Fréttatíminn - 12.06.2015, Page 50
50 heilsa Helgin 12.-14. júní 2015
Jóga er andleg sturta
Kundalini jóga, hugleiðsla, lífrænt grænmetisfæði og náttúru-
skoðun eru meðal þess sem Jógahátíð á Ásgarði í Kjós býður
upp á þann 21. júní næstkomandi. Sólveig Hlín Kjartansdóttir,
ein skipuleggjenda, segir hátíðina vera kærkomið tækifæri fyrir
fólk með sömu áhugamál til að hittast en líka fyrir forvitna til
að kynnast jógamenningunni. Hún segir jóga vera ávanabind-
andi og líkir jógaiðkun við andlega sturtu sem auki orkubúskap-
inn og komi huganum í jafnvægi.
H ugmyndin að hátíðinni fæddist hjá okkur vinkon-unum í Frakklandi þegar
við sóttum svipaða hátíð,“ segir
Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, ein
kvennanna sem skipuleggja úti-jó-
gahátíð á sumarsólstöðum, þann 21.
júní næstkomandi á Ásgarði í Kjós.
Þetta verður í fimmta sinn sem há-
tíðin er haldin á Íslandi. „Það var
eitthvað svo góður andi á hátíðinni
í Frakklandi, mikið um að vera og
jákvæð og uppbyggileg fjölskyldu-
stemning. Okkur fannst tilvalið að
flytja þetta til Íslands og hafa hana
á þessum tíma þegar birtan er
mest og orkan þar af leiðandi líka.
Innan jógafræðanna er mikil hefð
fyrir því að fagna sumarsólstöðum
og nú hafa sameinuðu þjóðirnar
ákveðið að 21. júní sé alþjóðlegur
jógadagur.“
Jóga verður ávanabindandi
Sólveig segir jóga vera góða lík-
amsrækt sem henti öllum, ungum
sem öldnum. „Þegar maður byrjar
að stunda jóga þá verður það fljótt
ávanabindandi. Maður finnur mjög
fljótlega fyrir auknu jafnvægi í hug-
anum en líkaminn er líka fljótur að
styrkjast. Það er líka magnað hvað
orkan verður miklu meiri, sérstak-
lega beint eftir æfingar. Það er í
raun best að líkja þessu við andlega
sturtu.“
Sólveig segir mjög auðvelt að
kenna börnum jóga og í raun gott
að byrja snemma. „Börnin segja
manni alltaf hreint út um leið hvað
þeim finnst skemmtilegt og hvað
þeim finnst leiðinlegt. Þau er líka
svo móttækileg fyrir nýjungum svo
það er gaman að leiðbeina þeim.“
Endurnærandi hátíð fyrir börn
og fullorðna
„Á hátíðinni verðum við ekki bara
með jógatíma fyrir börnin heldur
bjóðum við líka upp á leiki og lista-
smiðjur. Það verður ýmiskonar
dagskrá í gangi yfir daginn, líka
möntrusöngur og göngur og svo
endar hátíðin með alvöru kvöldvöku
fyrir alla fjölskylduna. Við bjóðum
líka upp á grænmetismat og hráfæði
og það hefur alltaf verið hálfgerður
hápunktur dagsins því maturinn er
svo góður. Tilgangurinn með há-
tíðinni er að fólk með lík áhugamál
geti hist og verið saman, líka fólk
með börn. Þetta er líka tækifæri
fyrir fólk sem þekkir ekki jóga til
að kynnast einhverju nýju. Hátíðin
gefur innsýn í jóga-menninguna og
heimspekina á bak við hana, á dýpri
hátt en þú fengir með einum prufu-
tíma í bænum. Það verða allir end-
urnærðir eftir svona hátíð.“
-hh
Hátíðin er haldin í Ásgarði, fallegri, gamalli skólabyggingu við bakka Laxár í Kjós, rétt við þjóðveginn og einungis 35 mínútur
tekur að keyra frá Reykjavík. Frekari upplýsingar á: www.sumarsolstodur.is
Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, ein
kvennanna sem skipuleggja úti-jógahá-
tíð fyrir alla fjölskylduna.
Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is
w
w
w
.z
en
be
v.
is
-
U
m
bo
ð:
v
it
ex
e
hf
ZenBev - náttúrulegt Triptófan
Melatónin
Vísindaleg sönnun á virkni
sjá vitex.is
Melatónín er talið minnka líkur
á blöðruhálskirtilskrabbameini
sjá vitex.is
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðumHrein graskersfræ eða vörur sem innihalda þau hafa ekki sömu áhrif.
Tvær bragðtegundir
sítrónu og súkkulaði
Betri og dýpri svefn
úr graskersfræjum
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
20% afsláttur af öllum vörum frá Bóboli
föstudag og laugardag
Iana Reykjavík
Flott föt fyrir
17.júní
Afmælisgjafir
Sængurgjafir
Skírnagjafir
Vor/Sumar 2015