Frjáls verslun - 01.02.2007, Page 26
26 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
leita mér að vinnu í New York. Hann sagðist vera viðskiptavinur hjá
Marvin Traub og héldi að það hentaði mér vel að sækja þar um vegna
reynslu minnar hjá McKinsey og Baugi – og áhuga míns á tískuheim-
inum. Svo skemmtilega vildi til að aðeins nokkrum mínútum eftir
að hann sendi þeim ferilsskrána mína hringdu þeir til mín. Ég átti
nokkra símafundi með Marvin Traub, loks hitti ég hann og ég var
þá ráðin hingað.“
ÓLST UPP Í LOS ANGELES FRÁ 5 TIL 11 ÁRA
Bakgrunnur Áslaugar er í senn íslenskur og alþjóðlegur. Hún ólst
upp í Los Angeles í sex ár, frá 5 til 11 ára aldurs, þegar faðir hennar,
Magnús Sigurðsson, var þar í hagfræðinámi við UCLA háskólann.
„Ég var alls ekki sátt við að flytjast aftur heim til Íslands 11 ára og
ég sagði við foreldra mína að ég ætti örugglega eftir flytjast út aftur,“
segir Áslaug. „Svona eftir á er ég samt mjög fegin því að hafa flust
heim og gengið í skóla á Íslandi – þar eru auðvitað ræturnar og sá
kúltúr sem maður byggir á.“
Eftir að hún fluttist heim gekk hún í Digranesskóla í Kópavogi,
Álftanesskóla og Garðaskóla í Garðabæ. Hún varð síðan stúdent frá
Verslunarskóla Íslands vorið 1987.
„Það var hörkulið í þessum ’87 árgangi í Verslunarskólanum,
m.a. Björgólfur Thor Björgólfsson og Lýður Guðmundsson. Nú,
Jón Ásgeir Jóhannesson var á sama tíma í skólanum en hann er ári
yngri en við.“
Áslaug varð lögfræðingur frá Háskóla Íslands vorið 1993, eða
sama ár og sonur hennar, Gunnar Ágúst, fæddist. Fljótlega eftir
námið réði hún sig til starfa hjá Deloitte & Touche á Ísland og
þar starfaði hún í rúm þrjú ár; fékkst m.a. við skattamál og samn-
ingagerð tengd samrunum og yfirtökum. Eftir það var stefnan tekin
á Durham í Norður-Karólínu – þar er Duke-háskólinn.
„Þegar ég var í Duke kviknaði aftur gamla hugsunin úr bernsku
um að starfa erlendis. Ég sá hins vegar fljótt að ég var ekki nægilega
samkeppnisfær með meistaragráðu eftir aðeins eins árs nám í skól-
anum; flestir sem sóttust eftir störfum við stærstu bandarísku lög-
fræðifyrirtækin voru með þriggja ára nám að baki við bandaríska
lagaskóla. Ég ákvað því að tengja saman lögfræði og viðskipti og drífa
mig í MBA-nám.“
HARVARD
Til að gera langa sögu stutta þá sótti Áslaug um MBA-nám í
nokkrum af þekktustu háskólum Bandaríkjanna og fékk inngöngu í
Harvard Business School. En hvers vegna Harvard?
„Harvard er bæði virtur og góður skóli. Ef til vill hljómar það sem
hégómi en innan Bandaríkjanna hjálpar það mjög við að fá góð störf
að útskrifast frá þekktustu skólunum. Það er bara þannig! Harvard
er þekktur úti um allan heim og ég hugsaði með mér, að ef ég ætlaði
að vinna annars staðar en í Bandaríkjunum væri fínt að vera með
próf frá honum.“
Áslaug segir að MBA-námið í Harvard byggði á því að veita
nemendum víðtækan grunn í viðskiptafögum. „Fyrsta árið í nám-
inu eiga nemendur ekki val um hvaða fög þeir taka, allir þurfa að
FORSÍÐUVIÐTAL • ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR
Algengur ferðamáti. Í erli dagsins á leið upp í leigubíl í New York.