Frjáls verslun - 01.02.2007, Qupperneq 33
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 33
mikill uppgangur hefur einkennt
viðskiptalífið í Bandaríkjunum
undanfarin ár.
Greenspan varaði einnig við
því hversu lítill fjárlagahallinn
hefði verið í Bandaríkjunum á
síðasta ári, 247,7 milljarðar
dala, og hefði hann ekki verið
lægri í fjögur ár. Fjárlagahallinn í
Bandaríkjunum skiptir máli fyrir
alla sem fylgjast með efnahags-
málum í heiminum, var haft eftir
goðsögninni Greenspan.
27. febrúar
Bjarni:
Innleysti
380 milljóna
söluhagnað
Menn hnjóta alltaf um það
þegar sagðar eru fréttir af
launamálum forstjóra og ekki
síður þegar sagt er frá kauprétt-
arsamningum og að þeir selji í
fyrirtækjunum sem þeir stjórna.
Hér er ein frétt af þessum toga.
Sagt var frá því að Bjarni
Ármannsson, forstjóri Glitnis,
hefði nýtt sér kauprétt á bréfum
skv. samningi frá 2002 á geng-
inu 2,81 og selt bankanum
aftur sama dag á genginu 28,2.
Hann keypti bréfin á 42 millj-
ónir og seldi þau aftur á 423
milljónir. Söluhagnaður hans var
381 milljón.
Bjarni Ármannsson.
Upp með sólgleraugun.
27. febrúar
Upp með
sólgleraugun
Íslendingar eru bjartsýnir – og
það á ekkert skylt við það þótt
dag sé að lengja. Við eru m
einfaldlega bjartsýnir, sam-
kvæmt vísitölu. Gallup sagði
frá því þennan dag að vænt-
ingavísitalan fyrir febrúar hefði
mælst 149,9 stig og hún hefði
ekki verið eins há frá því að
mælingar á henni hófust í mars
2001. Er þetta ekki aðeins of
mikil birta? Upp með sólgler-
augun.
27. febrúar
MP í öllum höllum
Norðurlandanna
Sagt var frá því að MP fjár-
festingabanki hf. hefði fengið
beina aðild að kauphöllunum
í Kaupmannahöfn, Ósló og
Helsinki í gegnum OMX kaup-
hallasamstarfið og væri þar
með fyrsti aðilinn í Evrópu
með beina og milliliða-
lausa aðild að kauphöllum
allra Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna.
Í fréttatilkynningu frá MP
kom fram að OMX-kauphallirnar
væru sjö talsins; á Íslandi, í
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi,
Helsinki, Tallin, Riga og Vilnius.
Margeir Pétursson, stjórnarfor-
maður MP fjárfestingabanka.
Þorsteinn G. Gunnarsson.
27. febrúar
Nýr forstjóri
Opinna kerfa
Tilkynnt var um nýjan forstjóra
hjá Opnum kerfum þennan dag,
Þorstein G. Gunnarsson, sem
hefur unnið hjá félaginu sl. 11
ár. Þorsteinn tók við af Gylfa
Árnasyni sem á ný helgar sig
starfi forstjóra Opin Kerfi Group
hf. og stjórnarformennsku dótt-
urfélaga Opin Kerfi Group á
Íslandi, í Svíþjóð og í Danmörku.
Þorsteinn Gunnarsson er raf-
magnsverkfræðingur frá Háskóla
Íslands og með meistarapróf
frá University of Washington.
Þorsteinn var sérfræðingur
hjá Kerfisverkfræðistofu
Verkfræðistofnunar HÍ og
stundakennari við HÍ.
Hann hóf störf hjá Opnum
kerfum 1996 sem sérfræðingur,
síðar þjónustustjóri og nú síð-
ast var hann framkvæmdastjóri
ráðgjafar- og þjónustusviðs.
Þorsteinn er kvæntur Herdísi
Rafnsdóttur og eiga þau saman
drengina Rafn Viðar og Gunnar
Smára.
DAGBÓK I N
27. febrúar
BANKARNIR DÚXA, SAMKVÆMT MOODY´S
Íslensku bankarnir eru að
dúxa, samkvæmt Moody’s,
og keppinautarnir erlendis
eru ekki ánægðir með það.
Moody´s hækkaði lánshæf-
ismat íslensku viðskiptabank-
anna þriggja og setti þá alla
í Aaa flokk. En það er hæsta
einkunn sem Moody´s gefur.
Greiningardeildir Royal
Bank of Scotland, Dresdner
Kleinwort og Societe
Generale gagnrýndu þetta
lánshæfismat harðlega og
sögðust „furðulostnar“ enda
væri þetta hærri einkunn en
t.d. hollenski stórbankinn
ABN Amro fengi.