Fréttatíminn - 12.06.2015, Síða 48
48 heilsa Helgin 12.-14. júní 2015
loksins á
Íslandi!
Verslun og Viðgerðir
Hjólasprettur ︱ BæjarHraun 22 ︱ 220 Hafnarfjörður ︱ sími: 565 2292 ︱ www.Hjolasprettur.is
KYNNINGARVERÐ
Þegar hið ómögulega
verður að hinu mögulega
Meistari allra meina er stórbrotin en jafnframt auðlesin ævisaga krabbameins og samfélaganna
sem það hefur mótað í þúsundir ára. Bókin kom fyrst út fyrir fimm árum en er nú komin út í
íslenskri þýðingu Ólafar Eldjárn. Nýverið kom út heimildamynd sem er byggð á bókinni og nefnist
hún Cancer: The Emperor of All Maladies.
M eistari allra meina – ævi-saga krabbameins, hefur vakið mikla athygli víða
um heim fyrir aðgengilega, ítarlega
og trausta umfjöllun um flókið og
vandmeðfarið efni. Höfundur bók-
arinnar er Siddhartha Mukherjee,
læknir og líffræðingur og starf-
andi krabbameinssérfræðingur í
New York. Mukherjee fékk áhuga
á að skrifa um sögu krabbameins
þegar einn sjúklinga hans sem hafði
lengi glímt við krabbamein sagðist
vera tilbúinn til að berjast við það,
ef hann bara vissi aðeins meira um
hvað hann væri nákvæmlega að
berjast við. Hvaðan kemur þetta
mein og hversu lengi hefur það
verið til? Mukherjee áttaði sig á því
að hann gat ekki bent sjúklingi sín-
um á neitt les- eða myndefni þessu
tengt og hófst því handa við að út-
vega það sjálfur. Úr varð ævisaga
krabbameins.
Lestur sem vekur upp von
„Við fyrstu sýn virðist sem svo að
þetta sé eingöngu bók fyrir þá sem
hafa greinst með krabbamein og
aðstandendur þeirra en það er alls
ekki svo, inntak bókarinnar er mun
dýpra en það,“ segir Lára G. Sigurð-
ardóttir, læknir hjá Krabbameinsfé-
laginu. Í bókinni er farið yfir sögu
krabbameins, sagt frá fjölbreyttum
birtingarmyndum þess og viðleitni
til lækningar, allt frá elstu heimild-
um til nýjustu meðferða og uppgötv-
ana. Gerð er nákvæm grein fyrir því
hvernig þekkingu á sjúkdómnum
hefur fleygt fram, sagt frá sjúkling-
um, læknum og vísindamönnum,
þrotlausum rannsóknum, óvæntum
uppgötvunum, misskilningi
og mistökum, árangri og
sigrum. Bókin er afar yfir-
gripsmikil og skrifuð af
víðtækri þekkingu og ein-
lægum áhuga á viðfangs-
efninu, en lýsir um leið
persónulegri reynslu lækn-
is af að hlynna að krabba-
meinssjúklingum
og aðstandendum
þeirra, fræða þá
og leiða gegn-
um sjúkdóms-
ferl ið. „Það
sem heillaði
mig er að
höfundur
kynnir
okkur
fyrir pers-
ónum
sem hafa
helgað
líf i sínu
læknavísindunum. Persónum sem
lögðu allt undir til að draga úr þeirri
kvöl og eymd sem fylgdi sjúkdómn-
um og þessar persónur eiga stóran
þátt í að í dag tölum við ekki leng-
ur um krabbamein sem dauðadóm
heldur í flestum tilfellum lækna-
nlegan sjúkdóm. Maður dregst inn
í söguþráðinn því hann skilur eftir
sig von. Hið ómögulega verður
mögulegt og með lestrinum
verður maður meðvitaðri
um hvað það er í raun
margt sem við hljótum að
eiga eftir að uppgötva,“
segir Lára.
Ein af 100 áhrifa-
mestu bókum
síðustu 100 ára
Meistar i al lra
meina hef ur
unnið til f jöl -
margra verð -
launa og viður-
kenninga og
hlaut meðal annars Pulitzer-verð-
launin í flokki fræðirita árið 2011
og var auk þess valin ein af 100
áhrifamestu bókum síðustu 100 ára
samkvæmt Time. Mukherjee var
einnig útnefndur sem einn af 100
áhrifamestu manneskjum heims
árið 2011 af Time. Bókin er gefin
út með styrk frá Krabbameinsfé-
lagi Íslands og Miðstöð íslenskra
bókmennta.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Lára G. Sigurðar-
dóttir, læknir og
fræðslustjóri hjá
Krabbameinsfé-
laginu. Mynd/Hari