kynferðisleg og
hvenær ekki, að karlmenn stjórni
ferðinni en ekki þær. Nú vill kona
fara út á götu á sínum geirvörtum
án þess að lög eða siðferðisvitund
annara banni henni það. Því á sama
tíma og henni er bannað að gera það
er líkami hennar misnotaður sem
söluvara. Sem er hræsni. Konur
hafa nú ákveðið að eigna sér geir-
vörtuna sjálfar því hún er dálítið
eins og þeirra síðasta vígi í heimi
þar sem líkami konunnar hefur
verið seldur og misnotaður trekk í
trekk, án hennar samþykkis.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
… orð eins og bón, bónklútur, vaskaskinn,
vínylbón, þvottakústur …
Lykil- o
g korth
afar Ol
ís fá
10%
afslátt
af bíla
vörum
BÓNORÐ
GÓÐIR DAGAR FYRIR
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
52
73
2
30 berbrystingar Helgin 12.-14. júní 2015