Iðnaðarmál - 01.04.1971, Page 17
Hönnun
Kaupstefnan fslenzkur fatnaður
Kaupstefnan íslenzkur fatnaður
„HAUST“ var að þessu sinni haldin
í Iþróttahúsi Seltjarnarness.
Hinn snyrtilegi samkomusalur sem
er í byggingunni, var hlýleg og
skemmtileg umgerð um tízkusýningu
sem fram fór í tilefni af opnun Kaup-
stefnunnar.
Því er ekki að neita að sá munur
sem þarna var á aðstöðu og á veit-
ingalofti íþróttahallarinnar í Laug-
ardal, en þar liafa þessar tízkusýn-
ingar verið haldnar áður, var eitt og
sér nægileg til að gefa sýningunni
skemmtilegan blæ.
Á hinn bóginn mun óhætt að full-
yrða að oft hefur gætt meiri dirfsku
og tilþrifa í sjálfum fatnaðinum.
Ekki var annað að sjá en að í-
þróttasalurinn hentaði vel kaupstefnu
af þessari stærð.
Myndirnar á þessum síðum eru frá
Haustkaupstefnunni íslenzkur fatn-
aður 1971.
Hnakkaskinnspsls með rauðref, framleiðandi:
Gráfeldur hf.
Herrafrakki úr klofinni nautshúð, framleið-
andi: Gráfeldur hf.
IÐNAÐARMÁL
111