Frjáls verslun - 01.02.2007, Qupperneq 35
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 35
DAGBÓK I N
samráð hefði átt sér stað á milli
íslenskra ferðaskrifstofa.
Haft var eftir Páli
Gunnari Pálsson, forstjóra
Samkeppniseftirlitsins, að
Samkeppniseftirlitið hefði
gert húsleit hjá fimm aðilum:
Skrifstofu Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, Heimsferða, Terra
Nova, Plúsferða og Úrvals
Útsýnar. Sagði hann að um
hefðbundið eftirlit væri að ræða
og að unnið yrði á næstu vikum
úr þeim gögnum sem það hefði
fengið.
2. mars
Sigurður Bragi
hættur
Það kom verulega á óvart þegar
sagt var frá því að Sigurður
Bragi Guðmundsson væri
hættur sem forstjóri Plastprents
og að stjórn Plastprents hefði
ráðið Ólaf Steinarsson sem
forstjóra félagsins – og hefði
hann þegar hafið störf.
Ólafur er rekstrarfræðingur
að mennt og hefur m.a. starfað
hjá Samskipum, Ísfelli og Hans
Petersen.
Sigurður Bragi Guðmundsson
er með þekktustu rall-öku-
mönnum landsins.
5. mars
RÚV ohf. stofnað
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra flutti ávarp
á stofnfundi Ríkisútvarpsins
ohf. sem haldinn var í
Þjóðmenningarhúsinu. Hún
sagði að með breytingunni væri
reksturinn færður í félagsform
með takmarkaðri ábyrgð ríkis-
ins, jafnframt því sem stofnunin
fengi þann sveigjanleika í rekstri
sem fylgdi því þegar ríkisstofnun
breyttist í opinbert hlutafélag.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra.
„Ríkisútvarpið hefur staðið
á tímamótum líkt og aðrir rík-
isfjölmiðlar í Evrópu um nokk-
urt skeið,“ sagði Þorgerður og
bætti því við að núna væru
gerðar ríkari kröfur um að endur-
meta hlutverk ríkisfjölmiðla og
að afmarka almannaþjónustu-
hlutverkið.“
4. mars
Byr - sparisjóður
Nokkrar umræður urðu um hið
nýja nafn á nýjum sparisjóði
sem varð til við sameiningu
Sparisjóðs Hafnarfjarðar og
Sparisjóðs vélstjóra. En nýi
sparisjóðurinn hlaut nafnið BYR
– sparisjóður. Ekki voru allir
á eitt sáttir með þetta nafn. Í
auglýsingaherferð sjóðsins, sem
kom í kjölfarið, sagði það sig
eiginlega sjálft að keyrt yrði á
hugmyndinni um byr í seglin hjá
þeim sem skipta við sjóðinn.
Byr – sparisjóður.
5. mars
Kaupir í bresku
spilakassafélagi
Það kom svolítið á óvart þegar
sagt var frá því að FL Group
hefði keypt 10% hlut í breska
félaginu Inspired Gaming Group
PLC, en kaupverð hlutarins var
15,3 milljónir punda, sem er
jafnvirði um tveggja milljarða
króna.
Félagið er skráð á AiM hlið-
armarkaðinum í Lundúnum
og hefur gengi bréfa í félaginu
verið að hækka talsvert að und-
anförnu. Sumir grínuðust með
þessa frétt og sjá mátti blogg
þar sem spurt var að því hvort
Happdrætti Háskóla Íslands
væri til sölu.
6. mars
FL Group selur
Kynnisferðir
FL Group hefur samþykkt tilboð
í allan hlut sinn í Kynnisferðum
ehf. Kaupandi er hópur fjárfesta
undir forystu SBA-Norðurleiðar
hf. og Hópbíla/Hagavagna
hf. Áætlaður söluhagnaður
FL Group er um 450 milljónir
króna.
6. mars
Pálmi út úr
FL Group
Sagt var frá því að Fons,
eignarhaldsfélag Pálma
Haraldssonar og Jóhannesar
Kristinssonar, hefði selt allan
hlut sinn í FL Group, 3,7%,
fyrir um 8,7 milljarða króna.
Kaupendur voru þrjú félög sem
öll tengjast Baugi Group, þ.e.
BG Capital, Fasteignafélagið
Stoðir og Hagar.
Eftir þessi viðskipti fór eignar-
hlutur Baugs Group og fjárhags-
lega tengdra aðila í 19,6% af
heildarhlutafé FL Group.
Fólk var ekki bara hissa
– það varð steinhissa þegar
ein af fréttum ársins birtist
þennan dag um að tap 365,
áður Dagsbrúnar, hefði verið
tæpir 7 milljarðar króna á
síðasta ári. Þetta er með
stærri taptölum í fyrirtækj-
arekstri hér á landi.
Athygli vakti sérstök var-
úðarniðurfærsla upp á 5,9
milljarða vegna niðurlagðrar
starfsemi – eða eins og
þetta var orðað í fréttum að
tap hefði orðið á niðurlagðri
starfsemi upp á 5,9 millj-
arða króna. Höfðu ýmsir það
í flimtingum að ekki borgaði
sig að fara út í niðurlagða
starfsemi.
Í tilkynningu frá 365 var
haft eftir Ara Edwald, forstjóra
félagsins, að síðasta ár hefði
verið tími mikilla umbreyt-
inga hjá 365 hf. og forvera
þess Dagsbrún hf. Vinna við
þessar breytingar hefur verið
tímafrek og kostnaðarsöm,
auk þess sem 365 hf. hefði
þurft að taka á sig miklar
afskriftir vegna endurmats á
virði þeirra fjárfestinga sem
ráðist var í, en væru utan
framtíðarreksturs 365 hf.
2. mars
TAP 365 TÆPIR 7 MILLJARÐAR