Fréttatíminn - 12.06.2015, Page 56
56 matur & vín Helgin 12.-14. júní 2015
Osborne
Fino Quinta
Gerð: Sérrí
Þrúgur: Palomino
Uppruni: Jerez,
Spánn
Styrkleiki: 15%
Verð í Vínbúðunum:
2.998 kr. (750 ml)
Sérrí er ekki bara sætur ömmudrykkur. Í útgáfum sem kallast Fino
er sérríið afar þurrt. Þetta vín bragðast af eplum og möndlum. Það
er eins og áður segir mjög þurrt en engu að síður milt og ljúft. Gott
sem fordrykkur, frábært með söltum mat og einstakt með sushi.
Drekkist kalt og geymist ekki.
Höskuldur Daði
Magnússon
ritstjorn@frettatiminn.is
Bratwurst-pylsur,
kartöflusalat og
Boli Keller
Grilltímabilið er nú komið
á fullt hjá flestum enda sú
gula farin að láta sjá sig,
svona af og til. Auðvelt er
að blása til frábærrar grill-
veislu með litlum fyrirvara
en þá er vissara að hafa
hráefnið í lagi. Góð leið til
að gleðja er að bjóða upp
á þýskar Bratwurstpylsur
af grillinu og heimalagað
kartöflusalat með. Bestu
Bratwurst-pylsurnar fást
í Pylsumeistaranum við
Laugalæk en þar er reynd-
ar frábært úrval af pylsum
og alls ekki síðra að
kaupa bara bland í poka.
Punkturinn yfir i-ið er svo
að velja rétta bjórinn með
og hér mælum við með
nýjum bjór frá Ölgerðinni,
Bola Keller.
Bruggaður til heiðurs íslenskri
grillmenningu
Boli Keller er sérstök sumarútgáfa af Bola. Bjórinn er ósíaður,
6,5% alkóhól af rúmmáli og bjórstíllinn „kjallarabjór“ eða
keller-bier eins og Þjóðverjar orða það. Í grunninn er þetta
sama uppskrift og sömu hráefni og notuð eru í Bola en
vinnslan er önnur og útkoman skilar kraftmeiri og sterkari
bjór, bragðmeiri en þó einstaklega þéttum og mjúkum.
„Boli Keller er sérbruggaður fyrir íslenska grillara og hentar
vel með ýmiskonar grillmat en er ekki síðri við sjálft grillið
– hann kemur því ákveðnu jafnvægi á menn sem þegar eru
vopnaðir grilltöng í hinni,“ segir Guðmundur Már Magnús-
son, bruggmeistari Ölgerðarinnar, og bætir svo við: „Við
höfum orðið vör við sterka innkomu Bola í grillmenn-
inguna og til að mynda fengið mikið af myndum inn til
okkar af Bolanum við grillið. Það má því segja að Boli
Keller sé bruggaður til heiðurs íslenskri grillmenn-
ingu.“
Að því sögðu mælir Guðmundur meðal annars með
tilraunum með grillaðan bjórdollu-kjúkling, en þar
má t.d. nota Bola, ásamt „árómatískum“ kryddum
á borð við timjan og kóríander. Vegna styrkleikans
gengur Boli Keller svo ágætlega með ýmsu feitu og
söltu eins og vel gerðum pylsum.
Kartöflusalat
Ef hýðið er ljótt þarf að afhýða kartöfl-
urnar, annars hreinsa það vel. Skera
þær í jafn stóra teninga. Setja smá salt í
sjóðandi vatn og kartöflurnar út í. Passa
að ofsjóða ekki. Þær eru tilbúnar þegar
hægt er að setja gaffal í gegn án þess að
nota mikið afl. Þetta tekur um 8 mínútur
en fer eftir því hve stóra teninga kart-
öflurnar voru skornar í. Sía vatnið burtu
um leið og kartöflurnar eru tilbúnar.
Setja svo í skál og láta kólna aðeins.
Grænmetið er allt saxað í jafn litla kubba
og sett út í majónesið og sinnepið. Þegar
það er enn smá ylur í kartöflunum er
jukkinu blandað saman við. Ekki hræra
of mikið í kartöflunum því þá molna þær.
Geyma í kæliskáp í að minnsta kosti tvo
tíma, helst yfir nótt.
Fyrir þá sem eru ekki alveg að gúddera 2
desilítra af majónesi er hægt að blanda
tveimur matskeiðum af mæjó saman við
tæpa dós af sýrðum rjóma.
4 bökunarkartöflur kubbaðar
(ef ekki fást bökunarkartöflur notum við
u.þ.b. 8 venjulegar)
½ dl saxað sellerí
½ rauð paprika söxuð fínt
½ rauðlaukur saxaður
1 súr gúrka söxuð
1½-2 dl gott majónes
1 tsk. sinnep Dijon eða sætt sinnep eftir
smekk
Salt og pipar eftir smekk
n 6-8 cl af
Osborne Fino
Quinta sérríi
n Fentimans
Tonic Water
n Klakar
n Sítróna
Fylla glasið
¾ með
klökum.
Hella
sérríi yfir og
hræra smá.
Fylla upp
með
tóniki og
skreyta
með
sítrónu-
sneiðum.
Sérrí sumardrykkur
S érrí er til í mörg-um útgáfum. Flest þekkjum
við þær sætu en Spán-
verjarnir sjálfir elska
þurru sérríin sem
kallast þá Fino-Sérrí.
Þau eru góð matar-
vín. Smellpassa með
góðri hráskinku, alls
konar fiski og skel-
fiski og ná undarlega
skemmtilegu sam-
bandi við sushi. Fæst-
ir vita þó að Fino-sérrí
eru hinn fullkomni
sumardrykkur. Fino
elskar að vera blandað
í tónik, sprite eða þess
vegna smá engiferöl.
Gott að bæta smá sítr-
usávexti við og þá er
svalandi léttur sumar-
drykkurinn klár.